Dagbók: ósköp venjulegur laugardagur í Rennes

Ég er í krúttkasti yfir Rennes, borginni sem ég bý í eftir daginn í dag.  Það er  tuttugu stiga hiti, heiðskírt, logn og yndislegt veður. Ég vaknaði hægt við að  nágrannarnir voru að spila svo fallega á gítar.  Gluggarnir voru galopnir og ég  heyrði kurrið í dúfunum uppá þaki.

Ég fékk mér kaffi og baguette, svo labbaði ég út á aðalgötuna sem var full af  fólki. Fyrst kom par labbandi til mín með skilti sem á stóð "ókeypis faðmlög"  (Soulage Gratuit).  Þau föðmuðu mig bæði skælbrosandi. Strákurinn sagði að þetta  verið gott faðmlag, ég sagði sömuleiðis og að ég hefði ekki fengið faðmlag í  mánuð svo þetta hefði alveg tímabært.

Næst labbaði til mín par sem var að fara að gifta sig og spurði hvort ég vildi  skrifa heilræði til þeirra í bók sem það var með.  Vinir þeirra voru með þeim og  fólk horfði til þeirra brosandi.  Ég skrifaði, að hvort þeirra um sig ætti að  muna að elska sig sjálft og hafa sjálfsvirðingu, því þá gætu þau elskað og virt  hvort annað og aðra.

Ég labbaði aðeins lengra þar sem sirkúsinn var að kenna krökkum að labba á vír  og halda jafnvægi uppá stórum bolta.  Sirkúskallarnir voru í góðu skapi og  göntuðust við gamla fólkið sem þekkti þá greinilega.  Næst gekk ég að tjaldi þar  sem fólk var að sækja númerin sín fyrir víðavangshlaupið á morgun.  Hlaupið  heitir "Tout Rennes Cours", (öll Rennes hleypur).

toutrennescourt

 

 

 

 

 

Í tjaldi á næsta torgi var harmonikkuhátíð í gangi.  Ég er enginn harmonikku  unnandi en frakkar spila vel á harmonikku, það rifjaðist upp fyrir mér músíkkin úr  "Amelie" sem ég veit núna að var ekki eins mikil ídýllísering á frönsku lífi  eins og ég hélt.

P9220043

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég fór á stóra markaðinn og keypti kjöt og grænmeti.  Sá markaður er ótrúlegur,  með tuttugu metra kjötborð og óendanlegt úrval af kæfu og pylsum.  Annað eins  úrval af grænmeti og svo margar sveppategundir sem ég kann ekkert að elda.  Þar  var ungt fólk sem sýndi eldri konum virðingu með því að hleypa þeim fram fyrir  sig í röðinni.

P9150021

 

 

 

 

 

 

 

 

 

P9150034

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég fór næst á torgið í mínu hverfi, þar var komið tjald þar sem háskólarnir í  bænum voru að kenna krökkum um vísindi.  Ég sá tæki sem gat séð á hvaða hluta  tölvuskjás fólk horfði, á skerminum var mynd af fólki og það vakti mikla kátinu  þegar tækið mældi að mennirnir horfðu á bringu kvennanna, ofarlega.  Þarna var  líka hópur að kynna gerfihnattaáætlun Frakklands.  Vísinda og stærðfræðiáhugi  frakka er mikill, ég vissi ekki hvað þeir eru framarlega í menntamálum áður en  ég kom út.

Ég fór svo og keypti nýlenduvörur hjá kaupmanninum á horninu.  Fyrir utan búðina  var stelpa með kettling á öxlinni, og svo var kenndur gamall maður sem vildi  segja eitthvað við mig, en hann talaði óskírt svo ég sagði á bjagaðri frönsku að  ég væri ekki sleipur frönskumælandi.  Hann brosti út að eyrum, kyssti á mér  framhandlegginn og labbaði burt (hann var lágvaxinn).

Síðast fór ég á barinn í götunni minni og drakk einn bjór með nágrönnunum. Leffe  er góður bjór, sérstaklega úr krana.

Það þarf ekki að halda menningarnótt í bænum, allar nætur hér virðast vera það  sjálfkrafa.  Bærinn var sneisafullur af fólki og viðburðum, samt var þetta bara  venjulegur laugardagur.  Rennes er 200 þúsund manna borg, eins og Reykjavík.

Ég dauðkvíði fyrir að fara heim, því hér er lífið eins og í draumi. Fólkinu á  svæðinu tekst að halda í þær hefðir sem skipta máli þótt hér séu höfuðstöðvar  hátækniiðnaðar allt um kring. Hér eru geimflaugar og Citroen bifreiðar og  háhraðalestir framleiddar, en fólk fer á markaðinn og kaupir í matinn eftir sem  áður.


market_rennes_hi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þrátt fyrir þennan yndislega dag er ég svolítið niðurdreginn.  Ég kvíði því að  fara heim til Íslands, sérstaklega eftir fréttirnar þaðan í síðustu viku.  Það  sem stendur upp úr fyrir mig er, hvað margir sýndu mikla eiginigirni og vanhæfni  í starfi.

Nú trúi ég því að íslenska þjóðin eigi enga alvöru stjórnmálamenn, bara  samtíning af fólki sem er að reyna að lifa af og skara eld að eigin köku. Það er  enginn sem ég get virt, engar fyrirmyndir.

Það geta ekki alltaf allir verið eigingjarnir, við byggjum samfélag ekki upp  þannig. Ég vona að einhver gangi fram fyrir skjöldu  og geri eitthvað til að  gera Ísland að betri stað að búa á.  Ég er samt ekki vongóður.  Alvöru fólk eins  og Vigdís og Kristján Eldjárn eru ekki hvar sem er.

Ég er orðinn svo ofsalega þreyttur á fréttum um kaup og sölu á fyrirtækjum og  gengi þeirra og hver á hvað í hvaða fyrirtæki.  Þessir menn fljúga bráðum á  einkaþotunum yfir rústirnar af þjóðfélaginu okkar.

Sunnudagur.

Ég skrifaði textann fyrir ofan í gærkveldi.  Fyrirgefið þið hvað ég  er drungalegur en mér líður þannig ennþá yfir þessum málum öllum.  Ég fór og  hljóp 10 kílómetra í hlaupinu og var 58:55 sem er ekki gott en betra hjá mér en  í fyrra þegar ég hljóp í Glitnishlaupinu.

Nú ætla ég aftur út í sólina og ná þessum Íslands-drunga úr mér.
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

oh.. nú fæ ég útþrá aftur    Það væri óskandi að lífið á íslandi mundi líkjast þessu lífi þó ekki værni nema bara 10 %..

Óskar Þorkelsson, 14.10.2007 kl. 11:49

2 Smámynd: Einar Indriðason

Þvílík lýsing!  Nokkuð ljóst að Rennes er ekki alveg að farast úr stressi eins og Reykjavík getur gert stundum.  Reykjavík væri sennilega mun skemmtilegri borg, ef það væri meira af svona alls konar útivistum, útimörkuðum, og.... óstressuðu fólki.

Takk fyrir pistilinn.

Einar Indriðason, 14.10.2007 kl. 11:59

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

reglur og reglugerðir gera fólk stressað.. bannað að reykja, bannað að drekka bjór úti.. bannað bannað bannað.. óÞolandi klakadjöfull !

Óskar Þorkelsson, 14.10.2007 kl. 12:09

4 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Nú pakka ég niður.  Ég myndi ekkert hafa fyrir því að koma heim í þínum sporum.  Ísland verður ekki til sem sjálfstætt ríki eftir nokkur ár. Auðlindir og landnæði eru að komast í hendur gráðurgra kaupahéðna, sem mun nota fjöregg okkar sem veð fyrir fjárfestingum um víðann völl og svo þegar víxillinn fellur, þá verðum við á ný leiguþý erlendra lénsherra. 

 Hér eru 700 milljarðar í hagkerfinu af skammtímaskuldbindingum erlendra spekúlanta, sem gera út á háa vexti.  Um leið og stýrirvexxtir falla, þá verður þessu fjármagni kippt út á augabragði og veðin innheimt. Við erum á leið á útsölubás í kolaporti frjálshyggjunnar og ég sé ekki hvernig það verður stöðvað.  Þetta var langtfrá því óraunsætt niðurlag á færslunni, þótt eðlilega sé þa dapurlegt.  Veruleiki engu að síður.

Nú horfi ég hundsaugum til draumastaðarins míns í Chinque Terre á Ítalíu.

Jón Steinar Ragnarsson, 14.10.2007 kl. 22:41

5 identicon

Datt inn a bloggid thitt og vard ad leggja ord i belg. Eg hef buid her i Frakklandi i rum 2 ar og er svo innilega sammala ther hvad vardar samgongumal og gaedi matvara! Thegar eg kem heim til Islands tha missi eg matarlystina, eda allavega longunina til ad versla i matinn... Kjuklingabringurnar lodrandi i sykurvatni, vatnsbragd af graenmetinu, bragdlaus og half gervilegur ostur og baguette sem kosta 300 kall stykkid! Og thetta skilur folk heima ekki, thvi ad theirra mati er islenskur matur sa besti i heimi :) Tha byd eg theim jafnan ad koma med mer i innkaupaleidangur her i Frakklandi! 

Hinsvegar hefur matvoruverd haekkad mjog mikid undanfarin ar her i Frakklandi, en eg hef kannski ekki lengur mikid skyn a samanburdinn vid verdid heima a Islandi...

 Svo se eg ljoslifandi fyrir mer rafknuna nytiskulega sporvagna, lidast afram fra Hafnarfirdi til Reykjavikur og fra Reykjavik upp i Grafarvog... Thad vaeri ljomandi fint og praktist :)

 Kvedja fra Antibes,

Asdis

Asdis (IP-tala skráð) 15.10.2007 kl. 09:24

6 Smámynd: Kári Harðarson

Ég smyglaði kvikmyndavél inn í eina búð.  Vélin er ekki góð, þetta er bara upptökufídus í myndavélinni minni, en kannski er gaman að þessu engu að síður.

Hér er ostur og grænmeti og hér er kjötið.   Þetta eru bara myndir úr einum gangi af sex í þessum eina markaði. 

Myndirnar eru á .MOV (Quicktime) formatti.

Kári Harðarson, 15.10.2007 kl. 11:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband