NÚ ER ÉG HNEYKSLAÐUR!

Ég pantaði tíma eftir hádegi í dag hjá rakarastofunni Laugavegi 178.

Svo hringdi ég aftur og spurði:  "Hvað kostar herraklipping?"

"Það fer nú eftir ýmsu" var svarið.

"Ég meina bara venjulega herraklippingu, snyrta" sagði ég.

"Það er svo breytilegt."

"Eruð þið ekki  með neina verðskrá?"

"Ég má ekki vera að því að ræða einhverja verðskrár greinargerð við þig í símann, vertu blessaður!"

Maður inn á rakarastofunni skellti á mig!

Ég tek fram að þetta er stofan sem ég var vanur að fara á.  Ekki lengur.

 

 

PS: Ég gúglaði þessa stofu og fékk þessa síðu:

http://www.malefnin.com/ib/lofiversion/index.php/t93987.html

Ég dreg þá ályktun að eigandinn hafi lent í útistöðum við kúnna áður og ruglað mér saman við einn af þeim sem áttu eitthvað sökótt við hann.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þegar ég fór síðast til Kaupmannahafnar sá ég 100 krónu tilboð og í London 10 punda tilboð. Sá ég eftir að vera nýbúin að klippa mig fyrir tæpan3000 kall. Engin tilboð í gangi heima.Ég var 2006 í Köben og var því munurinn þrefaldur á þessari þjónustu.Klippingin í Köben hefur reyndar snarhækkað,  rokið úr 100 kr dk . í 100 kr dk.´semsagt farið úr 1000 kalli upp í 2500 kall íslenskar.

Hörður Halldórsson (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 11:38

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Ég fer bara til Villa Þórs og borga 3900 kall í hvert skipti, en fæ alveg listagóða klippingu og fer sæll og glaður frá honum í hvert skipti..

Óskar Þorkelsson, 20.5.2009 kl. 12:53

3 identicon

Ég fór í gær til Torfa Geirmunds(rétt hjá Hlemmi) og fékk fína herraklippingu fyrir 2900 kr.

Páll B (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 13:37

4 Smámynd: Jóhannes Reykdal

Rakarastofa Ágústar og Garðars Suðurlandsbraut 10. Klikkar ekki (ca. 3700kr minnir mig). :)

Jóhannes Reykdal, 20.5.2009 kl. 13:44

5 identicon

ég keypti mér hárklippur í Elko fyrir ca. 3 árum, kostuðu þá um 4000 kr., hef ekki reiknað sparnaðinn...

G.B (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 14:06

6 identicon

Ágæt sagan af konunni sem fór fyrir nokkrum árum á rakarastofu og spurði hvað dömuklipping kostaði. 5000 kr, var svarið. "En hvað kostar herraklipping?" 2000 kr, var svarað. Þá sagði hún: "ég ætla þá að fá herraklippingu".

Húnbogi Valsson (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 15:46

7 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

hvað varstu að ergja barberinn með svona spurningu - þú hlýtur að muna hvað þú borgaðir síðast ?

Jón Snæbjörnsson, 20.5.2009 kl. 17:16

8 Smámynd: Brjánn Guðjónsson

meinarðu að hann hafi ruglast á þér og Kolfinnu? síðast þegar ég heyrði þig tala hljómaðirðu ekkert sérlega kvenlega.

annars get ég alveg mælt með honum Jörgeni í Lindunum. þekki hann reyndar ekki sem klippara, enda hefur blessuð náttúran séð til þess að ég þarf ekki að sólunda peningum í klipperí ;) ég get hinsvegar mælt með honum sem samviskusömum og vandvirkum eðal náunga.

Brjánn Guðjónsson, 20.5.2009 kl. 19:05

9 Smámynd: Hlaupasamtök Lýðveldisins

Ég sé í hendi mér að hann hefur heyrt að hér var einn af þessum s.k. neyslunerdum á ferðinni og verið snöggur að ljúka samtalinu. Ég mæli með Fausto á Hverfisgötunni ef menn hafa þolinmæði til að hlusta á langar veiðisögur.

Hlaupasamtök Lýðveldisins, 20.5.2009 kl. 20:24

10 Smámynd: Kári Harðarson

Fór í Hárflikk til Pálínu við Lönguhlíð.

Hún klippti mig vel fyrir 2800 krónur. Allt er gott sem endar vel.

Kári Harðarson, 21.5.2009 kl. 21:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband