21.12.2009 | 13:23
Það er leikur að - vinna á skurðgröfu?
Þegar ég sá ungan og fullfrískan mann hamast í XBOX leik eins og honum væri borgað fyrir það, datt mér í hug hvort ekki mætti gera fjarstýrðar skurðgröfur og fá gröfustjóra á þær sem ynnu heima við?
Háskerpu myndavélum yrði komið fyrir á gröfunni í stað stýrishúss. Hægt væri að setja upp stýrishús heima hjá starfsmönnum - eða þróa lausn sem ynni með Playstation eða XBOX sem stýribúnaði.
Það er ekki víst að ungir krakkar gætu löglega unnið á gröfu, en eldra fólk og fatlaðir gætu það vissulega. Sami starfsmaður þyrfti ekki að vinna á sömu gröfu allan daginn, hægt væri að skipuleggja stuttar vaktir eftir því sem hentaði.
Ef stýrishús þarf ekki að vera ofan á gröfunni myndu nýjir möguleikar opnast í hönnum. Armurinn gæti verið í miðri gröfunni og þyngdarpúnkturinn gæti verið lægri.
Ég sá grein í Economist um að herinn væri farinn að nýta neytendavarning í auknum mæli til hernaðar, svo sem XBOX til að þjálfa hermenn og GPS tæki ætluð óbreyttum borgurum. Kannski getur byggingariðnaðurinn einnig nýtt sér XBOX og PlayStation?
Reyndar datt mér í hug að kannski væri gott að geta keypt rafmagns- skurðgröfur nú þegar olían fer að klárast en það má skoða það seinna. Skurðgröfur fara ekki yfir stórt svæði svo hugsanlega mætti leggja í þær 6KV framlengingarsnúru og spara olíuna?
Flokkur: Tölvur og tækni | Breytt s.d. kl. 13:28 | Facebook
Athugasemdir
Margar skurðgröfur eru með myndavélum til að auka nákvæmni.
Einnig notar bandaríski herinn xbox fjarstýringar til að stýra róbotum.
http://technabob.com/blog/wp-content/uploads/2007/06/army_xbox360.jpg
Jóhannes Reykdal, 21.12.2009 kl. 14:02
Svalt.
Billi bilaði, 21.12.2009 kl. 22:57
John Cameron var búinn að útfæra þessa hugmynd ... http://www.imdb.com/title/tt0499549/ sem sannar að snillingar hugsa eins. Já, eða það sem Jóhannes Reykdal sagði.
Carlos Ferrer (IP-tala skráð) 23.12.2009 kl. 05:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.