Hvaða tölvupóstur?

Ég sá viðtal við átján ára stúlku í Bandaríkjunum sem sagðist hafa  verið að nota sitt fyrsta tölvupóstfang til að geta átt samskipti við  háskólann sem hún var að sækja um í.

Hún sagði að vinir sínir notuðu eingöngu MSN, Facebook, AIM, SMS,  blogg, Skype og fleiri slíkar þjónustur, þess vegna hefði hún aldrei  notað sitt tölvupóstfang fyrr.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég hélt að tölvupóstur væri ennþá "hipp og kúl". Svo kemur í ljós að  hann er orðinn jafn gamaldags og telexið var fyrir mína kynslóð.

Mér hefur lengi fundist tölvupóstur vera úreldur.  Það verður gott að losna við hann.  Ruslpósturinn og nafnlausu bréfin hafa fengið að þvælast fyrir nógu lengi.



« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hmmm.  Þarf maður ekki að hafa tölvupóst til að skrá sig í allar þessar þjónustur?
Ertu viss um að þú hafir ekki "misheyrt vitlaust"?

Ra (IP-tala skráð) 24.8.2007 kl. 13:55

2 Smámynd: Kári Harðarson

Sonur minn er þrettán ára og hann notar ekki tölvupóst.  Hann er með tölvupóstfang til að geta skráð sig í ýmsar þjónustur --  en hann les ekki tölvupóst mér vitanlega.

Kári Harðarson, 24.8.2007 kl. 14:02

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

msn er e mail, en hefur þróast yfir í að vera gagnvirkt spjallkerfi í tímanna rás..
skype er símaþjónusta sem krefst þess að þú hafir e mail skráðan.
Sms er partur af símaþjónustu án e mail.
Facebook er nýtt og þekki ég það ekki en þeir senda e mail til hægri og vinsyri og eru hálfgerð plága.
Blogg þarf e mail til skráningar.

Krakkarnir mínir hafa öll e mail skráðan ýmist hjá msn, hotmail eða Gmail. Gamli góði outlook express er fyrir löngu út hjá þessum hópum og reyndar hjá mér líka en vertu viss, ef strákurinn þinn skráir sig einhverstaðar á netinu þá fær hann e mail sem staðfesting sem hann þarf að svara..

E mail er ekki út enn.

Óskar Þorkelsson, 24.8.2007 kl. 19:22

4 Smámynd: Júlíus Valsson

Mjög áhugavert! Hef verið að prófa SL (secondlife.com). Það er greinilega framtíð í slíkum "veruleika". 

Júlíus Valsson, 25.8.2007 kl. 12:02

5 Smámynd: Jón Halldór Guðmundsson

Ætli blogsíðurnar (eða einhvers konar heimasvæði)  eigi ekki bara eftir að ryðja skype og þessu nýja dóti burtu?

Jón Halldór Guðmundsson, 26.8.2007 kl. 23:26

6 Smámynd: Kári Harðarson

Það þarf tölvupóstfang sem eins konar internet skilríki, en það þarf ekki að nota það í neitt annað.

Sum fyrirtæki vilja ekki nota sínar eigin vörur: 

Ég man þegar systir mín sótti um faxnúmer hjá Landssímanum 1986 og spurði hvort hún mætti senda þeim umsóknina með faxi.  "Nei" var svarið, "þú þarft að koma niður í afgreiðslu á Austurvelli

Kári Harðarson, 27.8.2007 kl. 10:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband