Gamli miðbær, nýji miðbær

Ég veit að gamli miðbærinn er að drabbast niður.  Ég man líka að Kringlan var kölluð nýji miðbærinn.

Hér eru loftmyndir úr Google Earth af báðum þessum miðbæjum, báðar myndirnar eru teknar úr sömu fjarlægð og sýna því jafn stóran flöt.

Ég veit í hvorum miðbænum ég vil vera ....

gamlimidbaer

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

nyimidbaer


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Skemmtileg framsetning. Ég veit líka í hvorum ég vil vera... og er. 

Lára Hanna Einarsdóttir, 18.4.2008 kl. 12:06

2 identicon

Magnað! Húsið mitt sést meira að segja á neðri myndinni.

Ég tel sjálfan mig meira að segja búa á mörkum hinnar byggilegu Reykjavíkur, þarna rétt á mótum Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar.

Stefán Vignir Skarphéðinsson (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 15:57

3 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

o/

gamla miðbæinn, takk.

Vinkona mín býr í raðhúsi í Kringlunni og þar er sko líka krotað...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 18.4.2008 kl. 16:57

4 identicon

Góður gamli Nörd !... grafískur áróður sem virkar vel !

Ólafur í Hvarfi (IP-tala skráð) 18.4.2008 kl. 18:57

5 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Ótrúlegt að allir skuli ekki velja gamla, góða ....

Takk fyrir snilldina.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 18.4.2008 kl. 22:07

6 Smámynd: Sturla Snorrason

Svo er það hugmyndin af miðbæ sem er ekki á Verk og vit 2008. Lausn sem gæti bjargað gamla miðbænum frá niðurbroti? Lausn sem gæti leyst umferðarvandann?

Sturla Snorrason, 18.4.2008 kl. 23:42

7 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Á efri myndinni eru tvö hús sem ég hef búið í, í öðru frá 1976-1981 og hinu 1998-2005. Tveimur sentimetrum til hægri við hana eru svo hús sem ég bjó í 1992-1994 og 1996-1998.

Elías Halldór Ágústsson, 19.4.2008 kl. 00:21

8 Smámynd: Haukur Nikulásson

Ég veit að sumir eru í forfallinni fortíðarhyggju og elska helst bara það sem er gamalt og úrelt og jafnvel ljótt eins og flest gömlu og ljótu bárujárnsklæddu timbureldgildrurnar í miðbænum. Mætti ég þá frekar biðja um upphaflegu óhreyfðu grasþúfurnar í miðbænum sem eiga sögulega séð meiri tilverurétt á þessum stað en timburkofarnir sem sumir eru svo æstir í að halda í.

Ég held að svona tilfinningasemi muni brátt líða hjá. Maðurinn hlýtur að fara að skilja að hann notar land eins og honum sýnist á hverjum tíma. Þeir einir eiga réttinn sem byggja jörðina á hverjum tíma og hafa þá einu skyldu að fara ekki svo illa með að hún verði ekki óbyggileg komandi kynslóðum. Timburkofar miðbæjarins eru að mínu mati ekki nógu merkilegir til að gera þá að heilögum kúm og láta þá hindra eðlilega þróun byggðar og nútíma þæginda. Þeir sem hafa vilja og hafa sjálfir efni á því að halda í timburkofana með eigið fé að vopni eiga bara að gera það eins og frímerkjasafnarar en láta vera að krefjast þess að almannafé sé til þess notað í það eins og nú er gert í tómri vitleysu.

PS. Kári ég vaknaði allt of snemma á þessum indæla laugardagsmorgni og finn mig knúinn til espa ykkur aðeins upp

Haukur Nikulásson, 19.4.2008 kl. 07:44

9 Smámynd: Einar Indriðason

Og... smá mótvægi.  Mig langar að sjá stað sem er einhvers staðar á milli þessara tveggja öfga.  Mér finnst myndin af gamla miðbænum vera of þéttsetin, meðan augljóslega sú nýja er bara mynd af stóru bílastæði.

Á ég að pota í ykkur, og segja... Ef gamla myndin yrði grisjuð um ca. 10-40% þá skal ég skoða málið aftur :-)

Einar Indriðason, 19.4.2008 kl. 09:22

10 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Haukur, þú mátt eiga Kringlurnar, værsågod ;)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 19.4.2008 kl. 09:22

11 Smámynd: Kári Harðarson

Sæll Haukur,

Það er ekki ást á gömlum kofum sem hrjáir mig, heldur hlutfall yfirborðs sem fer undir bílastæði á neðri myndinni.  Þeir sem kalla bílastæði "miðbæ" eru með aðrar væntingar um samkomustað borgarbúa en ég.

Ég gæti orðið ástfanginn að glænýju hverfi ef bíllinn er ekki hafður þar í fyrsta og öðru sæti.

Kári Harðarson, 19.4.2008 kl. 11:37

12 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Einar, myndin af gamla miðbænum er fyrst og fremst af íbúðahverfi reyndar. Það væri ekki alveg svona þétt ef myndin væri af Austurvelli og þar um kring.

Haukur, myndir þú vilja að Torfan hefði verið rifin og í staðinn byggður haugur af Moggahöllum? Það stóð jú til um tíma...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 19.4.2008 kl. 17:55

13 Smámynd: steinimagg

Já það er alveg ótrúlegt hvað það fer mikið af landi undir bílastæði í Reykjavík, þetta hlítur að vera heimsmet.

steinimagg, 20.4.2008 kl. 13:32

14 Smámynd: Þór Sigurðsson

Ég bjó fyrir miðri efri myndinni og hef sjaldan verið eins feginn að flytja burt eins og þegar ég flutti þaðan. Verst að nýju nágrannar mínir hafa verið byggingaverktakar síðustu 3 árin, og orðið langþreytt glamrið í þeim.

Ég myndi þó frekar flytja í kúlutjald á Kjalarnesi en að búa við hliðina á neðri myndinni. Fyrir utan að vera einum OF malbikaður er þessi staður sennilega ein af betri uppsprettum mengunar í borginni, að Grensásgatnamótunum fráskildum..

Þór Sigurðsson, 4.5.2008 kl. 03:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband