23.10.2007 | 09:19
Hvenær er nýjung nýjung?
Ég hef heyrt um póstkort sem eru sextíu ár að berast í hendur viðtakanda, en hér er fréttatilkynning frá Osta og smjörsölunni sem mér finnst smellin:
Á markaðinn eru komnir nýir íslenskir ostar, Sauða-brie og Geita-brie. Ostarnir eru hreint sælkerafæði og eru kærkomnin nýjung í íslensku ostaflóruna.
Sauða- og geitaostar hafa verið framleiddir í áraraðir í nær öllum löndum Evrópu og njóta þeir gríðarlegra vinsælda þar. Íslenski geitastofninn er afar sérstakur á heimsvísu þar sem stofninn hefur verið einangraður síðan á landnámsöld og er íslenski Geita-brie osturinn talinn vera einstakur vegna þessa.
Það er áralöng hefð fyrir notkun ostanna í ýmis konar matargerð í Evrópu.
Það er víst óhætt að segja að hefðin í Evrópu sé áralöng því hetjusögur Grikkja frá því fyrir Krist tala um geitaost, og Feta osturinn gríski er geitaostur þótt hann sé það reyndar ekki á Íslandi enda spurning hvort megi kalla þann ost Feta ost.
Frakkar hafa búið til geitaost frá því hann barst til Frakklands með Márum á áttundu öld.
Það er því stórkostleg hæverska að segja að "geitaostar hafa verið framleiddir í áraraðir" í Evrópu. Nær væri að segja árþúsundaraðir.
Það er viðbúið að þessi "nýung í matargerð" hefði borist fyrr í gúlagið ef hér væri ekki allt harðlokað og læst í landbúnaðarmálum.
Ætli þetta hæverska orðalag hjá Osta og smjörsölunni sé ekki komið til vegna þess að þeim finnst þeir sjálfir vera nokkur seint á ferð með "nýungina"?
Flokkur: Neytendamál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.