Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Sjöfalt lyfjaverð

Um verð á lyfinu Terbinafin (Lamisil)

Í Velvakanda Morgunblaðsins í gær var sagt frá kaupum á lyfinu Terbinafin, 28 stk, 250 mg töflur.  Sá sem skrifaði (S.Þ.S.) fann lyfið ódýrast í Lyfjavali á 5.362 kr.  en dýrast í Lyfju á 7.499 kr.

Í tilefni af þessu sendi systir mín mér ljósmynd af kassanótu frá Kaupmannahöfn.  Mamma mín keypti lyfið þar skv. lyfseðli læknis frá Íslandi :

LamisilTerbinafin

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Lyfið heitir Terbinafin HEXAL 250 mg. og thad eru 28 töflur í skammtinum sem kostar 62,90 DKK.  

Gengið núna er 11,393 svo lyfið kostaði 717 kr.  í Kaupmannahöfn.

Ódýrasta lyfið hér er sjö sinnum dýrara en í Kaupmannahöfn.  Í Lyfju er munurinn tífaldur.

 


Þröngt mega sáttir sitja

Hjólreiðamenn deila gangstéttum með gangandi fólki og hjólastæðum með  .. hljóðfærum!

 


Stafrænt útvarp

DAB (Digital Audio Broadcast) útvarpsstöðvar senda út í hljómgæðum sem  jafnast á við geisladiska, enda eru þær stafrænar.  Útsendingarnar eru  miklu minna viðkvæmar fyrir suði og truflunum en gamla FM útsendingin.


Model_DAB_1061113110_34369dUm 500 milljón manns hafa keypt útvörp sem geta tekið við þessum  útsendingum. Fimmtíu slíkar útvarpsstöðvar eru í London einni. 

BBC sendir út með þessari tækni.

Danska útvarpið sendir tólf opnar stöðvar út með þessari tækni, og sjö áskriftarstöðvar til viðbótar.

Stöðvarnar geta bæði sent út frá venjulegu sendimastri en einnig um  gerfihnött og því væri hægt að hlusta á þær uppi á hálendinu.

Þessar útvarpsstöðvar hafa ekki orðið vinsælar í Bandaríkjunum en  grein í blaðinu Economist segir frá því að nú sé annar staðall að  verða vinsæll og heitir sá staðall "HD Radio" (Hybrid Digital Radio).

Hann gerir venjulegri útvarpsstöð kleift að bæta stafrænu útsendingunni við þá FM útsendingu sem þegar er til staðar, án þess að  sækja um nýjar senditíðnir.

Skrýtin blanda

Umræða um stafræn útvörp hefur ekki farið fram á Íslandi frekar en umræða um breiðtjaldsútsendingar sjónvarps eða háskerpu útsendingar.  Það er skrýtið því við erum vön að eltast við nýjustu dellurnar.

Við kaupum háskerpu flatskermana en getum ekki horft á þá í háskerpu.  Við kaupum flottustu sportbílana en eigum engar hraðbrautir.

Við erum til skiptis í framtíðinni og fortíðinni.

gods1

 


Hvernig ég hætti að reykja

Það er til örugg leið til að hætta að reykja og hún er að deyja úr krabbameini.  Allir hætta að lokum.

Það er valkostur að hætta, maður verður ekki að gera það.

Ég sagði sjálfum mér lengi að ég reykti svo lítið að það skipti ekki máli.  Þegar reykingar urðu félagslega óvinsælar prófaði ég nikótín tyggjó en án þess að hafa ætlað að hætta að reykja.

Konan mín nauðaði í mér að hætta þessu, og á undarlegan hátt notaði ég það sem afsökun til að taka ekki ábyrgð á sjálfum mér.

Þegar hún hætti að skipta sér af,  fann ég að þetta var ekkert nema mitt vandamál og ég yrði að leysa það.  Þá fyrst fór ég að taka á því.


Ég áttaði mig á því að ég hafði verið eins og krakki sem var ekki tilbúinn að horfast í augu við staðreyndir og að þessi ósiður yrði að fara. 

Ég sagði vini mínum sem er sálfræðingur að ég reykti til að slaka á.

Hann sagði mér að nikótín væri örvandi efni og ég væri alls ekki að fá neina slökun úr rettunni.  Það væri bara athöfnin, að fara út fyrir húsvegg og kveikja í sem fæli í sér slökun.

Hann lagði til að ég fengi mér bara venjulegt tyggjó og kaffibolla undir húsveggnum í staðinn. 

Þegar ákvörðunin var tekin reyndist þetta ekkert mál.  Fráhvarf vegna nikotíns var hverfandi og fór á þremur dögum.  Viljinn til að reykja var farinn áður en ég drap í.

Ég fæ mér ennþá kaffi og tyggjó og tek pásur en ég læt retturnar eiga sig.

 


Heimsborgarar bragðast best

Í gær sá konan mín að hún hafði gleymt gemsanum sínum á hótelherbergi  í Brussel þar sem hún var að vinna fyrir Evrópusambandið í síðustu  viku.

Hún hringdi á hótelið og bað afgreiðslufólkið að senda gemsann til  vinkonu sinnar í Danmörku.

Hún er að fara í aðra vinnuferð þangað eftir tvær vikur og sækir  gemsann í leiðinni.

Ég spurði strax:  Af hverju léstu ekki senda hann til Íslands, hann  yrði kominn eftir nokkra daga?

Hún svaraði: "Nei, það yrði svo mikið vesen.  Ég myndi þurfa að borga  aðflutningsgjöld og toll eða reyna að sanna að ég ætti hann".

Þetta svar hennar sýnir mér, að Berlínarmúrinn okkar er  enn á sínum stað.  Atlantshafið er okkar Berlínarmúr.

Hann hefur gefið stjórnvöldum hér afsökun til að halda landinu lokuðu,  hvað sem hver segir.  Reynið bara að panta varahlut í golfkerruna  ykkar - eða ostbita.

Þótt bankar hafi hagnast á frjálsum viðskiptum eru þau ekki komin til okkar hinna.

Better living through technology

Ég rakst á notendahanbók Reiknistofnunar Háskóla Íslands frá 1983 í skápnum í gær.

Þar stendur að tölvur í eigu skólans séu tvær:

  • Stærri tölvan,  VAX-11/780 hefur minni sem er 4MByte að stærð.
  • Hún getur framkvæmt 0,8 milljón aðgerðir á sekúndu (MIPS)
  • Sú minni, VAX-11/750 er 2MByte.
  • Hún getur framkvæmt 0,5 milljón aðgerðir (MIPS) 

780-p1
Þetta voru tölvurnar sem allar útstöðvar í skólanum voru tengdar við og allir nemendur samnýttu til að keyra Pascal þýðendur, COBOL, Fortran og allt annað sem þurfti að gera...

Mig minnti að tölvur hefðu verið orðnar öflugri 1983.

 

 

 

 

 

 

Núna hef ég 2 GByte af minni útaf fyrir mig svo ég geti tekið á móti tölvupósti sem sýnir mér apa stinga puttanum í rassinn, lykta, og detta úr greininni  Smile

2001-Alcott3

 

 

 

 

 

 

 


Brynna vil ég fola mínum...

Sú kvöð er sett á fyrirtæki í borginni, að þau útvegi bílastæði, mismörg eftir stærð fyrirtækis.  Ókeypis bílastæði eru jafn mikil tímaskekkja og ókeypis sígarettur í fermingarveislum.

Þess í stað væri hægt að leyfa fyrirtækjum að velja hvaða ferðamáta þau vilja niðurgreiða með sömu upphæð.

Fyrirtæki gæti tekið þátt í rekstri strætó eða uppbyggingu hjólabrauta í stað þess að borga fyrir gerð bílastæða.

Þessi niðurgreiðsla á bílastæðum skekkir kostnaðarmyndina við rekstur einkabíls rosalega og er ein megin ástæðan fyrir því að umferðin í háskólana á morgnana er jafn þung og raun ber vitni. Þegar nemandi hefur keypt sér bíl þá er bílastæðið ókeypis.

Segjum að eitt bílastæði sé 18 fermetrar og hver fermetri borgarlands kosti 150 þúsund krónur.

Segjum einnig að útlánsvextir séu 15% óverðtryggðir. Ég reikna ekki með kostnaði við sjálfa innkeyrsluna eða malbikun, bara fermetrana. Samt fæ ég út að verð stæðisins er 2,7 milljónir og árleg afborgun af þeirri upphæð væri 405 þúsund krónur eða 1.600 krónur á dag. Ég held að þessi upphæð sé nærri lagi en leiðréttið mig endilega.

  

Ég kem á hjólinu í vinnuna og spara bílastæði. Samt get ég ekki ráðstafað þessum peningum í eitthvað annað.

Vilhjálmur borgarstjóri gæti viljað bjóða fyrirtækjum að borga strætó eða hjólastíga sem eins konar syndaaflausn í stíl við kolviðarverkefnið sem virðist leggjast svo vel í fólk.

 


Hinn upplýsti

Ég er hrifinn af Búddhisma.  Nú kann einhver að segja að ég hafi  nýverið bloggað að ég tryði ekki. 

Búddhismi er ekki trúarbrögð heldur  tillaga mjög merkilegs manns um það hvernig best er að lifa lífinu.  Búddhamúnkar eru ekki að dýrka Búddha heldur vilja þeir reyna að fylgja hans fordæmi.

Ég hef haft mjög gott af því að kynnast kenningum Búddha þótt ég sé ekki búinn að raka á mér hausinn og fjárfesta í kufli.

Búddha benti mönnum sem vildu vera göfugir á að feta lífsleið sem fæli í sér átta  meginhugmyndir. (The eightfold noble path)

Það er hægt að gera margt vitlausara á netinu en að sækja eitt megin rit búddista sem er á PDF formi hér.

Víetnamski búddamúnkurinn (Thich) Nath Hanh sem er samtíðarmaður okkar (hann er áttræður),  hefur sett þessar hugmyndir fram sem  fimm verkefni sem menn ættu að taka sér fyrir hendur.
nhat hanh

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Framsetning hans er mjög aðgengileg.  Ég ákvað að þýða orð Nath Hanh í staðinn fyrir að horfa á sjónvarpið eftir fréttir.  Hann minnist á neyslu svo ég er ekki að fara langt frá mínum  venjulegu umræðuefnum.


Fyrsta verkefni

Ég veit að tortíming lífs veldur þjáningum og því hef ég ákveðið að  vera umhyggjusamur og læra að vernda líf manna, dýra, plantna og  jarðar. Ég ætla ekki að drepa, né láta aðra drepa, og ég mun aldrei  samþykkja dráp í heiminum, með hugsunum mínum eða atferli mínu.


Annað verkefni

Ég veit að misnotkun, þjóðfélagslegt óréttlæti, rán og kúgun valda  þjáningum og því hef ég ákveðið að rækta með mér ást og umhyggju og  vinna að velferð manna, dýra, plantna og jarðar. Ég hef ákveðið að  vera gjafmildur og deila tíma mínum, orku og efnum með þeim sem eru  þurfandi í raun. Ég hef ákveðið að stela ekki og eiga ekki það sem  ætti að tilheyra öðrum. Ég mun virða eigur annarra, en ég mun hindra  aðra í að græða á þjáningum manna eða annara dýra á jörðinni.


Þriðja verkefni

Ég veit að óábyrg kynhegðun veldur þjáningum og því hef ég ákveðið að  temja mér ábyrgð og læra leiðir til að vernda öryggi og heilindi  einstaklinga, para, fjölskyldna og þjóðfélagsins. Ég hef ákveðið að  taka ekki þátt í kynferðislegum athöfnum sem fela ekki í sér ást né  skuldbindingu. Ég ætla að viðhalda hamingju minni og annara með því að  virða mínar skuldbindingar og þeirra. Ég mun gera allt í mínu valdi  til að vernda börn frá kynferðislegri misnotkun og fyrirbyggja að pör  og fjölskyldur leysist upp vegna óbyrgrar kynhegðunar.


Fjórða verkefni

Ég veit að kærulaust tal og skeytingarleysi gagnvart því sem aðrir  segja veldur þjáningum og því hef ég ákveðið að temja mér að tala af  ástúð og hlusta einbeitt á það sem aðrir segja til að færa þeim gleði  og hamingju og frelsa þá undan þjáningum. Ég veit að orð geta veitt  hamingju eða þjáningu og því hef ég ákveðið að tala af sannsögli og  velja orð sem byggja upp sjálfsöryggi, von og gleði. Ég er staðráðinn  í að dreifa ekki fréttum sem ég veit ekki hvort eru sannar og að  gagnrýna og dæma ekki hluti sem ég veit ekki mikið um. Ég mun forðast  að segja orð sem valda sundrung og sundurþykkju eða valda upplausn  fjölskyldna og samfélags. Ég mun reyna af fremsta megni að sætta og  leysa allar deilur, hversu smáar sem þær eru.


Fimmta verkefni

Ég veit að taumlaus neysla veldur þjáningum og því hef ég ákveðið að  rækta heilsuna, bæði líkamlega og andlega, fyrir sjálfan mig,  fjölskylduna og samfélagið með því að vera meðvitaður um át mitt,  drykkju og aðra neyslu. Ég ætla að neyta aðeins þess sem viðheldur ró,  velsæld og gleði í líkama mínum, og meðvitund minni, meðvitund  fjölskyldu minnar og samfélags. Ég ætla ekki að nota áfengi eða aðra  vímugjafa eða innbyrða eitur hvort sem það er sjónvarpsefni, blöð,  bíómyndir eða samtöl. Ég geri mér grein fyrir því að ef ég skemmi  líkama minn og sál með eitri svík ég forfeður mína, foreldra, samfélag  mitt og komandi kynslóðir. Ég ætla að vinna að umbreytingu ofbeldis,  hræðslu, reiði og óreiðu í sjálfum mér og þjóðfélaginu með því að  stjórna neyslu minni. Ég skil að rétt neysla er forsenda þess að  breyta sjálfum mér og samfélaginu.

 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband