Álagning

Lyf og heilsa í JL húsinu er farin að selja krem sem ég var vanur að kaupa úti.

tigerbalm

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta ágæta smyrsli inniheldur chili og kamfóru og hitar vel vöðva sem eru aumir eftir hlaup eða skrifborðssetu.   Ég var glaður að sjá kremið aftur, en ekki eins glaður að sjá verðið sem var 750 kr. dósin.

Á Amazon er hægt að panta þessa sömu dós fyrir 3$ eða 190 krónur.  Verðið er því fjórfalt hærra en úti.  Ég er ekki með fjórfalt hærri laun en ég hafði úti.

Þarna er ekki hægt að kenna landbúnaðinum um.  Þetta er bara óhófleg álagning.  Ég verð svo reiður þegar ég sé svona, en það er svo lítið hægt að gera.  Ég labbaði bara út kremlaus.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: birna

ég held þetta sé til í Tiger .. örugglega á skárra verði

birna, 28.4.2007 kl. 15:56

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þetta er nefnilega málið með verðbólguna hér á landi. Það er þessi bull álagning sem er í gangi....og það versta er að við verlsum þessa hluti!

Tískubúðir eru að kaupa gallabuxur inn á 790 kr. og selja á 10.600. Matvörubúðir fá 2 ltr. kók á 60 kr og selja á 180 kr. (setja á tilboð 99kr. og selja allt upp)

Ódýr skyrta í Hagkaup kostar 2990 en er ca. kr. 400 í innkaupum.

Paratabs verkjalif í Lyfju er víst á skuggalegri álagningu bæði frá Actavis og síðan önnur eins álagning frá Lyfju. Reyndu að finna önnur verkjalyf í hillum apótekanna.

Endilega að vekja athygli á þessu og sniðganga þessa vitleysu!

Haraldur Haraldsson, 28.4.2007 kl. 16:32

3 Smámynd: Magnús Jónsson

Gott hjá þér að kaupa ekki það er nefnilega allt og sumt sem við neitendur þurfum að gera, til að sporna við álagningu af þessum toga, það er ekki hægt að okra á þeim sem ekki lætur glepjast, við getum stjórnað verðlagi með því einu að kaupa ekki og segja öðrum frá því.  

Magnús Jónsson, 28.4.2007 kl. 19:58

4 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

Ég varð mjög hugsi yfir auglýsingu sem ég sá um daginn. Flatskjár með afslætti og afslátturinn var hvorki meira né minna en 90 þús krónur!!! Halló. Ef hægt er að setja 90 þús króna afslátt á eitthvað þá er bara rétt hægt að ímynda sér hvaða álagning er á vörunni. Enginn þarf að segja mér að þeir séu að tapa á þessu tilboði sínu. Við Íslendingar erum náttúrlega ótrúlega mikil ''fljóta með straumnum'' þjóð og látum bjóða okkur upp á fáránlegustu hluti. Ég er sko ekki barnanna best þar.

Jóna Á. Gísladóttir, 28.4.2007 kl. 21:50

5 Smámynd: Eysteinn Ingólfsson

Já manni ofbýður álgning á flestum vörum hérna innanlands enda er maður farinn að kaupa æ meira erlendis. Held reyndar að paratabbs sé ekki gott dæmi, held að taflan kosti ca. 9 krónur sem er kannski álíka og hlaupbangsi, við erum að tala um lyf þannig að allt gæðabatteríið í kringum framleiðsluna er eitthvað sem almenningur þekkir að sjálfsögðu ekki. Hvorki actavis né apótek fitna á paratabs, fitan kemur annarsstaðar frá. Síðan má finna önnur verkjalyf t.d. panodil (sama og paratabbs nema innflutt) ibufen, voltaren, treo og naproxen.

Eysteinn Ingólfsson, 29.4.2007 kl. 10:21

6 Smámynd: Jón Aðalsteinn Jónsson

Er ekki bara málið að bloggarar Íslands sameinist taki saman höndum og stundi verðlagseftirlit og skiptist á uppýsingum hvar skuli verslað og hvar álagning er útúr kú

Jón Aðalsteinn Jónsson, 29.4.2007 kl. 12:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband