Strætó framtíðarinnar

Ég sá ótrúlega tækni í Tallin í Eistlandi síðustu helgi.  Eistar hafa tekið framúr vetnisstrætópælingum Íslendinga og keyra nú um alla borgina í rafmagns strætisvögnum.

Þeirra tækni nýtir rafmagnið betur en vetnisstrætó gerir.  (Það þarf rafmagn til að mynda vetni). 

tallin310e

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég var að grínast.  Tæknin er ekki ný, hún er áratuga gömul.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Púkinn

Ætli þeir komist áfram í ssnjó og upp brekkur?  Vetnisvagnarnir réðu nú ekkert sérlega vel við það....

Púkinn, 27.4.2007 kl. 14:19

2 identicon

Ég þekki til þessara vagna frá Moskvu.  Hrikalega ljótir allir þessir vírar í loftinu sem fylgir þeim.  Ennfremur áttu þeir til að steikja einn og einn farðega þegar stigið var út úr þeim.  Þ.e. við vissar aðstæður.

Guðmundur (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 16:28

3 Smámynd: G. Tómas Gunnarsson

Það er engu líkara en helmingur Íslensku þjóðarinnar hafi skroppið til Eistlands nýlega, og er það vel, enda gaman að koma þangað og Eistlendingar góðir heim að sækja.

Þessir strætisvagnar eru fín framþróun af sporvögnunum og mörgum kostum búnir, en það yrði seint sátt um að leggja loft rafmagnslínur yfir öllum strætisvagnaleiðum í Reykjavík.

G. Tómas Gunnarsson, 27.4.2007 kl. 17:21

4 Smámynd: Kári Harðarson

Nú ertu að gefa þér að einhver verði spurður
 

Kári Harðarson, 27.4.2007 kl. 19:09

5 Smámynd: Magnús Bergsson

Mér hefur alltaf þótt vond framsóknarfíla af vetnisumræðuni hér á landi. Það er því gott að minna menn á að rafmagnið er gott eins og það er og best að eyða því ekki í framleiðslu á orkugjafa sem kostar líka mikla orku að geyma.

Svona til gamans er hér gamalt vetnisblogg: http://mberg.blog.is/blog/mberg/entry/118558/

Magnús Bergsson, 28.4.2007 kl. 02:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband