Gætuð þér tekið hendina úr vasa mínum?

Ef ég hagnast á sölu hlutabréfa borga ég fjármagnstekjuskatt eins og  vera ber.

Ríkið rukkar mig samt ekki um hann heldur vinnuveitanda minn sem  dregur hann af laununum mínum.

Ef ég græði milljón á sölu hlutabréfa fær yfirmaður minn að vita það  manna fyrstur.

Ég er líka rukkaður fyrr en nauðsynlegt er.

Reikningar á Íslandi hafa Gjalddaga og Eindaga.  (Ég veit ekki hvers  vegna það eru tvö "deadline" til að borga reikning, ég hef ekki séð  það annars staðar).

Atvinnuveitandinn tekur peningana á gjalddaga og ég get því ekki notað  þá fram á eindaga eins og ég gæti annars gert.

Mér vitanlega er engin leið að skrá sig út úr þessu fyrirkomulagi. Það  er ekki hægt að biðja skattstjóra um að senda reikninginn fyrir  fjármagnstekjuskattinum beint heim til mín.

Þetta fyrirkomulag varð sennilega til þegar forsjárhyggjan var uppá  sitt besta. Það átti að ná skattinum af verkamanninum áður en hann  kæmist út í ÁTVR með launin og gæti drukkið þau út.  Það er eldra en Persónuvernd því annars hefði  hún sennilega komið í veg fyrir að atvinnuveitendum yrðu sendar  upplýsingar um ótengd viðskipti starfsmanna þeirra.

Hins vegar hafa kaup mín og sala á bréfum ekkert með atvinnu mína að  gera.  Fer ég með vitlaust mál?  Er þetta ekki tímaskekkja?  Stenst þetta  stjórnarskrá?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Hygg að þú hafir alveg rétt fyrir þér.

Heimir Lárusson Fjeldsted, 28.8.2007 kl. 13:45

2 identicon

Hvað segiru Kári minn. Hversu mikið græddir þú í þetta skiptið?

Stefán Freyr (IP-tala skráð) 28.8.2007 kl. 14:13

3 Smámynd: Kári Harðarson

Spurðu atvinnuveitandann

Kári Harðarson, 28.8.2007 kl. 14:16

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

tek undir með ykkur, mér finnst þetta fáranlegt og merkilegt að stuttbuxnadeildin í sjálfstæðisflokknum skuli ekki hafa tekið þetta fyrir í stað þess að standa eins og fífl niðri á skattstofu fyrr í mánuðinum.  Kannski vegna þess að þetta skiptir máli en hitt sem þeir stóðu fyrir skipti engu máli

Óskar Þorkelsson, 29.8.2007 kl. 08:01

5 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Ég sem atvinnurekandi fæ lista um það bil mánuði á undan launþeganum hvað hann þarf að borga í skatta (Alla skatta,ekki bara launskatta)

Ef ég man rétt fylgir líka áminning um ábyrgð launagreiðandans á því að koma þessum greiðslum til skila

Þetta er gaggala gú eins og hænsna bóndinn mundi segja 

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 29.8.2007 kl. 10:45

6 Smámynd: birna

Þetta er auðvitað fáránlegt. Virðist vera gömul yfirsjón sem þarf að laga.
Eigum við ekki að nefna þetta við skattstjóra ? fjármálaráðherra ?

birna, 29.8.2007 kl. 13:20

7 Smámynd: Þór Sigurðsson

Hmm... góð hugmynd Birna, en ég á enn eftir að sjá það að það skili árangri að tala við þessa háu herra. Mér hefur virzt í samskiptum mínum við löggjafar-, dóms- og framkvæmdavaldið að fólk innan þessarra geira virðast hafa fluzt til yfir í einhverja hliðræna vídd raunveruleikans. Og þeim fáu sem enn hafa einhver tengsl við raunveruleikann og er ekki hægt að mjaka til, þeim er bolað burt.

Sorglegt eiginlega. Það er víða pottur brotinn. RSK, LÍN, meðferð á almannafé innan stjórnkerfisins...

Þór Sigurðsson, 29.8.2007 kl. 15:20

8 identicon

Málið er einfaldlega það, að það eru ekki pólitíkusar sem ráða, heldur embættismenn. "Já, ráðherra, en....."

bunulækurinn (IP-tala skráð) 31.8.2007 kl. 11:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband