Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008
30.5.2008 | 09:46
Við þurfum fleiri svona menn
Ef fleiri stæðu með sjálfum sér og tækju slaginn eins og Vilhjálmur Bjarnason gerir þá væri enn betra að búa á Íslandi.
Krefst 1.900 þúsund króna í bætur frá stjórnarmönnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.5.2008 | 15:33
Don't try this at home
Það er freistandi að segja bara að unga fólkið hafi eytt stjórnlaust. Hitt er svo annað mál að eldri kynslóðin sem selur þeim það sem þau vilja kaupa, smyr vel á.
Þegar ég útskrifaðist úr háskóla í Bandaríkjunum keyptum við strax hús og bíl og vitaskuld keyptum við í matinn í hverri viku. Allt ungt fólk vill hús, bíl og mat í ísskápinn, ekki satt?
Svona leit dæmið út í Bandaríkjunum 1994:
- Mánaðarlaunin 282 þúsund
- Húsið 8,4 milljónir (2,5 árslaun) 4.5% óverðtryggt lán
- Nýr VW Passat 1,5 milljónir (5 mánaðarlaun)
- Viku matarinnkaup 7.500 kr með víni og bjór, bleyjum o.s.frv. (1/37 úr mánaðarlaunum)
- Bensínlítrinn 19 krónur
Ef ég gerði þessar sömu kröfur til lífsins á íslandi í dag væri ég gjaldþrota. Svona er staðan í dag:
- Mánaðarlaunin 400 þúsund ef þú ert heppinn
- Húsið 40 milljónir (8,3 árslaun)
- Nýr VW Passat 4 milljónir (10 mánaðarlaun)
- Viku matarinnkaup 25 þúsund (1/16 úr mánaðarlaunum)
- Bensínlítrinn 150 krónur
„Alvarlegt hve margt ungt fólk er illa statt“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Neytendamál | Breytt 29.5.2008 kl. 11:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
26.5.2008 | 22:56
Ein góð ástæða í viðbót
Ein góð ástæða í viðbót til að fara með lyfin til förgunar í næsta apótek, er að Rannsóknarstofnunin ætlar að fara í gegnum það sem kemur inn og reyna að slá á hvaða verðmæti er þarna um að ræða, og hvaða lyf er helst um að ræða.
Niðurstöðurnar gætu orðið til þess að hentugri lyfjaskömmtum verði ávísað í framtíðinni.
Við erum búin að laga til í lyfjaskápnum, ég og frúin, elsta draslið var orðið býsna gamalt!
Vitundarvakning um förgun gamalla lyfja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.5.2008 | 15:16
Glögg gestsaugu
Erlendur kunningi minn sem kemur í heimsókn til Íslands á 3-4 ára fresti kom í heimsókn í sl. viku og mætti í mat.
Það fyrsta sem hann þurfti að segja var að Reykjavík væri ryðguð. Hann átti við að litríku þökin í gömlu borginni væru að víkja fyrir ryðkláfum, og svo væru gangstéttirnar allar sprungnar og mosavaxnar.
Svo sagði hann að íslendingar væru orðnir miklu feitari, þar á meðal ég... Hann sagði að allir væru síétandi hvert sem hann færi. Fólk væri með orkudrykk eða ís eða pylsu. "Kann fólk ekki að borða á matmálstímum lengur?" spurði hann.
Mér varð svarafátt og við leiddum talið að öðru.
22.5.2008 | 13:02
Hvernig á að pirra
Hér eru nokkur góð ráð til að vera pirrandi
- Stilltu sjónvarpið þannig að allir verði grænir í framan. Segðu að þetta eigi að vera svona.
- Heftaðu öll blöð í miðjunni.
- Hengdu þjófavarnarhnappa á föt fólks sem er að kaupa í matinn.
- Fáðu lánaðar spennusögur og skrifaðu nafn morðingjanns á fyrstu síðu.
- Kallaðu halló til bláókunnugs fólks sem er að labba hinu megin við götuna.
- Vertu alltaf í appelsínugulum fötum.
- Sestu við barborð og kláraðu allar smáveitingarnar (hnetur, snakk o.f.l.) sem á því eru.
- Borgaðu allt með kínveskri smámynt.
- Endurtaktu allt sem aðrir segja eins og spurningu.
- Labbaðu á milli borða inni á veitingahúsum og biddu fólk að gefa þér grænmetið.
- Talaðu við sjálfan þig í strætó.
- Hafðu alltaf kveikt á stefnuljósunum á bílnum.
- Láttu hundinn þinn heita Hundur.
- Spurðu fólk af hvaða kyni það sé.
- Eltu einhvern með hreinsilög og þurrkaðu af öllu sem hann/hún snertir.
- Ljúgðu þegar fólk spyr þig hvað klukkan er.
- Ekki taka jólaljósin niður fyrr en í október. Hafðu kveikt á þeim allan tímann.
- Breyttu nafninu þínu í Jón Aaaaaaaaaaaason og segðu að faðir þinn hafi verið grænlenskur. Segðu fólki að það eigi að það eigi að bera fram öll a-in.
- Stattu við umferðargötu og miðaðu hárblásara að öllum bílum sem aka framhjá.
- Nagaðu alla penna og blýanta sem þú færð lánaða.
- Syngdu með þegar þú ferð á óperu.
- Biddu þjóninn um aukasæti fyrir "ósýnilega" vin þinn.
- Spurðu skólafélaga þína dularfullra spurninga og skrifaðu eitthvað í vasabók.
- Spilaðu sama lagið 50 sinnum.
- Búðu til "dularfulla hringi" í grasið í görðum nágranna þinna.
- Segðu upphátt einhverjar tölur þegar afgreiðsufólk er að telja peningana.
- Bókaðu þig á fund 31. september.
- Bjóddu fullt af fólki í veislu annara.
21.5.2008 | 15:14
Hawaii eða Háaleitisbraut ?
Það kostar 19 krónur að hringja úr heimasíma til Bandaríkjanna, 17 krónur að hringja í farsíma frá símanum en 25 krónur að hringja í farsíma frá Nova.
Það kostar bara 1,85 krónur að hringja í annan heimasíma. Munurinn er því alltaf minnst tífaldur að hringja í gemsa. Verðið á farsíma símtölum hér sýnist mér fara hækkandi á sama tíma og það lækkar í öðrum löndum.
Finnst einhverjum öðrum en mér skrýtið að innanbæjarsímtal skuli vera dýrara en símtal til Hawaii bara af því viðmælandinn er hjá "hinu" símafyrirtækinu? Mér sýnist Síminn vera að refsa þeim viðskiptavinum sem dirfast að gerast liðhlaupar í stað þess að herða sig í samkeppninni?
Ég tók eftir þessu vegna þess að heima-símareikningurinn okkar rauk upp eftir að helstu vinir sonar míns skiptu yfir til Nova.
Það borgar sig fyrir soninn að ganga með tvo farsíma, með sitthvoru SIM kortinu og hringja í Nova notendur frá síma með Nova korti af því símtöl milli Nova síma eru ókeypis. Eina vandamálið er að símanúmerin þekkjast ekki í sundur, frá hvaða félagi þau eru.
Í Danmörku er sama gjald, 1,30 DKR að hringja í farsíma frá heimasíma, sama hvaða félagi sá farsími tilheyrir. Það þykir mér ætti að lögleiða hér á landi.
Ef mér leiddist gæti ég búið til þjónustu þar sem allir geta hringt úr heimasímanum í box eins og er á myndinni að neðan, svokallaðan "GSM Gateway". Það myndi innihalda SIM kort frá Nova og leyfa þeim sem hringir í það að slá inn farsímanúmer Nova notanda. Þannig gætu allir talað við Nova farsímaeigendur úr heimasímanum fyrir 1,85 krónur í stað 25 króna. Ég þyrfti ekkert að borga nema fjárfestinguna í boxinu og mánaðargjaldið fyrir Nova SIM kort.
Þessi box eru þegar til á markaði. Ég ætla ekki að stofna þjónustuna sjálfur, ég er bara að benda á fáránleikann í gjaldskránni eins og hún er í dag.
Neytendamál | Breytt s.d. kl. 15:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
20.5.2008 | 10:02
Hvers vegna lögreglan skráir ekki stellnúmer - svarið er komið
Ég velti fyrir mér hvers vegna lögreglan skráir ekki stellnúmer þeirra hjóla sem koma inn til þeirra og gat mér í kvikindisskap til að þeir héldu ágóðanum af þeim hjólum sem færu á uppboð. Satt að segja datt mér ekki í hug að það væri reyndin.
Ég fékk svo þetta svar frá starfsmanni innan lögreglunnar sem vill ekki láta nafns síns getið:
Jú, þetta er nefnilega spilling. Lögreglufélag Reykjavíkur fær hlut af óskilamunauppboðinu sem haldið er einu sinn á ári. Síðan útdeilir Lögreglufélag Reykjavíkur þessum aurum í einhver mál skv. einhverjum reglum.
Það er fáránlegt að skrá ekki raðnúmer hjóls í LÖKE (lögreglukerfið) því það bíður svo sannarlega upp á það.
Þetta er ekki alvarlegasta spillingarmál sem ég hef heyrt um, en það ætti samt ekki að láta þetta líðast.
Kveðja, Kári
19.5.2008 | 13:45
Hvernig gengur hjá Vista ?
Hér er markaðshlutdeild hinna ýmsu stýrikerfa Microsoft:
Það væri synd að segja að Windows Vista sé búið að ná mikilli útbreiðslu á þessu eina og hálfa ári síðan það kom á markað.
Heimild PC Pitstop
18.5.2008 | 10:26
Ég fann Trek hjól í Vesturbænum...
Ég fann stórt silfurlitað Trek reiðhjól hjá Hótel Sögu föstudagskvöldið 16.maí. Þetta er dýrt og fínt hjól, með dempara að framan, vökva- bremsum, dáldið mikið rispað. Hringdu í síma 862 9108 ef þú kannast við gripinn.
Ég hringdi í lögregluna en skiptiborðið fyrir tapað fundið er lokað um helgar. Svo setti ég upp tilkynningu í Melabúðina, og ég kom við á bensínstöð á Melunum en þar sagði afgreiðslumaðurinn að einhver hefði komið og spurt eftir fínu Trek hjóli. Hann hafði ekki skilið eftir nafnið sitt svo ekki gat ég hringt í hann.
Síðast hringdi ég í Örninn sem selur Trek og sagði þeim stellnúmerið -- sem er grafið í reiðhjól undir fótsveifaröxlinum -- það var ekki á skrá.
Ég hef lært af þessari uppákomu að ef ég vil að fólk skili mér eigum mínum er ágætt að merkja þær. Ég tók mig til og merkti hjólið mitt með nafni og símanúmeri. Ég legg til að aðrir hjólakappar geri slíkt hið sama.
Ég hef hringt áður í lögregluna þegar svona lagað kom upp á, spurt hvort einhver saknaði hjóls með ákveðnu stellnúmeri. "Við skráum ekki stellnúmer, komdu bara með hjólið og við setjum það í geymsluna". Ég spurði af hverju stellnúmer á óskilahjólum væru ekki skráð. Það stóð ekki á svari: "Þau eru svo mörg".
Lögreglan getur því ekki hringt í eigendur ef hjólin þeirra komast í leitirnar, menn verða að mæta reglulega og róta í gegnum hundrað hjól í kös. Ég skil ekki af hverju lögreglan reynir ekki að koma hjólum til eigenda sinna. Í bænum mínum í Bandaríkjunum afhenti lögreglan sérstök skilti með númeri sem hægt var að setja á hjólin, eins og bílnúmer. Sennilegasta skýringin er að lögreglan selur hjólin á uppboði á endanum svo hún tapar á því að vinna vinnuna samviskusamlega.
Hjólreiðar | Breytt s.d. kl. 10:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
16.5.2008 | 15:15
Til fyrirmyndar
Ég hef keypt plokkfisk frá Grími kokki og verið ánægður með hann. Um daginn keyptum við fiskibollur frá sama fyrirtæki en þær voru þurrar og bragðlitlar. Ég sendi tölvupóst og lét vita.
Ég fékk samstundis afsökunarbeiðni og ekki nóg með það, heldur sárabætur; heimsendan kassa á dyrapallinn sem í voru ljúffengar fiskibollur (þeir virðast hafa endurbætt uppskriftina) og sýnishorn af annari framleiðslu fyrirtækisins.
Mér er ljúft og skylt að tilkynna að Grímur kokkur er í náðinni hjá mér.