La vie est belle

Ég er ennþá í Rennes í Frakklandi.

Þegar ég kem út á morgnanna gríp ég andann á lofti því allt er svo fallegt.

P9220040

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Blómin sem vaxa við gluggann ilma.  Húsið mitt er allt skakkt og skælt en samt fallegt.  Gatan er með tígulsteinum og hún er falleg.

P9220051

 

 

 

 

 

 

Bakarín eru fallegt og kaffihúsin líka.

paris3mv2

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fólkið sem situr á kaffihúsunum  líka.

Ég veit ekki hvernig Fransmennirnir fara að þessu, en ég myndi vilja komast að því.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Svona leið mér þegar ég kom til Ravello.

Ég hafði búið í Bretlandi í eitt og hálft ár og ferðast um alla Evrópu, ráfað um Napólí og nágrenni í einhverjar vikur og komið í sérhvert smáþorp á La Costiera Amalfitana en þetta eina litla þorp á meðal margra fallegra þorpa var einhvern veginn svo undursamlegt að maður tók andköf hvert sem maður leit.

Elías Halldór Ágústsson, 27.9.2007 kl. 22:36

2 Smámynd: Kári Harðarson

Ah já, Amalfi ströndin!  Við vorum einu sinni í viku í Positano, sá bær lætur manni líða eins og maður sé kominn til himna svo ég get alveg trúað að Ravello sé fallegur.

Það hlýtur að vera fullt verk fyrir alla bæjarbúa að gera bæinn sinn svona, þetta er ekki verk einnar bæjarstjórnar.

Kári Harðarson, 28.9.2007 kl. 06:03

3 identicon

Thetta er lika mjog medvitud politik i Frakklandi Kari, Frakkar lifa af ferdamennsku og hafa beina fjarhagslega hagsmuni af thvi ad halda landinu "picture pretty" fyrir alla turistana.  Medal annars eru mjog strangar reglur um hverning ma byggja i hinum ymsu svaedum Frakklands.  Thu matt ekki byggja hus i Bretagne stil i  Provence og thu matt ekki byggja hus i Savoie stil i Baskalandinu, o.s.frv.  Thetta fer alveg nidur i smaatridi eins og litinn a gluggahlerunum.  I Reykjavik virdist allt vera leyfilegt, mexikonsk hacienda og ameriskt bjalkahus hlid vid hlid i somu gotu.  Stilleysid er algjort.  Thetta a ser langa sogu, m.a. urdu islenskir namsmenn ad leita ut fyrir landsteinana til thess ad nema arkitektur og komu svo heim med thad besta thadan sem their hofdu laert.  Islenski arkitektaskolinn er tiltolulega nyr thannig ad vonandi stendur byggingalistin til bota - borgarskiplagid hefur ekki batnad undanfarin ar nema sidur se.  Thad tharf politiskan vilja til thess ad breyta um stefnu i thessum malum og fagurfraedi og hagkvaemni haldast ekki alltaf i hendur.  A Islandi virdist hagkvaemnin ein rada ferdinni.

Regina Hardardottir (IP-tala skráð) 2.10.2007 kl. 14:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband