Sjöfalt lyfjaverð

Um verð á lyfinu Terbinafin (Lamisil)

Í Velvakanda Morgunblaðsins í gær var sagt frá kaupum á lyfinu Terbinafin, 28 stk, 250 mg töflur.  Sá sem skrifaði (S.Þ.S.) fann lyfið ódýrast í Lyfjavali á 5.362 kr.  en dýrast í Lyfju á 7.499 kr.

Í tilefni af þessu sendi systir mín mér ljósmynd af kassanótu frá Kaupmannahöfn.  Mamma mín keypti lyfið þar skv. lyfseðli læknis frá Íslandi :

LamisilTerbinafin

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lyfið heitir Terbinafin HEXAL 250 mg. og thad eru 28 töflur í skammtinum sem kostar 62,90 DKK.  

Gengið núna er 11,393 svo lyfið kostaði 717 kr.  í Kaupmannahöfn.

Ódýrasta lyfið hér er sjö sinnum dýrara en í Kaupmannahöfn.  Í Lyfju er munurinn tífaldur.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Íslendingar eru íslendingum verstir, hér ræður græðgi ríkjum.

DoctorE (IP-tala skráð) 13.6.2007 kl. 11:36

2 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Það er ekkert sem afsakar svona. Takk kærlega fyrir að benda á þetta. Ætli Hanna Birna hafi ekki rétt fyrir sér? Veikt fólk getur ekki hætt að kaupa lyf þannig að ekki er hægt að þvinga lyfsala til lækkana með slíkum aðgerðum. Getur þú ekki farið með þetta lengra?

Guðríður Haraldsdóttir, 13.6.2007 kl. 13:15

3 Smámynd: Kári Harðarson

Ég sendi  póst um þetta blogg til velvakandi@mbl.is.

Nú er ég búinn að senda afrit til lyfjagreiðslunefndar (pall[at]lgn.is) og neytendasamtakanna (ns[at]ns.is).

Kveðja, Kári

Kári Harðarson, 13.6.2007 kl. 13:38

4 Smámynd: Kári Harðarson

Ef íslendingar pöntuðu meira á netinu myndu þeir veita innlendum kaupmönnum aðhald.

Menn panta ekki á netinu af því það er svo óútreiknanlegt hvaða meðferð varan fær.  Það þarf sérfræðing til að "díla við tollinn". 

Íslendingar eiga svo margt sameiginlegt með dreifbýlinu í Bandaríkjunum.  Þar er sveitó, skyndibitamenning, langt milli húsa, feitt fólk, mikill bílaáhugi.  Þar bæta menn sér upp fjarlægð í næstu verslun með póstverslun.   Af hverju ekki hér ?



Kári Harðarson, 13.6.2007 kl. 14:38

5 identicon

Varðandi tollinn, það er rétt það þarf snillinga. Ég bý í Svíþjóð og kom heim með norrrænu í fyrra í sumarfrí. Hafði keypt mér 20 ára gamlan tjaldvagn fyrir c.a. 45þús ísl. sem ég tók með. keyrði frá borði og heim til pabba og mömmu. Skildi svo vagninn eftir og fór utan um haustið.. Svo ákvað ég að fá vagnin skráðan og íslandi og sendi tölvupóst á tollinn. Þá var mér sagt að einstaklingar gætu nú varla staðið í þessu og ég yrði að ráða mér tollmiðlara. Mér fannst það hart og fann á endanum eyðublöð á netinu og fyllt þau út eftir bestu getu. En vantaði þó staðfestingu á að vagnin væri komin til landsins og kvittanir fyrir flutningi, (hann var bara aftan í bílnum þegar ég kom til landsins) Ég gafst upp á þessu á endandum en skrifað þó sýslumanni bréf þar sem ég reiknaði aðfluttningsgöld og VSK og bauðst bara til að greiða þetta beint því eyðublöðinn og skiffinnskan væri (eins og stafstúlka tollsins sagði) ekki fyrir leikmenn. En sýsli sagði nei, og vagin stendur heima hjá mömmu og pabba á sænskum númerum og býður framtíðar, Kannski tollarar komi einhvern daginn og sæki hann.   

Sigurður Þór Guðmundsson (IP-tala skráð) 13.6.2007 kl. 14:47

6 identicon

.... það ku vera dýrt að prenta íslenskar notkunarleiðbeiningar !

Kári P. Ólafsson (IP-tala skráð) 13.6.2007 kl. 15:04

7 Smámynd: Hlynur Þór Magnússon

Mér er það ákaflega minnisstætt, þegar kona nokkur, sem var í forsvari hjá innflytjendum lyfja, sagði blákalt í sjónvarpsviðtali að mismunurinn fælist að mestu eða öllu leyti í kostnaðinum við prentun fylgiseðla á íslensku. Fyrir þá sem þekkja nokkuð til prentunar - ég tel sjálfan mig í þeim hópi - hefði hún eins getað reynt að útskýra muninn með ástandi þörungagróðurs og meðalþyngd silunga í Þiðriksvallavatni á Ströndum.

Hlynur Þór Magnússon, 13.6.2007 kl. 18:26

8 Smámynd: Gunnar Ásgeir Gunnarsson

Ætli þetta sé ekki Landbúnaðinum að kenna.  Prófessor sem ég þekki telur vöruverð á Íslandi sé hátt af því að landbúnaðarvörur séu svo dýrar en það muni allt lagast þegar óheftur innflutningur fæst 

þetta fæst allt mjög ódýrt austan að.

Gunnar Ásgeir Gunnarsson, 13.6.2007 kl. 23:58

9 Smámynd: Sigurjón

Jú, hengjum bændur fyrir að lyfjaverð er svo hátt hér á landi!

Sigurjón, 17.6.2007 kl. 03:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband