Hollensku neytendasamtökin: Ekki kaupa Vista

Hollensku neytendasamtökin hafa ráðlagt fólki að halda sig frá Microsoft Vista vegna þess að óánægðir neytendur hafa ekki fengið að losa sig við Vista og fá  gamla Windows XP uppí í staðinn. 

Fulltrúi samtakanna segir að Vista sé einfaldlega ekki tilbúið, þeir séu nú með 5000 kvörtunarmál í meðferð.  Hollenskir bloggarar svara sumir á móti að þetta sé stormur í vatnsglasi því Vista virki á nýjum tölvum, þetta séu aðallega vandamál þeirra sem hafa sett Vista á eldri vélar.

Vandinn er samt líka að sumar nýjar vélar voru aðeins ætlaðar fyrir Vista  og það vantar því "drivera" fyrir XP ef mönnum snýst hugur.  Þetta ber að hafa í huga ef fólk ætlar út í búð á næstunni..

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég keypt mér tölvu sem kom með Vista - mér var nokk sama þar sem hafði hugsað mér að setja inn gamla góða XP ef mér líkaði ekki við vista. En núna 4 mánuðum seinna er staðan þannig að ég hata vista og get ekki sett inn XP þar sem það vantar einhverja drivera fyrir harðadiskinn af því að ég er með SATA disk skilst mér. Og þar sem að ég er ekki útlærður tölvumaður að þá er þetta vandamál vaxið mér yfir höfuð og ég sit uppi með vista.

Hlynur Þorleifs (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 08:28

2 Smámynd: Jón Ragnarsson

Well, ég setti upp Vista á 2 ára vél sem keyrði XP áður, og er auk þess frekar "non-standard" (Fujitsu-Siemens) og so far hefur þetta virkað betur en XP. En í sjálfu sér er fátt sem Vista hefur fram yfir XP. 

Bara ef Photoshop keyrði á linux....  

Jón Ragnarsson, 16.10.2007 kl. 10:10

3 Smámynd: Þór Sigurðsson

"Virkar" er stórlega orðum ofaukið. Nýja vélin mín er keyrandi Vista 64 og það eru atriði í stýrikerfinu sem eru til vandræða sem ættu bara alls ekki að koma upp ef einhver hugsun hefði verið lögð í þetta. Þegar ég fékk nýju vélina, þá gerði ég þau mistök að setja inn Vista 32 á ferðavélina til samræmis. Þar virkar næstum ekkert. Skráarréttindi brenglast, stýrikerfið fer að gleypa CPU og I/O í að því er virðist ekki neitt (og þar af leiðandi hægvirkara en það ætti að vera) og það versnar eftir því sem maður notar þetta lengur. Þú þarft að endurnýja mikið af hugbúnaðarflotanum fyrir nýtt stýrikerfi, forrit sem virkuðu á stýrikerfinu þegar þú fékkst það gera það ekki nedilega í dag osfrv.

Eins og ég sagði á mínu persónulega bloggi: "Hið þriðja sem ég hata þessa dagana er Windows Vista. Það er reyndar ekkert bundið við þessa dagana, það er constant. Ef Microsoft væri bílaframleiðandi, þá væri Windows Vista samansafn af ónýtum og beygluðum varahlutum, klöstruðum saman með UHU-lími og látið líta út eins og Porsche. Þegar þú síðan sest upp í herlegheitin sem lykta af spray-on rósailmi og setur í gang, þá springur allt í loft upp í andlitið á þér."

Reyndar virkaði XP ekkert betur, bara öðruvísi.

Ég er þakklátur fyrir að geta ræst Linux á vélinni til að halda geðheilsu

Þór Sigurðsson, 16.10.2007 kl. 10:25

4 identicon

Þessu ótengt en líka frá Hollandi, eitthvað sem þér gæti fundist áhugavert.

http://gadgets.boingboing.net/2007/10/15/switchbike-city-bike.html

JBJ (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 10:53

5 Smámynd: Kári Harðarson

Þetta hjól er súpersniðugt.  Það hlýtur að vera aukaþyngd samfara þessum búnaði en kannski ekkert óyfirstíganlegt.  Það sem fólki dettur í hug !



Kári Harðarson, 16.10.2007 kl. 11:40

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég er náttl. bara svona venjulegur notandi og á lappa með Vista. Hef verið ánægð með það sem snýr að minni notkun. Hef ekki skilning á ýmsu því sem þið nefnið en hef heyrt þetta frá klárara fólki en mér að þetta sé óspennandi.

Ásdís Sigurðardóttir, 16.10.2007 kl. 12:06

7 Smámynd: Kári Harðarson

Gott að það er ekkert vesen hjá þér.  Sennilega enda allir með Windows Vista á endanum af því alllir kaupa alltaf Windows  - en mér sýnist fólk ekki ætti að endurnýja tölvuna fyrr en nauðsynlegt er.  Vonandi skánar ástandið á Vista þegar tímar líða.

Kári Harðarson, 16.10.2007 kl. 12:14

8 Smámynd: Jón Ragnarsson

Eins og ég sagði, er Photoshop eiginlega eina ástæðan fyrir því að ég er enn á Windows... Nei, Gimp er ekki enn nógu gott, fyrir okkur með ljósmyndadelluna... 

Jón Ragnarsson, 16.10.2007 kl. 12:19

9 identicon

"Ég keypt mér tölvu sem kom með Vista - mér var nokk sama þar sem hafði hugsað mér að setja inn gamla góða XP ef mér líkaði ekki við vista. En núna 4 mánuðum seinna er staðan þannig að ég hata vista og get ekki sett inn XP þar sem það vantar einhverja drivera fyrir harðadiskinn af því að ég er með SATA disk skilst mér."

 Ég hef sett XP upp á eina slíka vél, þá var hægt að finna AHCI í bios og setja það í off, þá virkar diskurinn eins og IDE diskur fyrir stýrikerfum, og þarf ekki sérstaka drivera, en verður aðeins hægari í staðinn. Annars eru til síður á netinu sérsniðnar fyrir margar vélar til að installa xp á ákveðnar vélar, þetta eru venjulega ekki mjög flókið og snýst um að linka á réttu driverana. 

 Ég verð þó að halda áfram mótmælum mínum um hvað vista sé ömurlegt. Held þetta sé sama nýjakerfissyndromið sem kemur alltaf upp, Menn vældu mikið yfir windows 98 og XP, sögðu að þetta væri óþurftardrasl sem engin þyrfti. Held að það sé svipað með vista, jújú það þarf aðeins öflugri tölvu og er ekkert rosalega mikið stórstökk, og er of dýrt að mínu mati og í of mörgum útgáfum. Þrátt fyrir þetta finnst mér vista mikil bót yfir XP að mörgu leiti, en er alls ekkert gallalaust. 

Ævar Örn Kvaran (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 14:24

10 identicon

Sammála Ævari með að þetta sé nýjakerfissyndromið, ég fíla kerfið alveg ágætlega, viðurkenni samt að ég var í pínku tíma að venjast og eða finna hluti... en það er bara gaman

DoctorE (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 14:56

11 identicon

Það er búið að laga kóperingarvandamálið, og afritaði ég nýlega 200 þúsund skrár í einu án vandræða, einnig er búið að laga slatta af hraðavandamálum, en mestu vandræði vista hafa verið seinagangur vélbúnaðarframleiðenda í að smíða almennilega drivera. Þetta hefur stórlagast frá því að vista kom út í nóvember á síðasta ári. 

Ég mæli þó enn með mac os frekar en windows, en vista er án efa bót í máli frá xp 

Ævar Örn Kvaran (IP-tala skráð) 16.10.2007 kl. 20:30

12 Smámynd: Hallgrímur Egilsson

Fáið ykkur MAKKA!

Hallgrímur Egilsson, 16.10.2007 kl. 21:06

13 identicon

"Fáið ykkur MAKKA!" Held að það sé hin raunverulega langtímalausn, og ætla ég að fá mér mac pro þegar næsta útgáfa kemur með almennilegum skjákortum, en þegar ég þarf að keyra windows, mun ég keyra vista.  

Ævar Örn Kvaran (IP-tala skráð) 17.10.2007 kl. 11:07

14 Smámynd: Kári Harðarson

Æi, ég heyri þetta allls staðar.  Kollegar mínir hér í Frakklandi sem ekki nota Linux nota Makka.  Mér finnst alveg magnað að sjá að vélin er svo vinaleg við þá, svo opna þeir glugga og keyra Emacs og Python eins og ekkert sé, þetta fylgir vélunum enda eru þær alvöru fjölnotenda Unix vélar.

Kári Harðarson, 19.10.2007 kl. 07:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband