Er hægt að læra þetta í viðskiptafræði?

Þegar við fluttum til Íslands frá Danmörku keyptum við íbúð í vesturbænum. Ég fór í búðina úti á horni og spurði hvort til væri beiskt marmelaði eins og bretar og frakkar búa til. Svarið var nei, bara þetta sæta danska.

Stuttu seinna kom ég aftur. Maðurinn sem ég hafði talað við kallaði á mig: "komdu aðeins með mér!"

Hann dró mig inn á skrifstofu og rétti mér krukku af bresku beisku marmelaði. Ég spurði: "eruð þið farin að selja þetta?"

Hann svaraði: "Nei, en við hjónin vorum í Bretlandi í síðustu viku, við fórum í Harrod's og mér datt þú í hug. Þú mátt eiga krukkuna".

Síðan þá er búðin farin að selja "Bonne Maman" sem er beiskt og gott.  Núna veit ég líka hvað maðurinn heitir. Hann heitir Friðrik Guðmundsson og búðin heitir Melabúðin.

Web_sRGB_Marmalade_Chivers Web_sRGB_Marmalade_BonneMaman

 

 

 

 

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Það er ekki að spyrja að feðgunum í Melabúðinni. Þetta er langbesta matvöruverslunin á höfuðborgarsvæðinu og þótt víðar væri leitað!

Lára Hanna Einarsdóttir, 9.1.2008 kl. 22:06

2 Smámynd: Elías Halldór Ágústsson

Ætli þessi góði maður væri fáanlegur til að flytja inn enskt sinnep?

Elías Halldór Ágústsson, 9.1.2008 kl. 23:31

3 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Vöruúrvalið í Melabúðinni er svo mikið og gott að stundum þyrfti að hleypa viðskiptavinum inn í hollum!

Ásgeir Kristinn Lárusson, 10.1.2008 kl. 09:27

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Er Melabúðin útibú frá Kjötborg?

Heimir Lárusson Fjeldsted, 10.1.2008 kl. 10:19

5 Smámynd: Vilhjálmur Þorsteinsson

Hinir tveir endar regnbogans í smásölu í Reykjavík heita Melabúðin og 10-11.  Melabúðin með ótrúlegt vöruúrval miðað við stærð, frábæra persónulega þjónustu, áhugasamt starfsfólk, og félagslega dýnamík á þröngum göngunum.  10-11 sem jafnan á ekki til algengustu vörur, með fullkomlega áhugalaus ungmenni í starfi sem endast að meðaltali í 3 vikur, núll þjónustu, og þrátt fyrir það okurverð.  Þetta er munurinn á fyrirtæki sem rekið er af áhuga og með sál annars vegar, og gerilsneydda, sálarlausa og metnaðarsnauða keðju hins vegar.

Vilhjálmur Þorsteinsson, 10.1.2008 kl. 12:44

6 Smámynd: Ingi Björn Sigurðsson

Snilldarbúð.. Ég hugsa að það sé ekki hægt að læra búðarrekstur eins og Friðrik stundar í Viðskiptafræði.

Ingi Björn Sigurðsson, 10.1.2008 kl. 14:08

7 Smámynd: Landfari

Friðrik getur verið hreint ótrúlegur þegar hann tekur sig til. Skemmtilegur karakter.

Varðandi það sem Vilhjálmur segir hér að ofan þá er alveg með ólíkindum hvað 10-11 breyttist til verri vegar eftir að Eiríkur sedi.

Landfari, 10.1.2008 kl. 18:34

8 identicon

Melabúðin meira en stendur undir lofinu sem á hana hefur verið borið, og ég get alveg lagt mitt á vogarskálarnar.

Einstaka manneskja kaupir bara mjólkurpott eða brauð, en flestir kaupa þarna allt til heimilsins og stíga sjaldan fæti í stórmarkaðina -- enda tekur fáar mínútur að koma þarna við og ekki þarf að fara annað, og verðlag er með hagstæðara móti.

Guðmundur Löve (IP-tala skráð) 10.1.2008 kl. 22:56

9 identicon

Guðmundur keypti Melabúðina þegar hann flutti úr Hagabúðinni (gengt Melaskóla, þar er sjoppa nú). Hann er og verður kaupmaðurinn á horninu og þetta innprentaði hann sonum sínum.

Talandi um það, ég vann sjálfur í Meló fyrir tuttugu og fimm árum síðan og tvö elstu börn mín unnu þar um stund áður en þau fluttu sig í Kaffitár. Nei, þetta lærist ekki í viðskiptafræðinni heldur í lífinu, þar sem þjónustulund og það að hafa gaman af því sem maður gerir erfist milli kynslóða.

Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 12.1.2008 kl. 12:40

10 identicon

Ég held að þetta fáist í Fjarðarkaupum. Ég er ekki frá því að ég hafi meira að segja keypt þetta þar.

Einar (IP-tala skráð) 18.1.2008 kl. 16:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband