Hrmpfh!

Ég hjólaði í vinnuna í morgun. Sex ökumenn svínuðu fyrir mig í sama hjólatúrnum.

Það eru þeir sem keyra yfir stöðvunarskyldur og stanza á blábrún aðalbrautar sem eru stærsta hættan því þeir loka hjólastígnum sem liggur meðfram aðalbrautinni.  Svo eru það þeir sem ákveða að beygja í veg fyrir mann af því gangandi og hjólandi eiga alltaf að stanza - eða hvað?

Ég er jafn rétthár og mávarnir í borginni, þakka fyrir á meðan ekki er eitrað fyrir manni.

Hér er mynd af hjólastíg (skv. korti Reykjavíkurborgar).  Eins og sjá má eru nokkrir bílar á stígnum.

 miklubrautar_staedin

 

 

 

 

 

 

 

 

Fyrirgefið kaldhæðnina.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Púkinn

Já, þessir hjólreiðastígar eru tæplega nafnsins virði.  Þó hefur mér sýnst að flestir ökumenn séu nú farnir að virða stígana meðfram Lönguhlíð og hættir að leggja á þá.

Púkinn, 22.5.2007 kl. 13:54

2 Smámynd: Kári Harðarson

Takk fyrir samúðina Rósa!  Ég þurfti bara að ropa "einum súrum" eins og Danir segja.

"Saklaus" brot eins og að leggja á stétt og keyra yfir stöðvunarskyldu mæta algerum afgangi hjá löggjafanum.  Við erum óttalegir stjórnleysingjar...

Kári Harðarson, 22.5.2007 kl. 14:18

3 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Hjólaði EINU sinni úr Mosó í Hafnarfjörð í vinnuna. Ætlaði að gerast "healthy". Seldi að þessari einu ferð lokinni hjólið og sór þess sáran eið að þennan fjanda reyndi ég ekki eftur í bráð. Var hérumbil margdrepinn á leiðinni og fékk félaga minn á sendibíl til að renna með settið til baka. Hjólreiðastígar! Bara húmör í mönnum...Eins og auðvelt er að bæta úr þessu. Vilji er allt sem þarf, en hann hefur ekki alveg fundist að fullu. Ágætis aðstaða á sumum svæðum, en langt í land að ég taki upp á þeim ólíkindum að reyna þennan fjanda aftur. 

Halldór Egill Guðnason, 24.5.2007 kl. 02:35

4 Smámynd: Freyr Guðjónsson

Mikið finnt mér þið kröfuhörð. Samgönguráðherra á í nógu að gera að byggja göng víðsvegar útí rassgati og hefur engan tíma til að láta leggja og/eða laga hjólastíga hérna í borginni. 

Á öðrum nótum þá er ekkert mál að hjóla hérna í reykjavík, eins og þið segið eina sem þarf er viljin. Ég hef getað hjólað í vinnuna hvenær sem er. Jafnvel þegar ég bjó á Álftanesi og þurfti að drattast niðrí 101 reykjavík, og fleira til.

 Gangandi og hjólandi eru btw alltaf í rétti þegar deilt er við vélknúið ökutæki.

Freyr Guðjónsson, 24.5.2007 kl. 17:09

5 identicon

Segi svo sem sama, ég get hjólað út um allt.

En Freyr, það hjálpar reyndar lítið að vera í rétti þegar maður er kominn í hjólastólinn...

hildigunnur (IP-tala skráð) 24.5.2007 kl. 17:13

6 Smámynd: Freyr Guðjónsson

Peningar.

Freyr Guðjónsson, 24.5.2007 kl. 17:17

7 Smámynd: Kári Harðarson

Já, þeir segja það víst við gullna hliðið: "Ég var í rétti"

Ég hef viljann enda hjóla ég út um um allt.  Ég vil ekki stór peningaútlát -- en ég vil sjá breytt hugarfar.  Ef ég ætti fimmþúsundkall fyrir hvern þann sem hefur farið í veg fyrir mig á stöðvunarskyldu þá væri ég ríkur.  Kannski ríkið gæti gert rassíu og komið út í plús?

Kári Harðarson, 24.5.2007 kl. 17:23

8 Smámynd: Ólafur Þórðarson

Þetta sem þú kallar hjólreiðastíg er auðvitað bara gangstétt. Eins og flestir "hjólreiðastígar" borgarinnar. Það er alltaf til monningur í rándýr tveggja hæða gatnamót. Það sem vantar er net hjólreiðastíga þvers og kruss um borgina, óhaðir staðsetningu hraðbrautanna eða gangstéttana. Og þessa bíla á að gefa sektarmiða. Þá hætta þeir að parkera svona. Svo ef þeir væla yfir að geta ekki parkerað, þá geta þeir bara fengið sér reiðhjól. Við það minnkar maginn á þeim og rassvöðvarnir stælast. Takmarkinu náð.

Ólafur Þórðarson, 29.5.2007 kl. 04:20

9 identicon

Yfirgangur þeirra sem fara um akanadi á sér stundum engin takmörk. Það versta er að ég held að flestir ökumenn geri þetta algjörlega ómeðvitað. Ég er alltaf að færast meira og meira yfir á þá skoðun að hjóla úti á götu þar sem því er þorandi því þannig neyðum við hjólreiðamenn ökumenn vélknúinna tækja til þess að taka tillit til okkar. Og það sem er kannski en mikilvægara er að við vekjum athygli á öðrum valkostum í samgöngum í leiðinni.

Því sýnilegri sem við verðum þeim mun meiri áhrif munum við hafa á ráðamenn. Það er pínlegt að þurfa að lesa sögur af fólki sem gefst upp eftir fyrstu hjólaferðina vegna aðstöðuleysis. Það vill gera gott. Því er bara ekki gert það kleift!

Pétur Þór Ragnarsson (IP-tala skráð) 30.5.2007 kl. 20:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband