Heimsborgarar bragðast best

Í gær sá konan mín að hún hafði gleymt gemsanum sínum á hótelherbergi  í Brussel þar sem hún var að vinna fyrir Evrópusambandið í síðustu  viku.

Hún hringdi á hótelið og bað afgreiðslufólkið að senda gemsann til  vinkonu sinnar í Danmörku.

Hún er að fara í aðra vinnuferð þangað eftir tvær vikur og sækir  gemsann í leiðinni.

Ég spurði strax:  Af hverju léstu ekki senda hann til Íslands, hann  yrði kominn eftir nokkra daga?

Hún svaraði: "Nei, það yrði svo mikið vesen.  Ég myndi þurfa að borga  aðflutningsgjöld og toll eða reyna að sanna að ég ætti hann".

Þetta svar hennar sýnir mér, að Berlínarmúrinn okkar er  enn á sínum stað.  Atlantshafið er okkar Berlínarmúr.

Hann hefur gefið stjórnvöldum hér afsökun til að halda landinu lokuðu,  hvað sem hver segir.  Reynið bara að panta varahlut í golfkerruna  ykkar - eða ostbita.

Þótt bankar hafi hagnast á frjálsum viðskiptum eru þau ekki komin til okkar hinna.

Better living through technology

Ég rakst á notendahanbók Reiknistofnunar Háskóla Íslands frá 1983 í skápnum í gær.

Þar stendur að tölvur í eigu skólans séu tvær:

  • Stærri tölvan,  VAX-11/780 hefur minni sem er 4MByte að stærð.
  • Hún getur framkvæmt 0,8 milljón aðgerðir á sekúndu (MIPS)
  • Sú minni, VAX-11/750 er 2MByte.
  • Hún getur framkvæmt 0,5 milljón aðgerðir (MIPS) 

780-p1
Þetta voru tölvurnar sem allar útstöðvar í skólanum voru tengdar við og allir nemendur samnýttu til að keyra Pascal þýðendur, COBOL, Fortran og allt annað sem þurfti að gera...

Mig minnti að tölvur hefðu verið orðnar öflugri 1983.

 

 

 

 

 

 

Núna hef ég 2 GByte af minni útaf fyrir mig svo ég geti tekið á móti tölvupósti sem sýnir mér apa stinga puttanum í rassinn, lykta, og detta úr greininni  Smile

2001-Alcott3

 

 

 

 

 

 

 


Brynna vil ég fola mínum...

Sú kvöð er sett á fyrirtæki í borginni, að þau útvegi bílastæði, mismörg eftir stærð fyrirtækis.  Ókeypis bílastæði eru jafn mikil tímaskekkja og ókeypis sígarettur í fermingarveislum.

Þess í stað væri hægt að leyfa fyrirtækjum að velja hvaða ferðamáta þau vilja niðurgreiða með sömu upphæð.

Fyrirtæki gæti tekið þátt í rekstri strætó eða uppbyggingu hjólabrauta í stað þess að borga fyrir gerð bílastæða.

Þessi niðurgreiðsla á bílastæðum skekkir kostnaðarmyndina við rekstur einkabíls rosalega og er ein megin ástæðan fyrir því að umferðin í háskólana á morgnana er jafn þung og raun ber vitni. Þegar nemandi hefur keypt sér bíl þá er bílastæðið ókeypis.

Segjum að eitt bílastæði sé 18 fermetrar og hver fermetri borgarlands kosti 150 þúsund krónur.

Segjum einnig að útlánsvextir séu 15% óverðtryggðir. Ég reikna ekki með kostnaði við sjálfa innkeyrsluna eða malbikun, bara fermetrana. Samt fæ ég út að verð stæðisins er 2,7 milljónir og árleg afborgun af þeirri upphæð væri 405 þúsund krónur eða 1.600 krónur á dag. Ég held að þessi upphæð sé nærri lagi en leiðréttið mig endilega.

  

Ég kem á hjólinu í vinnuna og spara bílastæði. Samt get ég ekki ráðstafað þessum peningum í eitthvað annað.

Vilhjálmur borgarstjóri gæti viljað bjóða fyrirtækjum að borga strætó eða hjólastíga sem eins konar syndaaflausn í stíl við kolviðarverkefnið sem virðist leggjast svo vel í fólk.

 


Hinn upplýsti

Ég er hrifinn af Búddhisma.  Nú kann einhver að segja að ég hafi  nýverið bloggað að ég tryði ekki. 

Búddhismi er ekki trúarbrögð heldur  tillaga mjög merkilegs manns um það hvernig best er að lifa lífinu.  Búddhamúnkar eru ekki að dýrka Búddha heldur vilja þeir reyna að fylgja hans fordæmi.

Ég hef haft mjög gott af því að kynnast kenningum Búddha þótt ég sé ekki búinn að raka á mér hausinn og fjárfesta í kufli.

Búddha benti mönnum sem vildu vera göfugir á að feta lífsleið sem fæli í sér átta  meginhugmyndir. (The eightfold noble path)

Það er hægt að gera margt vitlausara á netinu en að sækja eitt megin rit búddista sem er á PDF formi hér.

Víetnamski búddamúnkurinn (Thich) Nath Hanh sem er samtíðarmaður okkar (hann er áttræður),  hefur sett þessar hugmyndir fram sem  fimm verkefni sem menn ættu að taka sér fyrir hendur.
nhat hanh

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Framsetning hans er mjög aðgengileg.  Ég ákvað að þýða orð Nath Hanh í staðinn fyrir að horfa á sjónvarpið eftir fréttir.  Hann minnist á neyslu svo ég er ekki að fara langt frá mínum  venjulegu umræðuefnum.


Fyrsta verkefni

Ég veit að tortíming lífs veldur þjáningum og því hef ég ákveðið að  vera umhyggjusamur og læra að vernda líf manna, dýra, plantna og  jarðar. Ég ætla ekki að drepa, né láta aðra drepa, og ég mun aldrei  samþykkja dráp í heiminum, með hugsunum mínum eða atferli mínu.


Annað verkefni

Ég veit að misnotkun, þjóðfélagslegt óréttlæti, rán og kúgun valda  þjáningum og því hef ég ákveðið að rækta með mér ást og umhyggju og  vinna að velferð manna, dýra, plantna og jarðar. Ég hef ákveðið að  vera gjafmildur og deila tíma mínum, orku og efnum með þeim sem eru  þurfandi í raun. Ég hef ákveðið að stela ekki og eiga ekki það sem  ætti að tilheyra öðrum. Ég mun virða eigur annarra, en ég mun hindra  aðra í að græða á þjáningum manna eða annara dýra á jörðinni.


Þriðja verkefni

Ég veit að óábyrg kynhegðun veldur þjáningum og því hef ég ákveðið að  temja mér ábyrgð og læra leiðir til að vernda öryggi og heilindi  einstaklinga, para, fjölskyldna og þjóðfélagsins. Ég hef ákveðið að  taka ekki þátt í kynferðislegum athöfnum sem fela ekki í sér ást né  skuldbindingu. Ég ætla að viðhalda hamingju minni og annara með því að  virða mínar skuldbindingar og þeirra. Ég mun gera allt í mínu valdi  til að vernda börn frá kynferðislegri misnotkun og fyrirbyggja að pör  og fjölskyldur leysist upp vegna óbyrgrar kynhegðunar.


Fjórða verkefni

Ég veit að kærulaust tal og skeytingarleysi gagnvart því sem aðrir  segja veldur þjáningum og því hef ég ákveðið að temja mér að tala af  ástúð og hlusta einbeitt á það sem aðrir segja til að færa þeim gleði  og hamingju og frelsa þá undan þjáningum. Ég veit að orð geta veitt  hamingju eða þjáningu og því hef ég ákveðið að tala af sannsögli og  velja orð sem byggja upp sjálfsöryggi, von og gleði. Ég er staðráðinn  í að dreifa ekki fréttum sem ég veit ekki hvort eru sannar og að  gagnrýna og dæma ekki hluti sem ég veit ekki mikið um. Ég mun forðast  að segja orð sem valda sundrung og sundurþykkju eða valda upplausn  fjölskyldna og samfélags. Ég mun reyna af fremsta megni að sætta og  leysa allar deilur, hversu smáar sem þær eru.


Fimmta verkefni

Ég veit að taumlaus neysla veldur þjáningum og því hef ég ákveðið að  rækta heilsuna, bæði líkamlega og andlega, fyrir sjálfan mig,  fjölskylduna og samfélagið með því að vera meðvitaður um át mitt,  drykkju og aðra neyslu. Ég ætla að neyta aðeins þess sem viðheldur ró,  velsæld og gleði í líkama mínum, og meðvitund minni, meðvitund  fjölskyldu minnar og samfélags. Ég ætla ekki að nota áfengi eða aðra  vímugjafa eða innbyrða eitur hvort sem það er sjónvarpsefni, blöð,  bíómyndir eða samtöl. Ég geri mér grein fyrir því að ef ég skemmi  líkama minn og sál með eitri svík ég forfeður mína, foreldra, samfélag  mitt og komandi kynslóðir. Ég ætla að vinna að umbreytingu ofbeldis,  hræðslu, reiði og óreiðu í sjálfum mér og þjóðfélaginu með því að  stjórna neyslu minni. Ég skil að rétt neysla er forsenda þess að  breyta sjálfum mér og samfélaginu.

 


Monní monní

Einhvern tímann las ég í frjálshyggjumálgagni, að ríkið ætti að gera sem minnst.  Það ætti að sjá um hermennsku, menntun og seðlaprentun.  Allt annað ætti  einkageirinn að sjá um.

Ef þetta er rétt þá erum við komin langt hér á landi. Við erum ekki með her svo  ekki sér ríkið um þann hluta.  Og sífellt færri nota gjaldmiðil ríkisins.

Ég er farinn að borga fyrir eina pylsu með Visakortinu.  Fyrst eftir að ég  flutti til Íslands fannst mér þessi notkun á Visa fyndin, en ekki lengur.  Ég er  farinn að kalla 50 og 100 kr peningana "borgarpólettur" vegna þess að ég nota þá  mest í stöðumæla. Flestir aðrir taka Visa.

Í skólanum þar sem ég vinn eru þrír sjálfsalar hlið við hlið.  Sá fyrsti tekur  Visa og Debetkort og gefur mér íslenska peningaseðla.  Sá við hliðina á tekur  við seðlum og lætur mig hafa borgarpólettur (klink).  Sá síðasti tekur við  klinkinu og selur mér samloku.

Ef ein þessara véla er ekki í stuði þegar ég mæti með Visa kortið fæ ég enga  samloku.  Þarna eru seðlar og mynt ríkins orðnir óþarfir milliliðir í viðskiptum mínum við Sóma ehf.

Danir voru hatrammir á móti innleiðingu Visakortsins og fundu í staðinn upp  eigið kort, Dankortið.  Dankortið er þeim eiginleikum gætt, að notkun þess  kostar neytendur engin færslugjöld, danir líta svo á, að sparnaðurinn sem  bankarnir fá með því að þurfa ekki að meðhöndla klink og seðla eigi að nægja  þeim, þeir eigi því færslugjöldin ekki inni hjá neytendum.

Þessi umræða fór ekki fram að neinu marki hér og neytendur borga því færslugjöld  beint í formi afnotagjalds Visa, og óbeint vegna þess að kaupmenn borga fyrir  hverja Visa færslu og láta viðskiptavinina vitaskuld borga það á endanum.

No_33_jpg

Það er erfitt að sjá hver kostnaður er af notkun Visa en mér sýnist hann geta verið  allt að 2,5% af upphæð færslu plús 280 kr.

Sjá gjaldskrá hér

Þegar við borgum nærri allt með Visa er þetta orðið jafngildi verulegs virðisaukaskatts sem rennur óskiptur til bankanna.

Visa er komið til að vera.  Mér finnst við ættum að klára þetta ferli sem hefur  verið í gangi síðan Visa kom til Íslands árið 1983.

Við ættum að taka upp rafræn viðskipti og hætta með seðla og skiptimynt.  Mér  finnst synd að borga fyrir útgáfu seðla og klinks með skattinum og borga svo  aftur í formi færslugjalda Visa.

Frekar vildi ég sleppa við annan hvorn þessara  kostnaðarliða.   Að vísu kostar prentun og myntslátta "aðeins" um 150 milljónir á  ári, en meðferð seðlanna í verslunum og bönkum kostar mikla handavinnu.

Ég legg til að ríkið semji við Visa og Mastercard um að taka að sér þetta hlutverk, eftir að umræða hefur farið fram um það, hver á að bera kostnaðinn af færslunum.  Í dag er þetta einfaldlega ekki rætt þótt Samkeppnisyfirlitð sé  lítið hrifið af ástandinu, sjá hér:

Í norrænu skýrslunni er farið vandlega yfir greiðslukerfi og hreyfanleika neytenda auk þess sem fjallað er um greiðslukortakerfin. Það er skoðun samkeppnisyfirvalda á Norðurlöndum að tveimur fyrrnefndu þáttunum beri að veita forgang í stefnuskrám ríkisstjórna á Norðurlöndum til þess að greiða fyrir þróun í átt til aukinnar samkeppni, neytendum til hagsbóta.

 

Fyrst ég er farinn að tala um peningamál þá eru hér tvö atriði sem ég vil skrifa  niður:


Rafrænn kassastrimill.

Ég myndi vilja fá rafrænt eintak af kassastrimlinum þegar ég fer í verslun.   Mér finnst mjög þægilegt að fá tölvupóst frá Atlantsolíu með sundurliðun á  innkaupum, í hvert skipti sem ég kaupi bensín. 

Þessi tölvupóstur kemur í  staðinn fyrir prentun á kvittun þegar ég fylli á tankinn.  Ef fleiri tækju  þennan sið upp yrði miklu auðveldara að færa heimilisbókhald.


Skýringar á bankayfirlitum.

Mér finnst skrýtið að skýringar á bankayfirlitum skuli ennþá vera sex stafa  langar, og stundum vantar þær algerlega.

Netbanki Glitnis leyfir mér að slá inn tvær skýringar með hverri færslu. Sú  langa er fyrir mig, en sú stutta er sú sem berst móttakanda greiðslu.   Hún er aðeins sex stafa löng og því ónothæf fyrir nokkurn texta.  Svona hefur hún samt verið síðan Reiknistofa bankanna var stofnuð fyrir grilljón árum.

Engin skýring birtist á yfirlitinu mínu þegar bankinn minn borgar Visa skuldina  mína með því að taka hana af launareikningnum mínum.  Ég sé bara risastóru  upphæðina sem er með ekki með skýringu og hugsa "já hún".  Fleiri færslur birtast svona óboðaðar og óútskýrðar.

Ef ég fæ reikning  ætlast ég til að hann sé sundurliðaður.  Bankarnir ættu ekki að leyfa sér að  fjarlæga pening af reikningum viðskiptavina án þess að setja skýringartexta á  færsluna.

 


Hrmpfh!

Ég hjólaði í vinnuna í morgun. Sex ökumenn svínuðu fyrir mig í sama hjólatúrnum.

Það eru þeir sem keyra yfir stöðvunarskyldur og stanza á blábrún aðalbrautar sem eru stærsta hættan því þeir loka hjólastígnum sem liggur meðfram aðalbrautinni.  Svo eru það þeir sem ákveða að beygja í veg fyrir mann af því gangandi og hjólandi eiga alltaf að stanza - eða hvað?

Ég er jafn rétthár og mávarnir í borginni, þakka fyrir á meðan ekki er eitrað fyrir manni.

Hér er mynd af hjólastíg (skv. korti Reykjavíkurborgar).  Eins og sjá má eru nokkrir bílar á stígnum.

 miklubrautar_staedin

 

 

 

 

 

 

 

 

Fyrirgefið kaldhæðnina.

 


Hvernig við lækkum vöruverð í einum hvelli

Vöruverð á Íslandi mun ekki lækka fyrir en venjulegt fólk getur auðveldlega pantað vörur á internetinu og flutt þær inn eins og fólk er farið að gera í öðrum löndum.  Það er skilvirkasta aðhaldið við verslanir sem hægt er að hugsa sér.

Ég geri orð Ian Watson að mínum.  Hann segir þetta í grein á ensku sem má lesa hér.

Hann segir það sem ég hef sagt lengi, að skrifræði tollsins á Íslandi er stærsti óvinur neytenda í dag.

Hér er úrdráttur úr greininni:

Our import rules hinder us from taking advantage of these innovations. If you live in Iceland, ordering something online catapults you into a nightmare of forms, charges, delays, and errands. It feels as if society has decided to punish you for the simplest and most innocent wants and needs, like a good book, a funny movie, a spare part or a comfortable shirt. Customs charges, VAT, service charges for collecting customs and VAT, delivery delays, and trips to the post office suck all the value out of participation in this new consumer culture and keep all the power in the hands of retailers.

Í gamla daga máttu Reykvíkingar ekki vinna í Hafnarfirði fyrir verkalýðsfélögunum.   Við þurfum að uppræta svona haftastefnu í eitt skipti fyrir öll ef við ætlum að komast inn í nútímann.

 

 


mbl.is Þörf á lögum um hópmálsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ostur, Baugur og Framsókn

Þegar ég kom til Júgóslavíu skömmu fyrir stríðið þar, sá ég fullt af  spennandi sölubásum með leðurvörur.  Eftir heimsóknir í nokkra slíka  víða um landið, sá ég að þeir seldu allir sömu vöruna. Sama leðurbeltið  merkt Marlboro var til sölu í þeim öllum.

Það kom í ljós að leðurverksmiðja ríkisins var á bak við allar vörur á  ferðamannastöðum.  Skipulag kaós.  Helsi á bak við sýndarfrelsið.

Þetta rifjaðist upp fyrir mér í morgun þegar ég leit yfir ostahilluna  í búðinni þar sem við kaupum inn til vikunnar.

Þótt mér væri stillt fyrir framan aftökusveit gæti ég ekki þekkt í  sundur eftirtalda osta í bragðkönnun:

  • Brauðostur
  • Fjölskylduostur
  • Heimilisostur
  • Skólaostur
  • Gouda
  • Gotti
  • Ísbúi
  • Grettir
  • AB Ostur

Þetta er allt sami osturinn enda þarf ekki að sjá hann, bara umbúðirnar.

3031_fjolskylduostur

 

 

 

 

 

 

Mjólkursamsalan er ófær um að bjóða upp á fjölbreytileika svo hún  "feikar það" með nýjum og nýjum umbúðum.  Það er skiljanlegt.  Ekkert  fyrirtæki er svo gott að það geti veitt sjálfu sér samkeppni.  Ég tek fram að ég efast ekki um gæði vörunnar.  Það er fjölbreytnin  sem ég sakna.

Í tíð Framsóknar fékk Mjólkursamsalan algera einokun á osta og  mjólkurvörum og var veldi hennar ærið fyrir.

Umboðsmaður neytenda er Framsóknarmaður.  Fyrirtækið Mjólka berst fyrir lífi sínu, nú á tímum frjálsrar  verzlunar.

Ég trúi að nú taki betra við.  Það verður ekki Framsóknarmaður yfir  landbúnaðarráðuneytinu eftir stjórnarskiptin.

Mér þykir vænt um bændur, og ég veit að þeir munu eflast og styrkjast  ef hætt verður að fara með þá eins og Danir fara með Grænlendinga.  Þeir munu blómstra því þeir eiga gjöfult land og þjóð, sem vill ólm  kaupa af þeim vörurnar.
fromage_agde_fra_galleryfull

 

 

 

 

 

 

 

 

Baugur minnir mig á Bónus, og Jóhannes í Bónus minnir mig á hagstætt  vöruverð.  Baugsfeðgar hafa alltaf vilja flytja inn landbúnaðarvörur.

Ef Jón Sigurðsson á við þetta þegar hann uppnefnir næstu stjórn  "Baugsstjórn", þá mæli hann manna heilastur.

 


Brave new world

Kort sem líta út eins og kreditkort en eru í raun "Rafræn  persónuskilríki" verða send til allra landsmanna í haust, ásamt lesara  fyrir kortin. Bankarnir og ríkið borga brúsann.

Kortið lítur út eins og kreditkort og er með gylltum reitum í ramma  framan á kortinu eins og er á nýjustu kreditkortunum.

Þessi kort munu taka við af auðkennislyklinum sem allir fengu sendan í  vetur.  Það má semsagt fleygja þeim lykli fljótlega.

smartcard

 

 

 

 

 

 

Tæknin

Það má líta á nýja kortið sem lyklakippu sem geymir öll "Username /  password" fyrir handhafa kortsins á þeim vefsíðum sem nota staðalinn  sem kortið byggist á.  Allir bankarnir, ríkið og borgin ætla að nota  staðalinn hér á landi.

Notandinn (þ.e. ég og þú) stingur kortinu í kortalesarann, sem á að  vera tengdur við heimilistölvuna.

Síðan á að opna kortið með því að slá eitt PIN númer inn á lyklaborð  tölvunnar, eins og maður gerir til að opna gemsa. 

Eftir það sér kortið um að auðkenna handhafann á þeim vefsíðum sem  hann heimsækir.  Í stað þess að muna username / password fyrir hvern  heimabanka eða þjónustu, finnur kortið rétta nafnið og lykilorðið á  "lyklakippunni" sem er geymd inní því.  Notandinn fer bara á vefsíðuna  og síðan stendur honum opin hvort heldur sem er heimabankinn eða vefur  skattstjóra.  Kortið sér um rest.

Kortið er meira en plast, inní því er tölva, með örgjörva, minni og  öðru sem tölva þarf að hafa.  Það eina sem vantar er skermur og  lyklarborð. Heimilistölvan sér um að skaffa það.

Ný kreditkort eru með þessa sömu tækni, en kreditfyrirtækin hér á  landi eru ekki byrjuð að nýta hana. Sumir hafa örugglega lent í því  erlendis að þurfa að nota PIN númer þegar þeir borga í verzlun í stað  þess að undirrita kvittun.  Semsagt, sú tækni.

Það er nánast ómögulegt að skera upp kortið til að finna  "lyklakippuna" því hún er innsigluð í miðju korti og er hvort sem er  ekkert nema rafmagnshleðslur sem myndu glatast ef kortið væri opnað.

Notagildið

Nóg um tæknina.  Það sem ég er spenntastur fyrir í sambandi við þessi  kort er, að nú geta íslenskir notendur undirritað tölvupóst þannig að  hægt er að sanna fyrir lögum að aðeins handhafi kortsins hafi getað  gert það.

Einnig er hægt að dulkóða tölvupóst þannig að aðeins handhafi eins  ákveðins korts geti lesið hann.

Þetta þýðir að tölvupóstur hættir að vera eins og póstkort og byrjar  að vera eins og innsiglað ábyrgðarbréf í staðinn.

Ég bíð spenntur eftir því að geta krafist þess að allir sem senda mér  tölvupóst hafi undirritað hann, annars mun ég henda póstinum. Ég vil  ekki nafnlausan póst frekar en ég vil tala við fólk í síma sem er með  stillt á númeraleynd.

Tölvupóstur sem berst mér erlendis frá mun fara í ruslsíuna nema  sendandinn sé á lista yfir erlenda vini mína.  Ruslpóstur ætti þar með  að vera úr sögunni - held ég.

Annar möguleiki sem opnast með þessum kortum er að geta sent póst sem  óvéfengjanlega kvittun eða beiðni til banka.

Ég gæti til dæmis borgað öðrum pening með því að senda honum póst sem  í stendur :  Kæri Glitnir, borgaðu þessum manni 10.000 kr. Undirritað  Kári Harðarson.  Maðurinn gæti áframsent póstinn sem hann fékk frá mér  til tölvupóstfangs einhverrar greiðsluþjónustu hjá bankanum og fengið  peningana greidda sjálfkrafa.  Vesgú, rafræn ávísun.

Það sem gerir það dæmi svolítið spennandi er þegar upphæð  ávísunarinnar er upp á 1 kr.  Góður bloggari gæti selt áskrift að  greinum sem kosta hver um sig 1 kr.  Ef þúsund manns lesa bloggið einu  sinni á dag í eitt ár er hann búinn að vinna sér inn 365 þúsund  krónur.  Margt smátt gerir eitt stórt.

Semsagt

Ég er persónulega spenntur fyrir þessari rafrænu framtíð sem byrjar í  haust enda bjartýnisnerd.

Það er samt merkilegt, að í flestum löndum sem hafa reynt að innleiða  svipuð kort hefur orðið kröftug umræða um lýðræði og mannréttindi og  síðan var hætt við að innleiða kortin.  Hér koma þau bara...


Vista selst vel, segir Microsoft

Hér er frétt  um sama efni frá Seattle Times.

Þar er málið rætt frá öllum hliðum.  Mér finnst frétt moggans einum of lík upphaflegu fréttatilkynningunni frá Microsoft.

 

 

 


mbl.is 40 milljónir eintaka hafa selst af Windows Vista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband