Nafn á þessa tegund tölva: Brimbretti

Þar sem tölvurnar eru sérlega vel til þess fallnar að "sörfa" á netinu og líkjast brettum vil ég leggja til að þær verði kallaðar "Brimbretti".

Ég er afhuga hinum lokaða Apple heimi, svo ég held ég bíði eftir grip sem getur spilað aðrar bíómyndir og hljóðskrár en þær sem Apple hefur samþykkt. 

HTC Hero og Legend símarnir eru með Android stýrikerfið, þeir hafa verið að fá jafnvel betri dóma en iPhone, og mér kæmi ekki á óvart þótt HTC kæmi með brimbrettis útgáfu af Android símum bráðlega.

 


mbl.is Margir biðu eftir iPad
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góð hugmynd að nafni, hér er önnur: vefborð.

Annars hefur Hacker Newsverið að senda tengla á HP Slate, t.d.:

http://h20435.www2.hp.com/t5/Voodoo-Blog/HP-s-Slate-Device-Delivers-a-Holistic-Mobile-Experience/ba-p/54735

og

http://www.engadget.com/2010/04/05/hp-slate-to-cost-549-have-1-6ghz-atom-z530-5-hour-battery/

Samkvæmt nýjustu fréttum á þetta að koma út í júní. Eins og sést af síðari henglinum þá keyrir þetta Windows 7, sem er athyglisvert.

Ætla að skreppa í eplabúðina seinna og skoða iPad, en ég á erfitt með að sætta mig við alla lásana og hversu erfitt er að gera almenna hluti eins og að vista skrá eða nota cloud-storage. Svo ekki sé farið út í að ipad leyfir ekki flash/silverlight, engin myndavél, etc. etc.

Andri Haraldsson (IP-tala skráð) 7.4.2010 kl. 17:18

2 Smámynd: Anton Þór Harðarson

 Kári,  nýjustu símarnir frá HTC, Legent og Desire og einnig sá nýasti frá Sony Ericsson, Xperia X10, sem allir keyra á Android, eru miklu meira spennandi símar en Iphone.

Síðan er það HTC EVO 4G sem kemur í sumar, að vísu fyrst bara í USA, en hann hlýtur að koma hingað til evrópu líka, allavegana eitthvað sem líkist honum (http://now.sprint.com/evo/?ECID=vanity:evo )

Anton Þór Harðarson, 7.4.2010 kl. 18:15

3 identicon

Ég nota nær engöngu Apple nema þegar ég þarf að teikna, þá nota ég windows kerfið. Ég ætla sko að fá mér brettið, það er sko alveg á hreinu.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 7.4.2010 kl. 20:27

4 identicon

Kyndlar eru líka flott orð yfir þetta.

Ingunn Gunnarsdóttir (IP-tala skráð) 16.4.2010 kl. 15:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband