Miklabraut - Kringlumýrabraut eftir breytingar

Sjálfstæðismenn hafa talað um að gera mislæg gatnamót þar sem Miklabraut mætir Kringlumýrarbraut.

Ég tók eftir því að þegar Hringbrautin var færð litu teikningarnar miklu betur út en útkoman.

Teikningarnar sýndu fólk á gangi með barnavagna og veggjakrotið var víðsfjarri.  Raunveruleikinn er ekki þannig.  Steinsteypumannvirki laða ekki að sér sætar stelpur með barnavagna.

 

Hér má sjá hvernig sjálfstæðismenn hafa hugsað sér nýju gatnamótin hjá Kringlunni:

teikningin

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér má svo sjá hvernig svona gatnamót líta út þegar þau hafa verið byggð:

raunveruleikinn

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Mig langar ekki í göngutúr eða hjólatúr þarna.  Ef ég er að misskilja eitthvað, hafið þá endilega samband.

Kveðja, Kári

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Fríða Dalkvist

mjög, mjög, mjög góður punktur. Væri kannski í lagi að hjóla ef maður hjólar hratt en ekki að labba í rólegheitum með barnavagn...

Jóhanna Fríða Dalkvist, 8.3.2007 kl. 13:15

2 Smámynd: birna

ég flyt í burtu áður en þetta gerist

birna, 8.3.2007 kl. 20:33

3 Smámynd: Þuríður Ósk Gunnarsdóttir

Þetta er alveg hryllilegt og enn meira slys en þessi hryllingur sem settur var niður í bæ. Annars var ég að rétta að það væri búið að ákveða að leggja Kringlumýrabrautina í stokk svo að það myndi ekki koma að þessu. Að nú væri búið að ákveða það. Er það ekki sem sagt ekki rétt? Er einmitt búin að vera að lesa með hryllingi þessar spár um aukna umferð og öll áætluðu nýju umferðarmannvirkin sem á að setja upp til að stemma stigu við 40-50 % áætlaðri aukningu á umferð til 2024. Úff 8 akreinar eftir Miklubrautinni, mislæg gatnamót upp eftir öllu osfrv.

Þuríður Ósk Gunnarsdóttir, 8.3.2007 kl. 22:28

4 Smámynd: Maron Bergmann Jónasson

Ég vorkenni nú bara fólkinu sem býr í blokkunum við Bólstaðarhlíðina og efstu blokkunum við Álftamýrina það hlýtur að verða grýðarlegur hávaði frá umferðinni sem verður ennþá hraðari heldur en hún er núna

Maron Bergmann Jónasson, 9.3.2007 kl. 11:24

5 Smámynd: Björn Hermannsson

Þetta er góð ábending hjá félaga mínum Kára

 Ég vildi bend á eitt í sambandi við þessi gatamót en ég á leið um þau daglega.  Eftir síðustu lagfærinar sem gerðar voru fyrir ca 2 árum eru ekki miklar tafir á umferðinni suður/norður á morgnana.  Auðvita tekur þetta aðeins lengri tíma en utan annatíma en mér finnst það ekki óeðlilegt.  Því spyr ég af hverju þarf þessi mislægu gatnamót er þetta ekki allt of stór framkvæmd á þessum stað.  Á ekki frekar að leggja áherslu á Öskjuhlíðagöng og setja Miklubrautina í stokk við Klambratún.  E.t.v. eiga austur/vestur fara í meiri erfiðleikum að komast leiðar sinnar en við suður/norður fólk. 

björninn

Björn Hermannsson, 9.3.2007 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband