Hamarinn var góður

Mikið hafði ég gaman af þáttunum "Hamarinn".  Þeir voru í sama gæðaflokki og besta danska eða enska sjónvarpsefni sem ég hef séð.  Leikararnir léku vel, mér fannst ég hafa kynnst söguhetjunum, þær voru það trúverðugar.

Ég óska öllum  sem að þáttunum stóðu til hamingju.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Offari

Mér fannst endirinn vera sorglegur og það fylgdi ekki söguni hvort Hamrinum væri bjargað.

Offari, 27.10.2009 kl. 13:35

2 Smámynd: Kári Harðarson

Mér fannst tilbreyting að "vondi kallinn" skyldi bara vera venjulegt fólk sem lendir í hörmulegum aðstæðum en ekki einhver psycho með fólk læst ofaní kjallara.

Kári Harðarson, 27.10.2009 kl. 13:51

3 identicon

Ég er sammála. Það sem mér fannst líka áhugavert að sjá er hversu mikið íslensku myndatökufólki hefur farið fram. Mikið af flottum "skotum", lýsing oftast mjög góð og virkilega vel gert í því að ná fram dramatísku andrúmslofti.

- grettir (IP-tala skráð) 27.10.2009 kl. 15:19

4 identicon

Ég skal taka undir fyrirsögnina.

Sigurjón Pálsson (IP-tala skráð) 27.10.2009 kl. 17:15

5 Smámynd:

Já ég get í flestu tekið undir það en fannst hann samt dálítið endaslepptur og botnlaus.

, 27.10.2009 kl. 18:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband