Hvernig gengur hjá Vista ?

Hér er markaðshlutdeild hinna ýmsu stýrikerfa Microsoft:

osbusiness

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það væri synd að segja að Windows Vista sé búið að ná mikilli útbreiðslu á þessu eina og hálfa ári síðan það kom á markað.

 

Heimild PC Pitstop 


Ég fann Trek hjól í Vesturbænum...

Ég fann stórt silfurlitað Trek reiðhjól hjá Hótel Sögu föstudagskvöldið 16.maí.  Þetta er dýrt og fínt hjól, með dempara að framan, vökva- bremsum, dáldið mikið rispað.  Hringdu í síma 862 9108 ef þú kannast við gripinn.

Ég hringdi í lögregluna en skiptiborðið fyrir tapað fundið er lokað um helgar.  Svo setti ég upp tilkynningu í Melabúðina, og ég kom við á bensínstöð á Melunum en þar sagði afgreiðslumaðurinn að einhver hefði komið og spurt eftir fínu Trek hjóli.  Hann hafði ekki skilið eftir nafnið sitt svo ekki gat ég hringt í hann.

Síðast hringdi ég í Örninn sem selur Trek og sagði þeim stellnúmerið -- sem er grafið í reiðhjól undir fótsveifaröxlinum -- það var ekki á skrá.

Ég hef lært af þessari uppákomu að ef ég vil að fólk skili mér eigum mínum er ágætt að merkja þær.  Ég tók mig til og merkti hjólið mitt með nafni og símanúmeri.  Ég legg til að aðrir hjólakappar geri slíkt hið sama.

Ég hef hringt áður í lögregluna þegar svona lagað kom upp á, spurt hvort einhver saknaði hjóls með ákveðnu stellnúmeri.  "Við skráum ekki stellnúmer, komdu bara með hjólið og við setjum það í geymsluna".  Ég spurði af hverju stellnúmer á óskilahjólum væru ekki skráð.  Það stóð ekki á svari: "Þau eru svo mörg".

Lögreglan getur því ekki hringt í eigendur ef hjólin þeirra komast í leitirnar, menn verða að mæta reglulega og róta í gegnum hundrað hjól í kös.  Ég skil ekki af hverju lögreglan reynir ekki að koma hjólum til eigenda sinna.  Í bænum mínum í Bandaríkjunum afhenti lögreglan sérstök skilti með númeri sem hægt var að setja á hjólin, eins og bílnúmer.   Sennilegasta skýringin er að lögreglan selur hjólin á uppboði á endanum svo hún tapar á því að vinna vinnuna samviskusamlega.

 


Til fyrirmyndar

Ég hef keypt plokkfisk frá Grími kokki og verið ánægður með hann.  Um daginn keyptum við fiskibollur frá sama fyrirtæki en þær voru þurrar og bragðlitlar.  Ég sendi tölvupóst og lét vita.

fiskibollur

 

 

 

 

 

Ég fékk samstundis afsökunarbeiðni og ekki nóg með það, heldur sárabætur; heimsendan kassa á dyrapallinn sem í voru ljúffengar fiskibollur (þeir virðast hafa endurbætt uppskriftina) og sýnishorn af annari framleiðslu fyrirtækisins.

Mér er ljúft og skylt að tilkynna að Grímur kokkur er í náðinni hjá mér.

 Grimur_kokkur_logo_120p


Á legsteini: Hann var í rétti

Ég var næstum keyrður niður í gær, þegar ég fór yfir Grensásveg eftir gangbrautinni meðfram Miklubraut.

Bíll hafði lagt af stað út á gatnamótin yfir Miklubraut en komst ekki yfir áður en rauða ljósið kom og þegar umferðin fór að streyma eftir Miklubraut var hann fyrir.  Hann tók á það ráð að bakka á fullri ferð til baka, yfir gangbrautina þar sem ég var að hjóla yfir.  Það munaði sentimetrum að hann hefði plægt mig niður.  Hann stöðvaði,  ég stöðvaði og við horfðum hvor á annan.  Ég nennti ekki að ræða við hann, það var ekkert að segja.

Örugglega ágætis kall, bara enn einn stjórnleysinginn.  Af hverju leyfði hann sér að leggja af stað yfir gatnamót sem hann gat ekki klárað að fara yfir?  Af hverju bakkaði hann yfir gangbraut án þess að líta við?  Hefur hann enginn prinsipp?

Sem ég skrifa þetta heyri ég vælið í dekkjunum þar sem einhverjir stjórnleysingjar æfa sig í ofsaakstri á Hringbrautinni við JL húsið...

 


mbl.is Keyrð niður á merktri gangbraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rocket Science

Áður en tölvufræðingar fengu nördastimpilinn afhentan var hann í eigu þeirra sem smíðuðu rakettur. Á ensku er sagt "It's not exactly Rocket Science" ef venjulegt fólk á að geta skilið viðfangesefnið.

Frægasti rakettu vísindamaðurinn var án efa Werner Von Braun sem kenndi milljónum manna að telja niður á ensku.

von braun nasa

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Margir myndu líka benda á Goddard:

goddardrocket_orig

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn í Reykjavík var að skjóta upp eldflaug. Við höfum eignast okkar eigin Werner Von Braun sem er Dr. Ágúst Valfells.

agust

 

 

 

 

 

 

Til að koma flaug á loft þarf samstarf milli faga.  Eldsneytið kallar á efnafræði, flaugin sjálf er völundarsmíði, flug hennar kallar á flugfræði og hönnun á rakettumótór fer inn á eitthvað sem heitir "fluid dynamics".  Rakettunámskeiðið reyndi því á sitt lítið af hverju, ekki bara grufl innan eins fags.

Eldflaug Háskólans fór ekki nema í 1.350 metra hæð sem er rétt upp fyrir toppinn á Esjunni. Það er langt frá því að snerta geiminn sem byrjar þar sem lofthjúpurinn endar í 100 km hæð. Samt er það meiri hæð en flugeldarnir á gamlárskvöld komast í, sem er yfirleitt undir hundrað metrum.

Það er búið að vera gaman að fylgjast með þessu verkefni í húsinu -- og öðru hvoru hefur fundist undarleg lykt þegar hin og þessi efnablanda var prófuð.

Ég er svoldið stoltur af skólanum mínum þessa dagana.  Flottar hjólageymslur undir nýja húsinu, spennandi námskeið.  Þetta heldur áfram að vera með skemmtilegri vinnustöðum sem ég hef unnið á.

Nú er spurning hvort nýfengin rakettuþekking í skólanum getur nýst við eitthvað. Hvernig væri að hanna flugelda fyrir næsta gamlárskvöld sem fara hærra, eru stærri og nota reyklaust púður? Ég sé varla hvernig hægt er að toppa fyrri gamlárskvöld nema með einhverju slíku.


Don't ask, don't tell.

Spök kona sagði í ræðu sem ég heyrði í vikunni að jafnvel neikvæð afskipti af  unglingi væru betri en engin.  Þeir sem fá alls engin afskipti veslast upp.

Í framhaldi datt mér í hug :  Man lesandinn til þess að hafa lesið um afstöðu  borgarstjóra, eða borgarstjórans á undan, eða þar á undan, til hjólreiða og  hjólreiðafólks?  Ég giska á að svarið sé nei.  Þessi málaflokkur er algerlega  afskiptur.  Borgarstjórarnir gætu ekki sent reikning upp á eina krónu fyrir  vinnu í þágu hjólreiðamála.

Að vísu eru gangstéttar og útivistarstígar lagðir, en það eru aðskild verkefni,  ekki hluti af stærri stefnu.

Engar greinar eru skrifaðar af öðrum en hjólafólki.  Engin lög hafa verið sett  um hjólreiðar síðan á sjöunda áratugnum þegar ákveðið var að reiðhjól skyldu  hafa keðjuhlíf. Flestir hjólreiðamenn eru því lögbrjótar strax og þeir hjóla af  stað enda hafa keðjuhlífar lítið verið notaðar síðan tíugírahjólið kom á markað  á áttunda áratugnum.

Hjólafólkið í Reykjavík er að því leyti eins og hommarnir í bandaríska hernum að  um þá gilda engar reglur, bara óskrifuð lög: "Don't ask, don't tell".  Við tölum  ekki um slíkt.  Hjólið bara og við horfum í hina áttina.

Fæstir vita að samkvæmt lögum á að hjóla á götunni.  Einhvern tímann var gerð  undanþága um að menn mættu hjóla á gangstéttum, nokkuð sem átti aldrei að leyfa.  Hugsunin var sennilega sú að týpískt hjólreiðafólk væri sex ára gamalt og þyrfti  að verða samferða mömmu og pabba eftir stéttinni.  Það er ekki minn  raunveruleiki í dag. Ég er á fimmtugsaldri og hjóla á 25 km hraða til og frá  vinnu.  Það er fimm sinnum hraðar en gangandi vegfarandi enda er þeim meinilla  við það þegar ég skýst fram úr þeim, lái þeim hver sem vill.

Margir halda að það eigi að hjóla á gangstétt.  Fyrir vikið er flautað á  hjólamenn sem fylgja lögum og fara á götuna.  Einhvers staðar á ég sekt fyrir að  hafa hjólað á gangstétt þegar ég var táningur í Reykjavík.

Það er engin leið að hjóla löglega í Reykjavík.  Þú verður að brjóta reglur.  Samkvæmt lögum er bannað að hjóla yfir gangbrautir en þær eru samt ómissandi  hluti af gangstéttum.

Stundum vantar gangstéttir, stundum enda þær snögglega.  Stundum byrjar  hjólaslóði og endar aftur 50 metrum síðar.  Stundum er hann merktur hjólum hægra  megin og gangandi vinstra megin þannig að maður þarf að taka fram úr gangandi  fólki hægra megin þótt venjan sé að taka eigi fram úr vinstra megin.

Biðskyldur bíla eru oft vitlausu megin við gangbrautir svo bílarnir nema staðar  ofan á gangbrautinni.  Þar að auki staðnæmast bílar oft með afturdekkin á stöðvunarskyldu í stað þess að stöðva fyrir framan hana.  Ég hef aldrei séð  lögreglu skipta sér af, frekar en af þeim sem leggja á gangstétt og loka þar með "hjólastígnum".

Áður en við getum farið að tala um úrbætur þarf að búa til raunverulegt kort af  hjólaleiðum í borginni.  Reykjavíkurborg gaf út kort með hjólastígum en kortið  er skáldskapur, áróður fyrir eitthvað norrænt þing þar sem átti að sanna að hér  væri allt í himna lagi. Hefur einhver séð hjólastíg meðfram Hringbraut frá Suðurgötu út að JL húsi?  Ekki ég.  Samt er hann á þessu korti.

Aðrar þjóðir eiga stefnuskrá um hjólreiðar, um það hvernig hjólastæði eiga að  vera, hvernig ganga eigi frá leiðum þegar vegavinna er í gangi, frágangi við  gatnamót og svo framvegis.  Íslendingar eiga engar reglur.

Tvennt mætti gera strax.  Í fyrsta  lagi þarf að fylgja lögum og banna bílastæði á gangstéttum.

Í öðru lagi þarf að sjá til þess að bílar loki ekki gangbrautum með því að  staðnæmast ofan á þeim.  Hjólafólk sem fer meðfram aðalbraut þarf að stoppa á  öllum gatnamótum af því bílar stöðva ekki þar sem þeir eiga að stöðva.  Það er  óþolandi að þurfa að stoppa fyrir öllum sem ætla inná eða út af aðalbraut þegar maður ekur sjálfur meðfram henni - á gangstéttinni.  Ég er alltaf í órétti.gatnamot

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég er rauða örin á myndinni.  Á meðan ég þarf að hjóla á gangstétt meðfram aðalbraut eru bílar no.1 og 2 á myndinni óvinir no.1 og 2 í umferðinni.   Ef borgaryfirvöld geta minnkað hættuna af þeim væri strax betra að vera á hjóli.

 


Góðar hjólafréttir í HáErr

Háskólinn í Reykjavík rís nú í Vatnsmýrinni, rétt hjá Nauthólsvík.  Hver deild er í sér "pizzusneið", allar sneiðarnar snerta torg á miðju svæðinu. Hér er mynd af kjallaranum:

hr

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Rauða línan sýnir aðkomu niður skábraut sem fer undir húsið.  Gráa herbergið þar sem línan endar er litlir 300 fermetrar og þar er gert ráð fyrir hjólageymslum!  Búningsklefar og sturtur eru í brúna svæðinu undir miðjunni.  Þetta verður ekki betra séð með augum hjólreiðamanns.

 


Trackmania Nations

Hér er ókeypis Windows leikur sem ég rakst á.  Það er langt síðan ég hef séð jafn flottan og skemmtilegan leik sem kostar ekki neitt. 

 


Gamli miðbær, nýji miðbær

Ég veit að gamli miðbærinn er að drabbast niður.  Ég man líka að Kringlan var kölluð nýji miðbærinn.

Hér eru loftmyndir úr Google Earth af báðum þessum miðbæjum, báðar myndirnar eru teknar úr sömu fjarlægð og sýna því jafn stóran flöt.

Ég veit í hvorum miðbænum ég vil vera ....

gamlimidbaer

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

nyimidbaer


Sjö fræ ofbeldis

Mahatma Gandhi gaf Arun, barnabarni sínu lista yfir það sem samfélög ættu að forðast ef ekki ætti að koma til ofbeldis.

Stephen R. Covey, höfundur "Seven habits of highly effective people" kom með eftirfarandi skýringar á hverri aðvörun um sig.

Gandhi_studio_1931

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Auður án vinnu

Hér er átt við þá sem fá eitthvað fyrir ekkert - þá sem sýsla með markaði og eignir til að þurfa ekki að skapa verðmæti eða vinna heldur sýsla með fólk og hluti fram og til baka. Í dag eru til starfsgreinar sem byggjast á því að skapa auð án þess að vinna, búa til peninga án þess að borga skatt, hagnast á styrkjum án þess að leggja neitt að mörkum til þeirra, eða njóta góðs af því að vera ríkisþegn eða starfa hjá fyrirtæki án þess að taka á sig ábyrgð eða áhættu.


Ánægja án ábyrgðar

Aðalspurning hinna vanþroskuðu, gráðugu og eigingjörnu hefur alltaf verið: Hvað fæ ég? Mun þetta gleðja mig, mun þetta láta mér líða vel? Margir vilja ánægju án ábyrgðar samviskulaust, þeir yfirgefa jafnvel maka og börn til þess að geta "bara verið þeir sjálfir". En sjálfstæði er ekki æðsta þroskastigið, það er bara lítið skref á leiðinni til samhjálpar sem er æðsta stigið. Að læra að gefa og þiggja, lifa óeigingjarnt, sýna tillitsemi og nærgætni, það er markmiðið.

Auglýsingar hvetja forstjóra til að njóta lífsins áhyggjulaust af því "þeir eiga það skilið" eða "þeir hafa unnið fyrir því" eða "þeir vilja það, svo því ekki að láta undan og gefa eftir?" Skilaboðin eru: þú ert búinn að ná takmarkinu. Nú þarftu ekki samvisku lengur. Í sumum auglýsingum eru sextugir menn með þrítugum konum á leið á ráðstefnur. Hvað varð um eiginkonurnar? Hvað varð um reglur samfélagsins sem segja að framhjáhald sé ekki í lagi?


Þekking án drenglyndis

Of lítil þekking er hættuleg en mikil þekking án drenglyndis er miklu hættulegri. Þeir sem safna þekkingu án þess að hafa þroskað sig sem manneskju eru eins og fullur krakki á sportbíl. Allt of oft gerist það í háskólum að menn útskrifast með hausinn fullan af þekkingu en ekkert brjóstvit.



Viðskipti án siðferðis

Ef við leyfum hagkerfum að þróast án siðferðilegrar undirstöðu munum við enda með siðlaust samfélag og fyrirtæki. Sérhver viðskipti eiga að fara fram þannig að kaupandi og seljandi fái það sem honum ber. Gullna reglan er að allir aðilar þurfa að njóta góðs af viðskiptunum og réttlætis þarf að hafa verið gætt.

Fólk lendir í vandræðum þegar það segir að yfirleitt stundi það siðleg viðskipti. Það þýðir að einhver hluti viðskiptanna sé ekki í lagi. Fólk er með baktjaldamakk, leynilíf sem það felur jafnvel fyrir sjálfu sér og útskýrir einhvern veginn að það sé undanþegið lögum guðs og manna.


Vísindi án manngæsku

Ef vísindin einblína á tækni og aðferðir enda þau sem árás á mannkynið. Tækni byggir á vísindum. Ef skilningur á tilgangi með jarðvistinni er ekki til staðar gera þau okkur fórnarlömb tækninnar. Við sjáum vel menntað fólk klifra upp metorðastiga vísindanna þótt þrep fyrir manngæsku vanti og stiginn halli upp að vitlausum vegg.

Langflestir vísindamenn sem nokkurntímann hafa verið til eru lifandi í dag og þeir hafa valdið sprengingu í tækni og vísindum. Við munum sjá fullt af tæknibyltingum en án manngæsku munum við ekki sjá framfarir fyrir mannkynið. Óréttlæti heimsins mun vera með okkur áfram.


Trúarbrögð án fórna

Ef við færum engar fórnir getum við verið virk í kirkjustarfi en samt óvirk í útbreiðslu fagnaðarerindins. Þá er ekki reynt að hjálpa fólki eða bæta úr vandamálum samfélagsins. Það kostar fórnir að þjóna öðru fólki, sérstaklega þarf að fórna sínu eigin stolti og fordómum.

Einu sinni fylgdist ég með hjónabandi þar sem erjurnar hljóðnuðu ekki. Mér varð þá hugsað að þetta fólk þyrfti að gefast upp gagnvart hvoru öðru og iðrast ef hjónabandið ætti að geta gengið. Þú getur ekki fundið fyrir samhug án þess að hafa auðmýkt. Stolt og eigingirni mun eyða sambandi manns og Guðs, manns og konu, manns og manns, sjálfs og sjálfs.


Stjórnmál án grunngilda

Án grunngilda er engin höfuðátt til að stefna að, ekkert til að treysta. Samfélög sem gera mikið úr stjórnmálamönnum en lítið úr grunngildum eru búin að gera viðkomandi mann að ímynd, markaðsvöru sem hægt er að selja og lítið annað.

Við sjáum stjórnmálamenn eyða milljónum í að byggja upp ímynd sína þótt hún sé grunn og innihaldslaus, til að kaupa atkvæði og fá embætti. Þegar þeim tekst það fáum við stjórnkerfi sem lýtur eigin lögmálum óháð hinum náttúrulegu sem ættu að vera við lýði, þau sem eru í stjórnarskránni, að allir séu skapaðir jafnir og með jafnan rétt til lífshamingjunnar.

Í kvikmyndinni "Boðorðin tíu" segir Móse við Faraó, "við viljum lúta Guðs lögum, ekki þér". Hann er að segja, "við munum ekki láta að stjórn manns sem styðst ekki við grunngildi". Í réttlátum samfélögum og fyrirtækjum eru náttúruleg grunngildi við lýði og jafnvel þeir hæstsettu verða að fylgja þeim. Enginn er yfir þau hafinn.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband