Góðar hjólafréttir í HáErr

Háskólinn í Reykjavík rís nú í Vatnsmýrinni, rétt hjá Nauthólsvík.  Hver deild er í sér "pizzusneið", allar sneiðarnar snerta torg á miðju svæðinu. Hér er mynd af kjallaranum:

hr

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Rauða línan sýnir aðkomu niður skábraut sem fer undir húsið.  Gráa herbergið þar sem línan endar er litlir 300 fermetrar og þar er gert ráð fyrir hjólageymslum!  Búningsklefar og sturtur eru í brúna svæðinu undir miðjunni.  Þetta verður ekki betra séð með augum hjólreiðamanns.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sturla Snorrason

Þú er heppin að vera hjólamaður, nú eru þeir hættir við að gera göngin undir Þingholtið, varla fara þeir að bora Öskjuhlíðina og Kópavogsgöngin og allt situr fast við stíflaða hringbraut.

Sturla Snorrason, 4.5.2008 kl. 23:58

2 identicon

Jamm, þetta lítur mjög vel út. Ég fór einmitt að skoða þetta en rakst þá í "æ nei" hluta sögunnar. Þessar rendur sem sjást yfir svæðinu þýða víst að þessi hluti verður ekki smíðaður fyrr en í "seinni áfanga" sem er áætlaður  2010-2011. Ekkert svo langt í það svosem, en auðvitað hefði verið flott að fá þessa aðstöðu strax og við flytjum inn.

Stefán Freyr (IP-tala skráð) 5.5.2008 kl. 02:18

3 identicon

Nohh, þeir ætla að fara dönsku leiðina! :) Ég er nemandi í háskóla í Kaupmannahöfn og þar er risastór hjólakjallari svo hjólinu líður vel þar á daginn og er mun öruggara en úti. Þeir örfáu sem koma á bíl verða hinsvegar að leggja úti á malarstæði. Nágrannarnir, DR (ríkisútvarp danmerkur) gerðu hinsvegar þau mistök að gleyma hjólunum og eru í stökustu vandræðum því það flýtur allt í hjólum fyrir utan húsið og því ekki hægt að komast að hvorki á bíl né labbandi sumstaðar :)

Freyja (IP-tala skráð) 20.5.2008 kl. 20:54

4 Smámynd: Anna Runólfsdóttir

Þú kallar þetta pizzusneið, Kári, en það sér hver bóndi að þetta er eins og almenningur og dilkar í fjárrétt.

Anna Runólfsdóttir, 22.5.2008 kl. 23:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband