Hvenær er nýjung nýjung?

Ég hef heyrt um póstkort sem eru sextíu ár að berast í hendur viðtakanda, en hér er fréttatilkynning frá Osta og smjörsölunni sem mér finnst smellin:

Á markaðinn eru komnir nýir íslenskir ostar, Sauða-brie og Geita-brie. Ostarnir eru hreint sælkerafæði og eru kærkomnin nýjung í íslensku ostaflóruna.

Sauða- og geitaostar hafa verið framleiddir í áraraðir í nær öllum löndum Evrópu og njóta þeir gríðarlegra vinsælda þar. Íslenski geitastofninn er afar sérstakur á heimsvísu þar sem stofninn hefur verið einangraður síðan á landnámsöld og er íslenski Geita-brie osturinn talinn vera einstakur vegna þessa.

Það er áralöng hefð fyrir notkun ostanna í ýmis konar matargerð í Evrópu.

561_geitabrie

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er víst óhætt að segja að hefðin í Evrópu sé áralöng því hetjusögur Grikkja frá því fyrir Krist tala um geitaost, og Feta osturinn gríski er geitaostur þótt hann sé það reyndar ekki á Íslandi enda spurning hvort megi kalla þann ost Feta ost.

Frakkar hafa búið til geitaost frá því hann barst til Frakklands með Márum á áttundu öld.

Það er því stórkostleg hæverska að segja að "geitaostar hafa verið framleiddir í áraraðir" í Evrópu.  Nær væri að segja árþúsundaraðir.

Það er viðbúið að þessi "nýung í matargerð" hefði borist fyrr í gúlagið ef hér væri ekki allt harðlokað og læst í landbúnaðarmálum.

Ætli þetta hæverska orðalag hjá Osta og smjörsölunni sé ekki komið til vegna þess að þeim finnst þeir sjálfir vera nokkur seint á ferð með "nýungina"?

 


Passat er hátíð miðað við...

Hvaða bíll ætli lækki svona hratt í verði?

Vísbending: nýr kostar hann yfir tíu milljónir, en það má sjá á grafinu, svo það er kannski ekki mikil vísbending.

Draumabillinn

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tölurnar tók ég með stikkprufum af bílasölum á netinu. 

 

Kveðja, Kári 

PS:  Svarið fæst með því að velja allan textann og sjá hvað birtist... 

Svarið er Range Rover

 


Hlutabréfin falla kannski á morgun - bílar örugglega!

Í tilefni af áhyggjum af verðfalli á mörkuðum á morgun datt mér í hug að skoða verðfall VW Passat bíla.  Ég setti inn verð fjörtíu bíla skv. bílasölum á vefnum:

verd_argerd_bilasalar

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

2007 kostar bíllinn 2.800 þúsund nýr en tíu ára gamall er hann kominn niður í 500 þúsund, það er lækkun um 2.300 þúsund eða 230 þúsund á ári.  Þetta er uppsett verð á bílasölunni, ég veit ekki hvort bíllinn selst á því verði.

Skattstjóri álítur að afföll af bílum séu 10% á ári.  Hér er graf sem sýnir 10% lækkun afturvirkt af sömu upphæð:

verd_argerd

 

 

 

 

 

 

  

 

Skattstjóri er bjartsýnn, hann heldur að 1997 árgerð kosti milljón en raunveruleikinn er 500 þúsund.

Bílar eru engin fjárfesting, en það vissi ég svosem fyrirfram.

Ef þessi sama upphæð hefði verið sett inn á reikning með 10% ársávöxtun árið 1997 væri vöxturinn svona:

avoxtun

 

 

 

 

 

 

 

 

Á þessu ári væri upphæðin komin í 7,2 milljónir.  Það væri hægt að loppa af 4,4 miljónir og nota í eitthvað skemmtilegt, og vera samt með 2,8 milljónir eftir á reikningnum.

 ---

Mjög dýr reiðhjól á Íslandi geta kostað 200 þúsund krónur, en það er samt minna en verðfall á venjulegum Passat á einu ári.  Það er skrýtið hvað sumu fólki finnst sumt dýrt stundum en borgar svo aðra fokdýra hluti með glöðu geði.  Passat er ekki dýrasti bíllinn á götum Reykjavíkur í dag og hann fellur örugglega ekki meira í verði en sumir jeppar.

 


Er breiðband Símans á útleið?

Fyrir nokkrum árum lagði Síminn Breiðbandið í götuna til mín og í kassa í kjallaranum. Ég lagði loftnetssnúru áfram  upp í loftnetsdreifikerfi hússins og hef verið með myndlykil frá Símanum tengdan við þessa snúru.

Breiðbandið er ljósleiðari sem liggur um bæinn en flest hús eru tengd honum með venjulegri loftnetssnúru því búnaðurinn sem breytir ljósmerkinu í sjónvarps og símamerki er hafður í kössum á götuhornum.  Það þótti ekki svara kostnaði að leggja ljósleiðarann alla leið í hvert hús.

Nú er Landssíminn byrjaður að bjóða upp á "Video on Demand" (VOD) þjónustu en aðeins fyrir þá sem nota ADSL myndlykla, en þeir eru tengdir við gömlu símasnúruna, ekki nýju loftnetssnúruna.

Ég beið rólegur og bjóst við að uppfærsla á breiðbandslyklunum væri ekki langt undan til að geta séð heimabíó með  þeim.  Svo leið og beið.

Nú er Síminn líka byrjaður að bjóða á háskerpu útsendingar (HD) en aftur, aðeins fyrir þá sem eru með ADSL myndlykla.

Því spurði ég þjónustuver Símans:  Hvenær kemur Video-on-demand og Háskerpa fyrir notendur Breiðbandsins?  Svarið frá þjónustuverinu var:  það eru engin áform um að bjóða þá þjónustu á Breiðbandinu.

Ég álykta að myndlykillinn á Breiðbandinu sé að fara sömu leið og Betamax videótækin.   Tímabært að leggja nýja snúru inn í stofu.

Smá hártogun í lokin:  það er dáldið óskírt hvað Breiðbandið er í raun og veru.  Ég fletti upp "Hvað er breiðbandið" á heimasíðu Símans og fæ þetta svar:

Breiðbandið var fyrst tekið í notkun þann 6. febrúar 1998 og hófst þá dreifing á sjónvarps- og útvarpsefni með einfaldri tengingu inn á loftnetskerfi heimilanna. Nú er komið að því að ljósleiðaratenging til heimila er orðinn raunhæfur kostur og því verður Breiðbandið nú uppfært í ljósnet og verður þannig eitt helsta gagnaflutningskerfi fyrir sjónvarp, útvarp, tölvur og síma. Þetta mun þó taka nokkur ár þar sem ljósleiðaratengingar kalla á nýjar innanhússlagnir á þeim heimilum sem vilja nýta sér þær.

Þarna stendur hvenær það var tekið í notkun og að dreifing á sjónvarps og útvarpsefni fari fram um það, en ekki hvað það er.  Ef Breiðbandið er ljósleiðarakerfi símans, þá er breiðband símans náttúrulega ekki á útleið, en ef það er loftnetskerfi og myndlyklar tengdir því, þá er svarið já, þeir eru á útleið.

Ef til stendur að leggja ljósleiðara alla leið inn í stofu til mín og tengja myndlykil beint við hann, tekur vart að bíða eftir því og betra að byrja að undirbúa komu ADSL myndlykils.


Hvílík forneskja!

Þegar iPod er orðinn dýrari en iPhone þá er það eins og að krókódíllinn sé fimm metrar frá haus aftur á hala en sex metrar frá hala fram á haus.  Mótsögn, og sönnun þess að ríkisstofnun er komin inní fílabeinsturn sinnar eigin rökfirru.

Mér finnst að tolla þurfi að réttlæta sérstaklega.  Að sjálfgefnu eiga þeir ekki að vera til staðar, frekar en bann við veiðum á ákveðnu svæði, hámarksöxulþungi, húsleitarheimild, heldur eitthvað sem gripið er til í sértilfellum eða tímabundið.

Ég krefst skýringa: hvað er svona merkilegt við tónlistarspilara á Íslandi að þeir skuli verða fyrir þessum ofurtollum sem tíðkast hvergi annars staðar?   Af hverju kostar 13 þúsund króna spilari 32 þúsund heima?

Til að bíta höfuðið af skömminni er þessi flokkunarárátta algerlega úreld.  Myndavélin mín getur sýnt video og síminn minn getur spilað MP3.    Þeir gætu viljað flokka bifreiðar sem MP3 spilara, því flestir geta þeir spilað geisladiska í MP3 formatti núna,  það er hætt við að bílverð myndi hækka við það.  Ég sem hjólreiðamaður myndi gleðjast en það er annað mál.

Í alvöru talað myndi ég vilja fá skýringar á þessu, aðrar en "við ráðum þessu", því það er valdahroki að nenna ekki einu sinni að lagfæra svona augljóst ranglæti.

 


mbl.is iPod tollurinn er kominn til að vera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sniff

Ég sat við skrifborðið þegar kona gekk framhjá skrifstofunni.  Ég sá hana ekki,  leit ekki einu sinni við. Af henni var blanda af útilykt, góðri ilmvatnslykt og  vægri reykingalykt, ekki of sterkri til að vera vond.

Samstundis var ég átta ára að koma til dyra þegar pabbi og mamma komu heim eftir  að hafa verið út að skemmta sér.  Ég sá þau fyrir mér í forstofunni heima og var  feginn að fá þau heim.  Sennilega var mamma með ilmvatn sem líktist þessu  ilmvatni.  Þessi minning kom í heilu lagi, áður en ég gat hugsað um hana  meðvitað.

Það virðist vera stutt leið frá nefinu í tilfinningarnar.  Kannski er þefskynið  eldra og frumstæðara skynfæri en hin skilningarvitin. Þar er eins og lyktin sé  ekki tengd við heilann á sama hátt og þau.

Bragðskynið er víst að miklu leyti blekking því bragðið af matnum er í raun  lyktin af honum.  Kínverskur málsháttur ráðleggur mönnum að borða rísgrjón á  meðan þeir lykta af steiktri önd nágrannans því þannig megi borða herramannsmat  og spara pening.

Við eigum nákvæm orð sem lýsa tónum og  hljómum, litum og formum, en nafnorð  yfir lykt eru varla til.  Hvaða lykt er af engifer?  Hver er munurinn á þeirri  lykt og sítrónulykt? Hvað heitir lyktin sem kemur út ef ég blanda þeim saman?  Væri hún góð? Þetta læra franskir ilmvatnsgerðarmenn, og fá víst góð laun fyrir.  Væntanlega geta þeir talað saman um lykt af meira viti en ég.

Hér í Frakklandi fæst mikið af ilmvötnum, sem ég hef ekki séð út í fríhöfn. Ekki  allir ilmvatnsframleiðendur eru á vegum fataframleiðenda eins og Chanel og Boss.  Fragonard er eitt merki sem ég hef hvergi séð annars staðar:

billetdoux

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég hef grun um að sumt fólk sé lyktarblint.  Ég held það vegna þess að ég þekki  þrifalegt fólk með daunillar borðtuskur.  Ef það hefði þefskyn í lagi myndi það  samstundis henda borðtuskunni og ná sér í nýja.  Ég veit samt ekki til þess að  lyktarblinda sé viðurkennd örorka.



Alvöru gírkassar

Þegar ég var strákur átti ég þriggja gíra hjól eins og flestir jafnaldrar mínir. Gírarnir voru inní afturöxlinum sem var fáanlegur frá tveim framleiðendum, annars vegar Sturmey-Archer í Bretlandi, og hins vegar Sachs í Þýzkalandi.

Gíraöxlarnir voru yfirleitt til friðs nema ef litla "gírkeðjan" slitnaði sem tengdi öxulinn við barkann upp í handfangið.  Það gerðist yfirleitt þegar hjólið datt á hliðina því gírkeðjan stóð út um afturöxulinn og á hann datt hjólið.  Það breytti samt ekki því að gírarnir inní öxlinum voru alltaf í lagi.

1133635210940_hub_sturmey_archer_tc6

 

 

 

 

 

 

 

 

Um 1980 komu keppnishjólin til Íslands og eftir það voru gírar utanáliggjandi, sennilega vegna þess að fólki fannst betra að hafa fleiri gíra en bara þrjá.  Það er alveg rétt, þrír gírar nægja ekki.

Keppnishjólagírar láta keðjuna ekki ganga beint milli tannhjóla eins og í  flestum vélum sem nota keðjur, heldur er undið upp á vesalings keðjuna til að beina henni á mismunandi tannhjól.

Keðjan er send gegnum lítinn gaffal sem beinir henni inn á stórt eða lítið tannhjól að framan, og svo í S beygju gegnum tvö tannhjól úr plasti að aftan sem halda henni strekktri og beina henni á fimm og upp í átta tannhjól.  Þannig geta gírhlutföllin orðið frá því að vera 2x5=10 og upp í 3x8=24.  Mörg gírahlutföllin eru of svipuð til að þekkjast sundur í reynd svo það er hálfgerður skáldskapur að segja að "24 gíra" hjól sé það í raun og veru.

Utanáliggjandi gírar eru léttir og ódýrir en það þarf að stilla þá reglulega því annars er ekki hægt að velja alla gírana, og stundum lafir keðjan á milli tveggja gíra með tilheyrandi skrölti.

Slabb og slyddudagar eru algengir á Íslandi, og tjara og vegryk sest í keðju og gíra.  Þetta sandleðjuparsl slítur og eyðileggur gírana á einum vetri ef þeir eru ekki þrifnir reglulega.  Svo er heldur ekki hægt að setja keðjuhlíf utanyfir.


57211866.IMG_3841

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 Þeir sem treysta sér ekki til að þrífa og stilla utanáliggjandi gíra ættu að skoða þetta:

speedbild2

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta gæti verið gírkassi úr vörubíl en er afturöxull með fjórtán gíra í stað þriggja áður.  Engin tvö gírhlutföll eru eins, þau nýtast því öll.

Öxullinn er meiri fjárfesting en í utanáliggjandi gírum og um það bil hálfu kílói þyngri, en mér er sagt að hann sé viðhaldsfrír og skipti létt um gíra í öllum veðrum eins og fínasti jeppi.

Hjólið sjálft verður einfaldara:

  • Keðjan er alltaf bein en þannig líður keðjum best.
  • Keðjan getur verið stór og sterk og því minna viðkvæm fyrir sliti og skít.
  • Það er hægt að setja keðjuhlíf á hjólið.
  • Aðeins einn gírskiptir á stýrinu velur alla gírana fjórtán.

P8088455

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Framleiðandinn að öxlinum heitir Rohloff.  Til eru ódýrari gíraöxlar frá Shimano sem heita Nexus.  Þeir eru átta gíra og ku ekki þola eins mikil átök, enda ætlaðir í ferðir til og frá vinnu, ekki hamagang á hálendinu.

Ef þessir gírar fást ekki á Íslandi er það vegna þess að enginn vill þá og þess vegna selur þá enginn, en enginn vill þá, af því þeir fást ekki.  Þannig er vítahringurinn oft.  Það sakar samt ekki að spyrja eftir þeim, og svo má panta reiðhjól á netinu.

Það er dálítið mótsögn að smíða sterkleg fjallahjól en með utanáliggjandi gírum. Ég sé mig í anda keyra upp á hálendið í jeppa með loklausan gírkassa, opinn fyrir vegarykinu.

Ef ætlunin er að fá sér gíra sem eru lokaðir og viðhaldsfríir, má í framhaldi fá sér vökvadiskabremsur til að hjólið verði álíka viðhaldsfrítt og japanskur bíll.

Þá vantar bara góða hjólastíga, sem minnir mig á borgarstjórnina í Reykjavík, en það þykir mér ennþá of sárt umræðuefni...

 


Hollensku neytendasamtökin: Ekki kaupa Vista

Hollensku neytendasamtökin hafa ráðlagt fólki að halda sig frá Microsoft Vista vegna þess að óánægðir neytendur hafa ekki fengið að losa sig við Vista og fá  gamla Windows XP uppí í staðinn. 

Fulltrúi samtakanna segir að Vista sé einfaldlega ekki tilbúið, þeir séu nú með 5000 kvörtunarmál í meðferð.  Hollenskir bloggarar svara sumir á móti að þetta sé stormur í vatnsglasi því Vista virki á nýjum tölvum, þetta séu aðallega vandamál þeirra sem hafa sett Vista á eldri vélar.

Vandinn er samt líka að sumar nýjar vélar voru aðeins ætlaðar fyrir Vista  og það vantar því "drivera" fyrir XP ef mönnum snýst hugur.  Þetta ber að hafa í huga ef fólk ætlar út í búð á næstunni..

 

 


Sigmund tölvunerdanna?

Hér er á ferð teiknari með undarlegan húmor og mikla tölvufræðiþekkingu.  Hann fer örugglega fyrir ofan og neðan garð hjá þeim sem eru ekki tölvunarfræðingar en mér finnst þetta fyndið.

exploits_of_a_mom

donald_knuth

Dagbók: ósköp venjulegur laugardagur í Rennes

Ég er í krúttkasti yfir Rennes, borginni sem ég bý í eftir daginn í dag.  Það er  tuttugu stiga hiti, heiðskírt, logn og yndislegt veður. Ég vaknaði hægt við að  nágrannarnir voru að spila svo fallega á gítar.  Gluggarnir voru galopnir og ég  heyrði kurrið í dúfunum uppá þaki.

Ég fékk mér kaffi og baguette, svo labbaði ég út á aðalgötuna sem var full af  fólki. Fyrst kom par labbandi til mín með skilti sem á stóð "ókeypis faðmlög"  (Soulage Gratuit).  Þau föðmuðu mig bæði skælbrosandi. Strákurinn sagði að þetta  verið gott faðmlag, ég sagði sömuleiðis og að ég hefði ekki fengið faðmlag í  mánuð svo þetta hefði alveg tímabært.

Næst labbaði til mín par sem var að fara að gifta sig og spurði hvort ég vildi  skrifa heilræði til þeirra í bók sem það var með.  Vinir þeirra voru með þeim og  fólk horfði til þeirra brosandi.  Ég skrifaði, að hvort þeirra um sig ætti að  muna að elska sig sjálft og hafa sjálfsvirðingu, því þá gætu þau elskað og virt  hvort annað og aðra.

Ég labbaði aðeins lengra þar sem sirkúsinn var að kenna krökkum að labba á vír  og halda jafnvægi uppá stórum bolta.  Sirkúskallarnir voru í góðu skapi og  göntuðust við gamla fólkið sem þekkti þá greinilega.  Næst gekk ég að tjaldi þar  sem fólk var að sækja númerin sín fyrir víðavangshlaupið á morgun.  Hlaupið  heitir "Tout Rennes Cours", (öll Rennes hleypur).

toutrennescourt

 

 

 

 

 

Í tjaldi á næsta torgi var harmonikkuhátíð í gangi.  Ég er enginn harmonikku  unnandi en frakkar spila vel á harmonikku, það rifjaðist upp fyrir mér músíkkin úr  "Amelie" sem ég veit núna að var ekki eins mikil ídýllísering á frönsku lífi  eins og ég hélt.

P9220043

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég fór á stóra markaðinn og keypti kjöt og grænmeti.  Sá markaður er ótrúlegur,  með tuttugu metra kjötborð og óendanlegt úrval af kæfu og pylsum.  Annað eins  úrval af grænmeti og svo margar sveppategundir sem ég kann ekkert að elda.  Þar  var ungt fólk sem sýndi eldri konum virðingu með því að hleypa þeim fram fyrir  sig í röðinni.

P9150021

 

 

 

 

 

 

 

 

 

P9150034

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég fór næst á torgið í mínu hverfi, þar var komið tjald þar sem háskólarnir í  bænum voru að kenna krökkum um vísindi.  Ég sá tæki sem gat séð á hvaða hluta  tölvuskjás fólk horfði, á skerminum var mynd af fólki og það vakti mikla kátinu  þegar tækið mældi að mennirnir horfðu á bringu kvennanna, ofarlega.  Þarna var  líka hópur að kynna gerfihnattaáætlun Frakklands.  Vísinda og stærðfræðiáhugi  frakka er mikill, ég vissi ekki hvað þeir eru framarlega í menntamálum áður en  ég kom út.

Ég fór svo og keypti nýlenduvörur hjá kaupmanninum á horninu.  Fyrir utan búðina  var stelpa með kettling á öxlinni, og svo var kenndur gamall maður sem vildi  segja eitthvað við mig, en hann talaði óskírt svo ég sagði á bjagaðri frönsku að  ég væri ekki sleipur frönskumælandi.  Hann brosti út að eyrum, kyssti á mér  framhandlegginn og labbaði burt (hann var lágvaxinn).

Síðast fór ég á barinn í götunni minni og drakk einn bjór með nágrönnunum. Leffe  er góður bjór, sérstaklega úr krana.

Það þarf ekki að halda menningarnótt í bænum, allar nætur hér virðast vera það  sjálfkrafa.  Bærinn var sneisafullur af fólki og viðburðum, samt var þetta bara  venjulegur laugardagur.  Rennes er 200 þúsund manna borg, eins og Reykjavík.

Ég dauðkvíði fyrir að fara heim, því hér er lífið eins og í draumi. Fólkinu á  svæðinu tekst að halda í þær hefðir sem skipta máli þótt hér séu höfuðstöðvar  hátækniiðnaðar allt um kring. Hér eru geimflaugar og Citroen bifreiðar og  háhraðalestir framleiddar, en fólk fer á markaðinn og kaupir í matinn eftir sem  áður.


market_rennes_hi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þrátt fyrir þennan yndislega dag er ég svolítið niðurdreginn.  Ég kvíði því að  fara heim til Íslands, sérstaklega eftir fréttirnar þaðan í síðustu viku.  Það  sem stendur upp úr fyrir mig er, hvað margir sýndu mikla eiginigirni og vanhæfni  í starfi.

Nú trúi ég því að íslenska þjóðin eigi enga alvöru stjórnmálamenn, bara  samtíning af fólki sem er að reyna að lifa af og skara eld að eigin köku. Það er  enginn sem ég get virt, engar fyrirmyndir.

Það geta ekki alltaf allir verið eigingjarnir, við byggjum samfélag ekki upp  þannig. Ég vona að einhver gangi fram fyrir skjöldu  og geri eitthvað til að  gera Ísland að betri stað að búa á.  Ég er samt ekki vongóður.  Alvöru fólk eins  og Vigdís og Kristján Eldjárn eru ekki hvar sem er.

Ég er orðinn svo ofsalega þreyttur á fréttum um kaup og sölu á fyrirtækjum og  gengi þeirra og hver á hvað í hvaða fyrirtæki.  Þessir menn fljúga bráðum á  einkaþotunum yfir rústirnar af þjóðfélaginu okkar.

Sunnudagur.

Ég skrifaði textann fyrir ofan í gærkveldi.  Fyrirgefið þið hvað ég  er drungalegur en mér líður þannig ennþá yfir þessum málum öllum.  Ég fór og  hljóp 10 kílómetra í hlaupinu og var 58:55 sem er ekki gott en betra hjá mér en  í fyrra þegar ég hljóp í Glitnishlaupinu.

Nú ætla ég aftur út í sólina og ná þessum Íslands-drunga úr mér.
 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband