13.2.2007 | 10:55
Háskerpusjónvarp
Ég er mikill unnandi náttúrulífsmynda og hef verið það síðan
Jón O. Edwald talaði inn á þær í gamla daga.
Ég kem mér því vel fyrir þegar BBC þættirnir "Planet Earth" koma
á skjáinn á mánudögum.
Ég sé á vefnum, að þættirnir eru teknir upp í háskerpu (HDTV)
enda ætlaðir fyrir nýju sjónvarpstækin sem landsmenn hafa
sumir verið að kaupa.
Þetta er í fyrsta skipti sem mig langar að sjá háskerpu
útsendingu því þættirnir væru vafalítið enn tilkomumeiri
í meiri myndgæðum.
Þættirnir eru einnig teknir upp í breiðtjaldsformi (16:9)
sem danska ríkissjónvarpið er farið að senda út í fyrir þó nokkru síðan.
Nú spyr sá sem ekki veit: Hvenær skyldu útsendingar í breiðtjaldsformi
hefjast, og hvenær skyldu eigendur háskerputækja fá að njóta
einhverra útsendinga fyrir þau?
Meginflokkur: Tölvur og tækni | Aukaflokkur: Bloggar | Breytt 6.6.2007 kl. 11:08 | Facebook
« Síðasta færsla | Næsta færsla »
Efni
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (31.5.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 458819
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Eldri færslur
- Júlí 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Júní 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
- Apríl 2007
- Mars 2007
- Febrúar 2007
- Janúar 2007
- Nóvember 2006
- Október 2006
Færsluflokkar
Tenglar
Góðir hlekkir
- Tómas Atli Ponzi Ég hef alltaf litið upp til þessa manns.
- Verulega flottar Íslandsmyndir
- Jóhann Jökull Ásmundsson Svona góður húmor er vandfundinn
Bloggvinir
-
malacai
-
andres
-
halkatla
-
annabjo
-
kruttina
-
arndisthor
-
baldurkr
-
biggijoakims
-
veiran
-
birgitta
-
brjann
-
gattin
-
dofri
-
einarolafsson
-
ea
-
fhg
-
fsfi
-
valgeir
-
gretaulfs
-
laugardalur
-
gudbjorng
-
amadeus
-
goodster
-
neytendatalsmadur
-
haukurn
-
heidistrand
-
rattati
-
herdisthorvaldsdottir
-
hildigunnurr
-
drum
-
kjarninn
-
hlaup
-
don
-
instan
-
johannbj
-
jon-o-vilhjalmsson
-
jonaa
-
jonastryggvi
-
juliusvalsson
-
askja
-
photo
-
kristjanb
-
leifurl
-
larahanna
-
lara
-
madddy
-
marinogn
-
mortenl
-
manisvans
-
paul
-
palmig
-
ragnarfreyr
-
ragnhildur
-
ruth777
-
badi
-
hjolina
-
sij
-
siggisig
-
stefanjonsson
-
lehamzdr
-
svatli
-
sveinnolafsson
-
stormsker
-
saemi7
-
gudni-is
-
hreinsamviska
-
jonr
-
agustakj
-
hugdettan
-
astromix
-
olafurthorsteins
-
omarragnarsson
-
skari60
-
skrifa
-
thorsteinnhelgi
-
inami
-
thoragud
-
toti2282
-
arnid
-
bjarnihardar
-
tilveran-i-esb
-
hordurhalldorsson
-
kamasutra
-
sigurjons
-
tryggvigunnarhansen
-
toro
Bækur
Ómissandi bækur
Bækur sem ég myndi taka með mér á eyðieyju
-
Everett Rogers: The diffusion of Innovation (ISBN: 0029266718)
Þessi bók kom mér í skiling um að félagsfræði á erindi við tölvunarfræðinga -
Robert M. Pirzig: Zen and the art of Motorcycle Maintenance (ISBN: 0688002307)
Ég sé alltaf eitthvað nýtt í þessari bók
Athugasemdir
Ef þú kaupir þér sky áskrift í gegnum gervihnött þá nærðu þessum gæðum. Ég nánast hættur að horfa á íslensku stöðvarnar. Þú getur nálgast upplýsingar http://www.skykort.com/
Gunnar Gunnarsson (IP-tala skráð) 13.2.2007 kl. 14:00
Þú getur séð háskerpu-útsendingar m.a. frá BBC hjá Hátækni í Ármúlanum, þar eru sýnd dýralífsmyndbrot sem eru hreint út sagt stórkostleg!
Magnús V. Skúlason, 13.2.2007 kl. 21:51
Er einnig einn af þeim sem heilluðust ungir af þáttum sem þessum, sem að manni fannst þá vera hreint frábærir með þuli eins og Jón O. Edwald, Gylfa Pálson og fleiri góða menn, með áheyrilegar raddir, sem leiddu þessa þætti áfram sem í draumi að manni fannst þá. Meira að segja í svarthvítu og maður sat sem bergnuminn. Þættir BBC um jörðina eru ekkert annað en hreint listaverk og hollt öllum á að horfa. Myndi ekki skemma að hafa þetta í enn meiri skerpu, en sökum þess hve glæsilegir þessir þættir eru, lætur maður það ekki pirra sig. Gamli Bang& Olufsen garmurinn býður tæpast uppá háskerpu, en maður situr bergnuminn samt sem áður. Mætti vera meira af svona efni á stöðvunum í stað ömurlegra fáránleikaþátta og annars rusls sem manni finnst að geri mann að engu öðru en dómadags bjána að vera að kaupa áskrift að. Skora á alla að fylgjast með þessum þáttum frá BBC. Unglingssynir mínir tveir sem gera ekki miklar kröfur til sjónvarpsefnis og eiga það til detta inní ruslþættina, sitja heillaðir líkt og faðir þeirra yfir þessum frábæru þáttum. Vonandi kemur háskerpan fljótlega, en þá vonar maður einnig að úrval sjónvarpsefnis svona almennt fari þá líka að skána. Prison Brake, Bachelor og annað andsk..... rusl þarfnast ekki háskerpu. Ef eitthvað er mættu þess háttar þættir mín vegna vera úr fókus.
Halldór Egill Guðnason, 13.2.2007 kl. 22:51
Þú getur keypt þér gervihnattarmóttakara og þar með fengið háskerpu(hd-tv) sjónvarpsútsendingu. BBC sendir út mikið ef ekki allt sitt efni ólæst. Þú getur líka fengið þér áskriftargervihnattabúnað sem býður upp á þó nokkrar stöðvar í háskerpu fyrir utan BBC. Þeir á BBC voru t.d. ekki fyrir löngu að sýna Planet Earth í háskerpu á einhverri sjónvarpsstöðinni sinni en þeir þættir eru stórkostlegir. Mér finnst akkúrat eins og mér sé að dreyma eða ég sé að horfa á eitthvað óraunverulegt þegar ég horfi á þessa þætti. þeir eru svo rosalega vel teknir og vel gerðir þættir, þeir eru eins og eitthvað úr annar veröld, en samt fjalla þeir um plánetuna okkar. Verð nú samt að segja að erlendu þulirnir finnt mér betri og margt koma fram hjá þeim sem glatast í þýðingum, en þulir eins og Gylfi og Jón standa samt alltaf fyrir sýnu og tengjast margar af mínum betri æsku minningum því þegar ég sat fyrir framan skjáinn, dolfallinn með galopinn munnin og slefandi af undrun
David Attenborough (IP-tala skráð) 14.2.2007 kl. 00:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.