Potemkin þorpin

Hér er hluti af hjólastígakorti Reykjavíkur.  Mér vitanlega var kortið gert vegna ráðstefnu um skipulagsmál borga á Norðurlöndum.

hjolastigar_eda_hvad

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Kortið gerir ekki greinarmun á leiðinni meðfram sjónum báðum megin sem er malbikuð og ágæt hjólaleið, eða leiðunum meðfram Hringbraut og Lækjargötu sem eru gamlar gangstéttir.  Finnst einhverjum öðrum en mér hæpið að kalla þær hjólastíga?

Þetta minnir mig á þegar Ameríkanar endurskilgreindu tómatsósu sem grænmeti til að fullnægja kröfum um grænmetisneyslu hjá unglingum í skólum.

Þetta minnir mig líka á Potemkin Þorpin rússnesku. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:

Sæll Kári.

Skarplega athugað hjá þér! Lagalega hliðin á þessum stígum og "umferðareglur" á þeim eru líka í molum. Margt sem þarf að laga með tilliti til hjólandi umferðar. En kortið gefur samt ágæta mynd af því hvar hægt er að hjóla án mikilla vandræða.

 Reykjavíkurborg hefur gefið út þetta kort 2005 og svo aftur 2006 (þú ert með mynd úr gamla kortinu). Nýrra kortið er með nokkrum mikilvægum breytingum td tengistígur milli Kópavogs og Garðabæjar ásamt framhaldi stígsinns við Sæbraut. Nýrra kortið er hægt að nálgast í Ráðhúsi Reykjavíkur, klúbbhúsi ÍFHK við Brekkustíg 1 flest fimmtudagskvöld upp úr kl 20:00 og sjálfsagt á fleiri stöðum.

Einnig er hægt að nálgast rafrænt eintak af 2005 kortinu hér: www.hjol.org

Kveðja Fjölnir.

, 21.3.2007 kl. 17:41

2 identicon

Sæll Kári,

Hérna er hlekkur á 2006 kortið sem gefið er út í tengslum við Evrópska Samgönguviku í september ár hvert.

Svo er um að gera að senda inn athugasemdir við það kort en hjólreiðafélögin hafa einmitt unnið með embættismönnum borgarinnar við útfærslu kortsins og hafa ábendingar frá Morten Lange, Fjölni og fleirum verið vel þegnar.

Bestu kveðjur,

Pálmi

Pálmi (IP-tala skráð) 27.3.2007 kl. 11:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband