Leiðbeiningar fyrir ferðamenn í Frakklandi

Í tilefni af heimferð minni til Íslands frá Frakklandi hef ég tekið reynslu mína saman í pistil svo aðrir megi njóta.

Frakkland er miðlungs stórt útland í miðri Evrópu.  Það er mikilvægur meðlimur í  samfélagi þjóðanna en ekki eins mikilvægt og það heldur sjálft.  Það liggur upp að Þýskalandi, Spáni, Sviss og nokkrum minni þjóðum þar sem ekki er gott að  versla.  Frakkland er mjög gamalt land með mikla menningarfjársjóði eins og  Louvre safnið og Eurodisney.  Framlag þess til menningar vesturlanda er meðal  annars kampavín, Camembert ostur og fallöxin.  Þótt Frakkland líti á sjálft sig  sem nútíma land þá er engin loftræsting og það er ekki hægt að panta  mexíkanskan mat.  Það er viðvarandi vandamál að fólk sem maður hittir hér reynir að tala við mann frönsku þótt margir endi með því að tala ensku ef maður æpir nógu hátt.  Eins og í öðrum útlöndum er mikilvægt að passa vel hvað maður fær til baka af  skiptimynt.

Etxe_PlanABC

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

"Fréttirnar berast hratt" 

 

Í Frakklandi eru 54 milljónir íbúa sem reykja og drekka mikið, keyra illa, eru kynóðir, og geta ekki beðið í biðröð.  Frakkar eru yfirleitt í vondu skapi,  skapstyggir, stoltir, dramblátir og óagaðir, og þetta eru kostirnir.  Flestir  frakkar eru kaþólskir þótt maður geti ekki séð það á framferðinu.  Margir eru  kommúnistar og topplaus sólböð eru algeng.  Menn hér hafa stundum kvennmannsnöfn eins og "Marie" og þeir kyssa hvorn annan þegar þeir afhenda  medalíur.  Ferðamenn ættu að fara um í hópum í litríkum fötum og með hornaboltahúfur til að geta fundið hvorn annan.

Frakkland er yfirleitt öruggur staður að ferðast á, þótt öðru hvoru sé ráðist á það af Þýskalandi.  Hefðin er sú að Frakkar gefast strax upp og lífið heldur áfram lítið breytt burtséð frá skorti á viskýi.  Göng til Bretlands voru opnuð nýlega til að auðvelda ríkistjórninni að flýja.

Frakkland var uppgötvað af Karlamagnúsi á miðöldum.  Aðrar mikilvægar persónur úr sögu Frakklands eru Loðvík fjórtándi, Húgenottarnir,  Jóhanna af Örk, Jacques  Costeau og Charles de Gaulle sem var forseti í mörg ár en er nú flugvöllur.

Frönsk stjórnmál eru lýðræðisleg en mjög hávær.  Kosningar eru alltaf í gangi.  Stjórnmálalega skiptist landið í svæði, hreppa, sýslur, borgir, þorp, kaffihús, bása og gólfflísar.

Þingið samanstendur af tveimur deildum, efri og neðri deild en þær eru samt  báðar á jarðhæð.  Þeir sem í þeim eru skiptast í Gaulverja og Kommúnista og hvorugum ætti að treysta.  Aðal verkefni þingsins eru að sprengja kjarnorkusprengjur í Kyrrahafi og bregðast illa við kvörtunum þaraðlútandi. 

Frakkar eru stoltir af menningu sinni þótt það sé ekki auðvelt að sjá af hverju.  Öll frönsk lög hljóma eins, og þeir hafa yfirleitt ekki gert bíómyndir sem fólk nennir að sjá nema út af nektarsenunum.  Að sjálfsögðu er ekkert leiðinlegra en frönsk skáldsaga.

Þegar öllu er á botninn hvolft er sama hvað þú notar mikinn hvítlauk, snigill er  bara slumma með skel ofaná.  Frönsk hveitihorn eru hinsvegar ágæt þótt það sé ómögulegt að bera fram "Croissant" til að panta þau.  Ferðalöngum er bent á að halda sig við ostborgara á Sheraton en þar er töluð enska.

Í Frakklandi er öflugt og fjölbreytt atvinnulíf sem er merkilegt því fólk vinnur yfirleitt ekki.  Ef þeir eru ekki í fjögurra tíma hádegismat þá eru þeir í verkfalli að loka vegunum með traktorum.  Helstu útflutningsvörur frakka raðað eftir þjóðartekjum eru: vín, kjarnorkuvopn, ilmvötn, flugskeyti, kampavín, byssur, eldvörpur, jarðsprengjur, skriðdrekar, árásarþotur, ýmis smávopn og ostur.

Frakkland hefur fleiri frídaga en nokkuð annað land.  Af 361 frídegi eru 197 helgaðir dýrðlingum, 37 helgaðir frelsun landsins, 16 helgaðir yfirlýsingu lýðveldis, 18 helgaðir Napóleoni á leið í útlegð og 17 helgaðir Napóleóni á leið úr útlegð.

Frakkland hefur fjölbreytta sögu, fallegt og fjölbreytt landslag, og þægilegt loftslag. Það væri frábært land ef það væri ekki fullt af frökkum.  Það besta  sem hægt er að segja um Frakkland er að það er ekki Þýskaland.

gaston

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í alvöru talað er þetta lauslega þýtt héðan

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Viðar Eggertsson

gaman gaman! áttu ekki einhverja svona skemmtilega útlistun á Íslendingum?

Viðar Eggertsson, 12.12.2007 kl. 22:24

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Ég er í kasti...    Bjó þarna í tvö ár fyrir LÖNGU.

Mæli með bókunum "Xenophobes guides", hér er slóð. Litlar og þægilegar bækur. Því miður fæst bara sú um Íslendingana hér á landi en ég safna þeim og kaupi þegar ég bregð mér til útlanda. Flestar eru hreint óborganlegar.

Lára Hanna Einarsdóttir, 12.12.2007 kl. 22:34

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

he he alger snilld

Óskar Þorkelsson, 12.12.2007 kl. 22:50

4 Smámynd: Anna Karlsdóttir

Skemmtileg krufning á frönsku þjóðinni. Takk fyrir það

Anna Karlsdóttir, 12.12.2007 kl. 23:24

5 Smámynd: Einar Indriðason

Snilldardæmi :-)

Ég á einhvers staðar ofan í kassa "The Xenophobes guides to Iceland", las hana þá.  Snilld, svipað og umfjöllunin um Frakkland.  En.. að ég finni þessa bók núna, ekki að ræða það.  Of margir kassar, of margar bækur.

Einar Indriðason, 12.12.2007 kl. 23:48

6 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

Hahahaha! Frábær pistill.

Brjánn Guðjónsson, 13.12.2007 kl. 00:01

7 Smámynd: Kári Harðarson

Það eru djúpsteiktu kartöflurnar líka, en Frakkar borða þær samt, og þeir lesa líka Viggó sem talar ágæta frönsku!

Kári Harðarson, 13.12.2007 kl. 08:33

8 Smámynd: Sigurjón

Skemmtilegur pistill hjá þér Kári.  Ég held að ég skoði Frakkland fljótlega, en takk fyrir viðvörunina!

Sigurjón, 13.12.2007 kl. 13:05

9 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Kærar þakkir fyrir þetta!

Greta Björg Úlfsdóttir, 13.12.2007 kl. 16:13

10 Smámynd: Heimir Tómasson

Góður pistill, þetta kallar maður að kryfja þjóðina til mergjar í nokkrum setningum. Þetta staðfestir eiginlega allt sem að ég hef haldið um Frakka (bara komið þangað tvisvar, og það stutt). Svo má minna á ódauðleg orð sem látin voru falla á Baggalút:

Franskar konur fitna ekki - en þær eru sjúklega leiðinlegar.

Heimir Tómasson, 13.12.2007 kl. 19:52

11 Smámynd: Kári Harðarson

Eitthvað svipað sagði Seinfeld um íslenskar konur.  "Þau eru súr" sagði refurinn.

Ég tek fram að ég er stórhrifinn af Frakklandi, þetta er meira til gamans gert.

Kári Harðarson, 13.12.2007 kl. 20:19

12 identicon

Viggó Viðutan (Gaston LaGaffe) er samt ekki franskur, þó margir haldi það. Hann er Belgi

Baldvin Esra Einarsson (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 22:38

13 identicon

Sorrí, sá ekki að Jón Frímann var búinn að benda á þetta. Flottur Jón Frímann.

Baldvin Esra Einarsson (IP-tala skráð) 17.12.2007 kl. 22:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband