Öxl - Hurðarás

Hvað eiga bankar á Íslandi og tóbakssalar sameiginlegt?  Ef þú hófst  viðskipti við þá um tvítugt muntu fá svarið um fimmtugt.


Þeir sem hafa tekið húsnæðislán nýlega munu sjá eftir nokkur ár að  skuldabyrðin minnkar ekki sem skyldi.

Á fimmtugsaldri á erfiðasta hjallanum að vera náð og peningarnir sem  menn afla eiga að verða þeirra eigin til að leika sér fyrir.  Á  fimmtugsaldri fer mönnum að svíða mistökin.

Hér er slóð á Excel skjal.  Fylltu út í gulu reitina, láns upphæð og  afborganirnar sem þú treystir þér til að standa við, leiktu þér svo  með verðbólgureitinn og fylgstu með grafinu hægra megin.

Það sem vekur athygli mína á grafinu er hvað lítil verðbólguhækkun  hefur mikil áhrif.

Í ræðu sinni á ársfundi Seðlabankans hafði Davíð Oddson orð á því  hversu margir gætu orðið gjaldþrota á næstunni.  Menn telja gjaldþrot  eins og banaslysin í umferðinni en þeir sem eru örkumlaðir komast ekki  í fréttirnar.

Mér datt í hug næsta nafn sem nota mætti á banka.  Nafnið er "Öxl - Hurðarás". 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Kári.

Við þetta mætti svo bæta að þeir sem tóku lán í erlendri mynd eða myntkörfu með íslenskum krónum  fá einnig sinn skerf af ráninu. Hækkun stýrivaxta og álag á viðmiðunarvexti er ekki beint að hjálpa til við lækka afborganir. Það er alveg makalaust hvað almennir borgarar eru dofnir fyrir þessu, menn bara borga og borga , með bros á vör..

Davíð Oddson er þó heiðarlegur að benda reglulega á hver vandinn er, ofþensla.

Sem sagt, ef almennir skuldarar vilja ekki verða gjaldþrota þá er eins gott að setja stopp á stórframkvæmdir amk 2-3 árin. 

Samlíkingin við tóbak er einmitt ágæt, bönkunum leiðst ekkert að halda uppi þenslu samber mikinn vilja til að fjármagna álver á Íslandi. Halda uppi fíkinni, selja og selja, skítt með afleiðingarnar, það eru bara einhverjir aðrir sem lenda í vandræðum.

Nei nú þarf nefnilega eitthvað annað en þjóðarsátt, venjulegt fólk þarf að taka höndum saman og setja þunga pressu á pólitíkusa sama hvaða flokki þeir fylgja.

Þeir sem hvetja til áframhaldandi ráns úr vösum okkar, þeir eiga skilið langt frí, ....mjög langt.

Jóhann F Kristjánsson (IP-tala skráð) 8.4.2007 kl. 19:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband