How high the moon?

Ég rakst á þessa mynd þegar ég var að leita að myndum til að hafa með fyrirlestri um gerfihnattasamskipti. Hún sýnir jörðina, tunglið og fjarlægðina á milli í réttum hlutföllum.

earth_and_moon_1024

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég hélt að tunglið væri stærra og nær okkur...

PS: Hér er "How high the moon" í boði Stephane Grappelli.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

minnir mig á það, þegar ég vann við gerð hugbúnaðar sem notaði Inmarsat gerfitunglin. þá sá ég einhversstaðar tölur um fjarlægð þeirra frá jörðu.  þau liggja nefnilega mjög hátt. einhvernveginn minnir mig að það sé um 1/6 af fjarlægðinni til tunglsins. kannski er mig þó að misminna. þó örugglega ekki mjög fjarri lagi. allavega reiknaðist okkur til að stór hluti seinkunarinnar á merkinu sé vegna fjarlæðarinnar eingöngu. hvort það hafi verið um 300 millisekúndur. aðeins farið að fenna yfir þetta, enda orðinn hátt í áratugur síðan.

Brjánn Guðjónsson, 19.2.2008 kl. 19:18

2 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Takk fyrir þetta, bæði myndina og myndbandið. Grappelli er náttúrlega stórkostlegur og það er voða gaman að sjá þessa aftöðu, það er satt og rétt hjá þér að héðan séð frá okkur niðri á jörðinni virðist manni tunglið miklu nær en þetta!

Mig lanar til að hæla þér fyrir athugasemdir við færlu á bloggi Einars Braga, sem eru með því skynsamlegast og heilbrigðasta sem ég hef lesið um þessi mál hér á Moggablogginu. Yfirleitt virðist ekki mega minnast á það að þó að frændur okkar Danir séu mjög vinalegir á yfirborðinu geta þeir sýnt sig að vera óttalegar smásálir, í það minnsta á mælikvarð þess hugsunarháttar sem við Íslendingar eigum að venjast, þegar undir þetta yfirborð er skyggnst. Þetta hafa allmargir Íslendingar sem hafa dvalið langdvölum í Danmörku og hafa tekið púlsinn á þjóðarsálinni sagt mér, þó ekki virðist mega hafa hátt um þennan neikvæða þátt í fari grannþjóðar okkar opinberlega hér heima. 

Greta Björg Úlfsdóttir, 19.2.2008 kl. 20:38

3 identicon

Sýnir þetta ekki bara hvað heimurinn er stór?

Teitur Þorkelsson (IP-tala skráð) 20.2.2008 kl. 02:45

4 Smámynd: Jón Ragnarsson

Já, og það er tunglmyrkvi á fimmtudagsnóttina...

Þó það líti ekki vel út fyrir gott skyggni... 

Jón Ragnarsson, 20.2.2008 kl. 10:11

5 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Hlakka til að lesa grein um gefrihnattasamskifti - eflaust lengra í grein um samskifti milli  reikistjarna ;)

Ásgeir Kristinn Lárusson, 20.2.2008 kl. 10:18

6 identicon

Vá... það er svona langt til tunglsins.. þó svo að það sé jafn langt á milli þeirra

þá virðist lengra frá jörðinni til tunglsins en frá tunglinu til jarðar.. hm..  

bara smá grín Kári.. var sísona að kíkka á bloggið þitt í fyrsta skipti.. til hamingju með annars áhugavert blog.

Bjarni Frændi (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 14:04

7 Smámynd: Kári Harðarson

Mér finnst þessi mynd setja afrek Appolo leiðangursmanna í samhengi.

Geimskutlan sem flýgur reglulega yfir er bara í 390 km hæð yfir sjávarmáli.  Ferð til tunglsins er meira mál, eða 385 þúsund kílómetrar aðra leiðina.

Upphaflegu geimfararnir voru töffarar þrátt fyrir hallærisleg bindi og gleraugnaspangir...

Kári Harðarson, 22.2.2008 kl. 14:25

8 Smámynd: Kári Harðarson

PS:  Þegar ég bjó í Hafnarfirði tók ég eftir því að það var lengra frá Reykjavík til Hafnarfjarðar en frá Hafnarfirði til Reykjavíkur, amk. þegar kom að heimsóknum vina og kunningja :)

Ég á svo marga Bjarnafrændur.  Hvaða meðlimur úr "Björnebanden" ertu? 

Kári Harðarson, 22.2.2008 kl. 14:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband