12.11.2009 | 16:19
Hvernig er hægt að skrifa bók um hjólreiðar? Allir kunna jú að hjóla....
Þetta er fáránleg tímaeyðsla fyrir lögregluna og á fjármunum skattgreiðenda, segir Mark Wallace, yfirmaður Sambandi skattgreiðenda, sem hefur það að markmiði að vekja berjast gegn misnotkun á almannafé.
Hvers vegna ekki bók um hjólreiðar fyrir lögreglumenn? Það er örugglega til lengri bók um lágmarks endurkast frá endurskini á bílnúmerum....
Þessi skatta baráttu samtök munu seint leggjast niður vegna verkefnaskorts. Þeim er auðvitað í sjálfsvald sett á hvað þau ráðast en samt vildi ég að þau hefðu valið verðugra skotmark. Sennilega hefur samtökunum þótt reiðhjól vera barnaleikföng og því óhætt að ráðast á notendur þeirra.
Fyrir 50 árum hefði vafalaust verið gert grín að bók sem fjallaði um hvernig hægt væri að hanna eldhús þannig að gott væri að vinna í þeim. "Það er hægt að afgreiða málið á einni blaðsíðu: Staður konunnar er bak við eldavélina. Af hverju að skrifa eitthvað meira niður?"
Ég hef séð bók um gönguferðir á fjöll sem er meira en 100 bls. (eftir Jón Gauta). Í henni er grein um mikilvægi þess að halda hita á fótunum og önnur um hvernig maður grefur sig í fönn. Þetta safnast þegar saman kemur. Einhver hefði líka getað spurt: "Hvernig er hægt að skrifa bók um það að fara í labbitúr?"
Það má spyrja hvort hið opinbera á að gefa út fræðslurit yfir höfuð? Ég svara því hiklaust játandi. Ég myndi vilja skoða eintak af þessari hjólreiðabók.
Hjólreiðabæklingur gagnrýndur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Hjólreiðar | Breytt s.d. kl. 16:22 | Facebook
Athugasemdir
Ég myndi vilja lesa um konuna á bakvið eldavélina
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 12.11.2009 kl. 17:00
Reiðskólar þóttu sumu fólki vera húmbúkk þegar þeir komu.Þyrfti ekkert að læra að sitja hest.
Hörður Halldórsson, 12.11.2009 kl. 18:04
PS: Bókin er "Gengið í óbyggðum" eftir Jón Gauta Jónsson (2004). Reykjavík: Almenna bókafélagið. Vel gerð bók.
Kári Harðarson, 12.11.2009 kl. 23:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.