Office pakkinn á útleið?

Helstu vörur sem Microsoft selur eru Windows stýrikerfið og svo Office pakkinn. Ég er næstum því hættur að nota Office pakkann og ég ímynda mér að þannig sé því farið hjá fleirum. 

Pakkinn samanstendur af forritunum: 
  • Word (Ritvinnsla)
  • Excel (Töflureiknir)
  • Outlook (Tölvupóstur)
  • Powerpoint (Glærusýningar)
  • Access  (Gagnagrunnur)
  • InfoPath (Eyðublöð hönnuð og útfyllt, fyrir fyrirtæki)
  • OneNote (Heldur utan um púnkta og skissur)
  • Publisher (Ritvinnsla fyrir bæklinga og fréttabréf)
  • Sharepoint (Skjalautanumhald á vef fyrir fyritæki)

Ég notaði fjögur efstu forritin reglulega. Hin hef ég prófað en aldrei haft þörf fyrir. Nú eru þessi fjögur forrit sem ég þót notaði líka á útleið hjá mér. 

Ég nota varla Word því ég prenta svo sjaldan á pappír. Ég nota oftar ritvinnsluforrit sem eru innbyggð í vefsíður, til dæmis á Gmail, Wiki eða Facebook. Þessi texti er skrifaður í Notepad. 

Outlook nota ég ekki því Google Mail er öruggara, einfaldara og sneggra. Ég get byrjað að lesa póst í Gmail áður en Outlook nær að opna innboxið. Outlook hefur aldrei verið einfaldað og stillingarar í því endurspegla tuttugu ára sögu þess. Mér hefur alltaf fundist leiðinlegt að setja Outlook upp, og reyna að finna hvar póstarnir mínir eru í raun og veru geymdir. (Eru þeir í .PST skrá eða .OST skrá eða bara á póstþjóninum? Nú þegar hægt er að fá terabæti af plássi út í bæ finnst mér ekki gaman af hafa áhyggjur af þessu lengur). 

Ég er með nett ofnæmi fyrir Powerpoint sem hefur hreinlega ekki breyst frá því það tók við af skyggnusýningum fyrir rúmum tuttugu árum. Það styður ekki hyperlinka, zooming interface, samvinnu eða annað sem mætti hugsa sér að endurbæta það með. Ég hef séð kynningar þar sem vefsíða var birt á skjávarpa og kynnirinn notaði page up og page down. Gerði sama gagn og Powerpoint. 

Excel nota ég ennþá ef ég þarf að reikna eitthvað út en ég þarf ekki alla möguleikana í því. Mér hefur alltaf fundist erfitt að reyna að nota það til að teikna gröf. 

Þótt ég noti ekki Sharepoint veit ég að mörg fyrirtæki eru að gera það. Sharepoint gæti orðið langlífasti hlutinn í Office pakkanum, en þá sem innanhúss vefur en ekki hugbúnaður sem er settur upp hjá hverjum notanda fyrir sig. 

Office pakkinn úreldist sérstaklega hratt nú þegar fólk vinnur meira með vef og smartsíma. Ég held að hann seljist áfram af því það er mikil hefð fyrir honum. Það þarf hins vegar engan Nostradamus til að sjá að pakkinn styður ekki við framtíðarsýn eins og hún er sýnd í bíómyndum eða jafnvel í kynningarefni frá Microsoft sjálfum þar sem fólk strunsar í gegnum flughafnir með töflutölvur og heldur myndfundi. 

Microsoft virðist vera að vakna af værum blundi og byrja að hugsa hlutina upp á nýtt með vörum eins og Surface og Windows 8. Ég held ekki að Office pakkinn sé hluti af framtíðarsýninni hjá þeim. Ef ég héldi utanum veskið hjá fyrirtæki í dag myndi ég spyrja hver þörfin er innanhúss áður en ég borgaði fyrir enn eina uppfærslu á þessum pakka fyrir hverja og eina PC tölvu í húsinu. 


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég hef ekkert fundið sem getur komið í staðinn fyrir Excel og Powerpoint, nota það síðarnefnda reyndar lítið. OpenOffice finnst mér vera drasl og ekki bjóða upp á neina möguleika.

Ég nota Outlook aldrei, notast mest við tölvupóst beint í gegnum vafrann. Ég legg ekki í að geyma gögn á þessum hýsiþjónustum, a.m.k. ekki dýrmæt og persónuleg gögn. Maður veit aldrei hve gott öryggið er. Ef ég þarf að geyma tölvupósta vista ég þá einfaldlega sem ritvinnsluskjöl.

Theódór Norðkvist, 1.7.2012 kl. 22:42

2 Smámynd: Theódór Norðkvist

Já, vildi bæta við að ef mönnum finnst Office dýrt er sniðugast að kaupa notaðar tölvur með það uppsett.

Theódór Norðkvist, 1.7.2012 kl. 22:44

3 identicon

Svo lítið mekileg skrif hér.  Það vita það allir , er það ekki, að það á ekki að nota tölvur til neins.  Allt sem þar fer fram er bara léleg söluvara sem gagnast engum nema þeim sem vill vita allt um alla !

Þess vegna er ég með þá tillögu að þið lokið tölvunni og skrifið ykkar hugsanir á pappír, þar sem enginn fær að vita neitt um hvað þið eruð að skrifa ! 

Eina sem þarf að athuga er að hafa blaðið ekki í sama lit og skriffærið setur á blaðið !

JR (IP-tala skráð) 2.7.2012 kl. 19:44

4 Smámynd: Steinarr Kr.

Ekki alveg sammála þér þarna, gruna að Office eigi eftir að þróast, eins og hann hefur verið að gera í síðustu útgáfum.  Það má segja að Microsoft sé hætt að nota "native" format fyrir skjölin sem verða til, núna eru þetta allt e.h. xml afbrigði, sem gerir all auðlæsilegra fyrir önnur forrit eða tæki.

Sjálfur nota ég allt nema Publisher og sé ekki að það minnki í bráð.  Access er t.d. mjög þægilegt sem skel á SQL gagnagrunna og auðvelt að setja upp, án mikillar SQL þekkingar og svo framvegis.  Gagnrýni þín á PowerPoint er alveg réttmæt og tel ég að önnur tól á markaði séu að fara að slá því við.

JR ætti síðan að finna sér önnur áhugamál.

Steinarr Kr. , 4.7.2012 kl. 16:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband