Til fyrirmyndar

Ég hef keypt plokkfisk frá Grími kokki og verið ánægður með hann.  Um daginn keyptum við fiskibollur frá sama fyrirtæki en þær voru þurrar og bragðlitlar.  Ég sendi tölvupóst og lét vita.

fiskibollur

 

 

 

 

 

Ég fékk samstundis afsökunarbeiðni og ekki nóg með það, heldur sárabætur; heimsendan kassa á dyrapallinn sem í voru ljúffengar fiskibollur (þeir virðast hafa endurbætt uppskriftina) og sýnishorn af annari framleiðslu fyrirtækisins.

Mér er ljúft og skylt að tilkynna að Grímur kokkur er í náðinni hjá mér.

 Grimur_kokkur_logo_120p


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

topp vörur frá topp fyrirtæki :)

Óskar Þorkelsson, 16.5.2008 kl. 16:02

2 Smámynd: Einar Indriðason

Já, ég get alveg mælt með vörum frá Grími kokki líka.  Ég hef ekki enn (þrátt fyrir "ógurlega mikla neyslu!" (eða þannig)) lent í því að fá vondan fisk frá Grími kokki.

Einar Indriðason, 16.5.2008 kl. 20:28

3 Smámynd: Haukur Nikulásson

Þetta er líka mín reynsla. Kvartaði einu sinni yfir beinum í plokkfiski sem mér þykir góður og þeir tóku kvörtuninni eins og menn. Þetta er fyrirtaks matvælafyrirtæki.

Haukur Nikulásson, 17.5.2008 kl. 00:24

4 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

frábært að heyra!

verst að ég hef ekki hugmynd um hver Grímur kokkur er, eða hans fyrirtæki. væri alveg til í að fá upplýsingar um hann.

Brjánn Guðjónsson, 17.5.2008 kl. 09:06

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Grimur kokkur er í vestmannaeyjum..

http://grimurkokkur.is/

allar hans uppskriftir eru eins og "mamma" hefði gert þær..einfaldar og góðar.

Óskar Þorkelsson, 17.5.2008 kl. 11:09

6 Smámynd: Anna Ólafsdóttir Björnsson

Elska plokkfiskin frá Grími og þakka þér bara fyrir að hafa snúið honum frá villum vega í fiskibollumálum.

Anna Ólafsdóttir Björnsson, 17.5.2008 kl. 12:34

7 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég tel að Grímur kokkur sé víða í náðinni og ekki að ástæðulausu. Margt góðra rétta frá þessu ágæta fyrirtæki og þessi frábæra reynsla þín er ekki til að skemma fyrir þeim...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 17.5.2008 kl. 13:04

8 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Kannski maður prófi þetta einhvern tímann. Annars er ég mest gefinn fyrir að elda mat úr upprunalegum hráefnum.

Elías Halldór Ágústsson, 17.5.2008 kl. 13:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband