Eyðsla og bensínverð - og Metangas

Fyrir nokkrum árum áttum við bíl sem eyddi 8 á hundraðið og bensínið kostaði 100 kr lítrinn.  Við keyrum 14 þúsund km á ári svo kostnaðurinn var 112 þúsund á ári.

Nú eigum við jeppa sem eyðir 18 á hundraðið og bensínið kostar 180 kr lítrinn svo nýja árseysðlan er 453 þúsund á ári eða 37.750 á mánuði.

Ef við hendum jeppanum (fáum ekkert fyrir hann býst ég við) og kaupum bíl sem eyðir 6 lítrum á hundraðið færi bensínkostnaðurinn niður í 151.200 á ári eða 12.600 á mánuði, sem er sparnaður upp á 25.150 á mánuði.

Afborganir af nýjum bíl væru meira en það og því rekum við jeppann áfram.

Hins vegar gætum við breytt jeppanum fyrir Metangas.  Mér sýnist bretar vera búnir að taka við sér í þessu, og land rover eigendur eru að láta breyta jeppunum sínum þar.

Hér er heimasíða hjá fyrirtæki sem hefur breytt Land Rover jeppum:

http://www.wains-classic-rebuilds.co.uk/

rr_94_99_08.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér eru almennar upplýsingar um breytingar á bensínbílum:

http://www.autogas.ltd.uk/conversion.htm

Hér á landi er aðeins einn áfyllingarstaður fyrir Metangas.   Mér þykir freistandi að taka áskorun Geirs Haarde og láta breyta jeppanum en á meðan engin stefna er komin frá stjórnvöldum um verð og framboð á metangasi þori ég ekki að slá til.  Mikið vildi ég að stjórnvöld tækju af skarið þarna!

Ef ég gæti fengið afslátt eða styrk til að láta breyta bílnum, eða fengið loforð um fleiri áfyllingarstöðvar væru þetta meira en orðin tóm.

Hér er slóð á fyrirlestur Björns H. Halldórssonar um Metanbíla.

---

Fyrir ykkur sem viljið hugleiða bensínkostnað má hér sjá árlegan kostnað í bensínkaup ef keyrðir eru annars vegar 14 þúsund km á ári og hinsvegar 35 þúsund km á ári.  Dálkarnir eru verð í krónum á lítra en línurnar eru eyðsla í lítrum á hundraðið.

  90 100 110 120 130 140 150 160 170 180 190
5 63.000 70.000 77.000 84.000 91.000 98.000 105.000 112.000 119.000 126.000 133.000
6 75.600 84.000 92.400 100.800 109.200 117.600 126.000 134.400 142.800 151.200 159.600
7 88.200 98.000 107.800 117.600 127.400 137.200 147.000 156.800 166.600 176.400 186.200
8 100.800 112.000 123.200 134.400 145.600 156.800 168.000 179.200 190.400 201.600 212.800
9 113.400 126.000 138.600 151.200 163.800 176.400 189.000 201.600 214.200 226.800 239.400
10 126.000 140.000 154.000 168.000 182.000 196.000 210.000 224.000 238.000 252.000 266.000
11 138.600 154.000 169.400 184.800 200.200 215.600 231.000 246.400 261.800 277.200 292.600
12 151.200 168.000 184.800 201.600 218.400 235.200 252.000 268.800 285.600 302.400 319.200
13 163.800 182.000 200.200 218.400 236.600 254.800 273.000 291.200 309.400 327.600 345.800
14 176.400 196.000 215.600 235.200 254.800 274.400 294.000 313.600 333.200 352.800 372.400
15 189.000 210.000 231.000 252.000 273.000 294.000 315.000 336.000 357.000 378.000 399.000
16 201.600 224.000 246.400 268.800 291.200 313.600 336.000 358.400 380.800 403.200 425.600
17 214.200 238.000 261.800 285.600 309.400 333.200 357.000 380.800 404.600 428.400 452.200
18 226.800 252.000 277.200 302.400 327.600 352.800 378.000 403.200 428.400 453.600 478.800
19 239.400 266.000 292.600 319.200 345.800 372.400 399.000 425.600 452.200 478.800 505.400
20 252.000 280.000 308.000 336.000 364.000 392.000 420.000 448.000 476.000 504.000 532.000
            
14000 km á ári          
            
  90 100 110 120 130 140 150 160 170 180 190
5 157.500 175.000 192.500 210.000 227.500 245.000 262.500 280.000 297.500 315.000 332.500
6 189.000 210.000 231.000 252.000 273.000 294.000 315.000 336.000 357.000 378.000 399.000
7 220.500 245.000 269.500 294.000 318.500 343.000 367.500 392.000 416.500 441.000 465.500
8 252.000 280.000 308.000 336.000 364.000 392.000 420.000 448.000 476.000 504.000 532.000
9 283.500 315.000 346.500 378.000 409.500 441.000 472.500 504.000 535.500 567.000 598.500
10 315.000 350.000 385.000 420.000 455.000 490.000 525.000 560.000 595.000 630.000 665.000
11 346.500 385.000 423.500 462.000 500.500 539.000 577.500 616.000 654.500 693.000 731.500
12 378.000 420.000 462.000 504.000 546.000 588.000 630.000 672.000 714.000 756.000 798.000
13 409.500 455.000 500.500 546.000 591.500 637.000 682.500 728.000 773.500 819.000 864.500
14 441.000 490.000 539.000 588.000 637.000 686.000 735.000 784.000 833.000 882.000 931.000
15 472.500 525.000 577.500 630.000 682.500 735.000 787.500 840.000 892.500 945.000 997.500
16 504.000 560.000 616.000 672.000 728.000 784.000 840.000 896.000 952.000 1.008.000 1.064.000
17 535.500 595.000 654.500 714.000 773.500 833.000 892.500 952.000 1.011.500 1.071.000 1.130.500
18 567.000 630.000 693.000 756.000 819.000 882.000 945.000 1.008.000 1.071.000 1.134.000 1.197.000
19 598.500 665.000 731.500 798.000 864.500 931.000 997.500 1.064.000 1.130.500 1.197.000 1.263.500
20 630.000 700.000 770.000 840.000 910.000 980.000 1.050.000 1.120.000 1.190.000 1.260.000 1.330.000
            
35000 km á ári          
            

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef þú hefðir haft vit á því að eiga díselbíl, hefðirðu geta tekið þér tún á leigu og ráðið bónda til að rækta raps fyrir þig - bíodísel. 1 hektari gerir 1000 lítra.

Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 19.6.2008 kl. 18:33

2 Smámynd: Landfari

Þetta er nú ekki raunhæft reikningsdæmi hjá þér. Annars vegar að aka um á verðlausri jeppatík og hinsvegar á flunkunýjum bíl. Hverjar hefðu afborganirnar verið af jafn gömlum Yaris og jeppatíkin þín er. Nú eða Skoda. Hann eyðir víst litlu líka.

Einfalt að fá út þá niðurstöðu sem hver vill ef hann hagræðir bara forsendunum. En svo er líka hægt að spara helling með því að keyra minna og hægar.

Landfari, 19.6.2008 kl. 19:58

3 Smámynd: Kári Harðarson

Bíllinn er kannski verðlaus á markaði, en hann heldur verðgildi sínu 100% hvað varðar slit og endingu.  Einhver þarf að nýta bílinn, er þá ekki eins gott að það sé einhver sem keyrir mjög lítið.?

Mitt verðmætamat þarf heldur ekki að taka mið af verðinu á markaði.   Ég get til dæmis ekki skilað skyrtu sem ég er búinn að rífa úr umbúðunum.  Í búðinni er hún strax orðin verðlaus, en hún er óslitin og því jafn mikils virði og ný skyrta fyrir mér.

Þess vegna er ekki rétt að segja "verðlaus".

Svo er það "jeppatík".  Orðið tík er notað um litla bíla, og það er nú einu sinni kosturinn við þessa eyðslufreku jeppa að þeir eru engar tíkur þegar þeir lenda í árekstri.   Ég hef séð ummerki á slysstað eftir árekstur Volkswagen og Land Rover Discovery.  Jeppinn keyrði burt, þurfti bara að skipta um plastið á stuðaranum.  Fólksvagninn var horfinn upp að framrúðu.

Kári Harðarson, 20.6.2008 kl. 09:30

4 Smámynd: Kári Harðarson

Carlos, við fengum bílinn ódýrt á sínum tíma af því hann var bensín, ekki dísel.  Á þeim tíma kostaði dísel 50 kr og bensín 100 kr.  Þessi munur endurspeglaðist í söluverði jeppanna svo kaupin voru góð í þeim skilningi.  Ég var því alveg sáttur við kaupin.

Kári Harðarson, 20.6.2008 kl. 09:34

5 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

væntanlega kemur „verðlausi“ jeppinn manni álíka mikið milli staða og glænýi bíllinn úr kassanum. Fáránleg athugasemd.

Reyndar, með öryggi jeppanna, það er stungið svolítið gat á þá mýtu <a href="http://www.gladwell.com/2004/2004_01_12_a_suv.html">hér</a>.  Löng grein, en vel þess virði að þræla sér í gegn.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 20.6.2008 kl. 09:42

6 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

æi, garg, vitlaus hamur! hér er hægt að smella á þetta.

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 20.6.2008 kl. 09:43

7 identicon

Ég heyrði nýlega viðtal í útvarpi við kennara bílgreina í Borgarholtskóla um breytingar á bensínbílum í metanbíla.  Mér skildist að skólinn tæki að sér að breyta bílum fyrir 150 þús. kr sem er efniskostnaður, en tveggja daga vinna er hluti af námi nemenda um metanbíla.

http://www.bhs.is/skolinn/frettir/nr/393

http://www.bhs.is/bilar/metan.html

Mér skildist að hægt væri að spara um helming í eldnsneytiskostnaði og bensínbíll sem eyðir venjulega um 10 l á 100 km ætti að komast um 200 km á metantankinum.  Þegar fara þarf út fyrir borgina er ýtt á hnapp og bíllinn fer að brenna bensíni eins og hann var hannaður fyrir.  Líka er hægt að breyta díselbílum, en það er flóknara og dýrara. 

Ég er með Toyota Yaris  sem eyðir um 7 - 8 l af bensíni á 100 km í innanbæjarakstri og miðað við 9.000 km árskeyrslu tæki það mig 3 - 4 ár að borga fyrir búnaðinn (ef ég þyrfti bara að borga efniskostnað en ekkert fyrir vinnuna).  Ég held að nær sé fyrir mig að hjóla meira, enda þarf ég nauðsynlega að auka líkamlega hreyfingu.  

Geir Guðmundsson (IP-tala skráð) 22.6.2008 kl. 19:10

8 identicon

Sæll Kári,

Ég hef mikið verið að velta þessu fyrir mér og hef gert nokkrar árangurlausar tilraunir til að panta svona búnað erlendis frá.  Flest fyrirtæki hafa ekki fyrir því að svara einstaklingum.  En miðað við það sé ég hef séð þá kostar svona búnaður ca. 100 - 150þús (hefur líklega hækkað eitthvað eftir gengisfall síðustu daga).

Hér á landi er þó eitt fyrirtæki sem er aðeins að byrja á svona breytingum og það er Vélamiðstöðin.  Ég talaði við þá um daginn og þeir áætluðu kostnað við að breyta meðalbíl yfir í Metan ca. 1.000.000,- ISK !  Við þessi svör datt botninn alveg úr þessu hjá mér og verður líklega ekkert úr breytingum nema ég komist yfir búnaðinn erlendis frá.

En ég er sammála þér hvað það varðar að stjórnvöld þurfa að styðja við svona hluti ef þeir eiga að verða að einhverju.

Láttu mig vita ef þú finnur einhvern sem er til í að selja þér búnað ;-)

Örn Jónsson (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 09:29

9 identicon

Árið 2005 var lögum nr. 38 frá 2000 breytt á þann veg að innfluttir metanbílar fá niðurfelldan hluta að vörugjaldi að upphæð 240 þús. kr.  Sjá nánar:  http://www.metan.is/user/cat/show/69/311/

Spurning er hvort ríkið sé ekki tilbúið að styrkja bíleigendur um sömu upphæð ef þeir breyta sínum bílum í metanbíla, eða m.ö.o. að endurgreiða þeim hluta af vörugjaldinu sem þeir eru þegar búnir að borga.

Samstarfskona mín reyndi mikið að kaupa metanbíl frá Heklu fyrir rúmu ári síðan, en Hekla gerði hins vegar allt til að reyna að fá hana ofan af því að kaupa slíkan bíl, þannig að lokum gafst hún upp og keypti sér Toyota Prius.  Ég ræddi þetta einu sinni við Egill Jóhannsson forstjóra Brimborg og hann sagðist alveg skilja Heklu, því þetta er ný tækni fyrir bílaumboðin og bilanatíðni getur verið hærri og þjónustu stig lægra en fyrir venjulega fólksbíla. Fjöldskyldur gera hins vegar sömu kröfur til metan-einkabílsins varðandi áreiðanleika þjónustustig eins og gerðar eru til venjulegra fólksbíla.   

Geir Guðmundsson (IP-tala skráð) 24.6.2008 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband